Úrval - 01.02.1981, Qupperneq 88

Úrval - 01.02.1981, Qupperneq 88
ÚRVAL 86 mína þar til blóðið rann, en hún vill ekkert segja,” sagði Sjabani beiskur í bragði. ,,Ég á fjórar aðrar dætur, svo tveir uxar fyrir hverja hefðu gert mig að auðugum manni.” Svo gat hann ekki lengur haldið aftur af sér: ,,’Mkúlú, þú mikli, þú verður að kalla fram andana til að finna hinn seka.” Galdralæknirinn varð fjarrænn í augunum. , Já,” sagði hann svo með ástríðuhita. „Andarnir munu vísa á hann!” Og hann tók upp litla skjóðu úr ósútaðri sauðargæru sem lál kjöltu hans. Lotningarsvipur færðist yfir ásjónu Sjabanis þegar hann heyrði hringla í beinunum í skjóðunni. „Þakka þér, faðir minn” sagði hann af heilum huga. „Greiða ber ákveðna þóknun fyrir þjónustu mína, sonur minn.” ,,Ég skil.” , ,Þetta er erfítt verk. ’ ’ Sjabani skildi það af alvarlegu yfir- bragði galdralæknisins. ,, Andarnir vilja fá poka af korni. ’ ’ „Heilan poka, faðirminn?” „Þetta er ekki auðvelt.” Það brá fyrir hroka á andliti ’Mkúlús. „Verði þinn vilji, mikli maður,” sagði Sjabani lotningarfullur. ,,Ég mun færa þér fyrstu greiðsluna við sólarupprás í fyrramálið. ’ ’ Sétanka leit aldrei á stúlkuna. Meðan hann stóð í röðinni og beið þess að ’Mkúlú gæfi merkið hafði hann átt erfitt og varð að beíta sig hörðu til að stökkva ekki fram. Nú, þegar röðin var komin af stað, var þetta auðveldara því hann varð að einbeita sér að því að vara sig á drumbinum. Auðvitað vissu andarnir að hann var sá sem þeir leituðu. En hann, Sétanka, hafði líka snúið sér til þeirra. Ö, hann vissi að fólkið myndi segja að til þess hefði hann hvorki vald né rétt, en hér var svo mikið í húfi að hann varð að gera tilraun til að fá anda forfeðranna til að hlusta. Stundu fyrir dögun í gærmorgun, svo snemma að enginn yrði ferða hans var, hafði hann farið út í skóginn. Hann lagðist milli draugalegra runnanna. Daufur, ósýnilegur, sof- andi andardráttur var allt umhverfis hann, andardráttur fugla, villidýra, skriðdýra. ,,Ö, þið andar forfeðra minna,” hrópaði hann svo hátt sem rómurinn leyfði, til að vera viss um að þeir heyrðu. „Kísúení og Sétanka eru eins og jörð og korn. Annað fær ekki þrifíst án hins. Ég grátbið ykkur, látið hana ekki verða gefna öðrum. ’ ’ Dagurinn bærði á sér í kviði myrkurs og í kyrrð dögunarinnar varð allt lífi gætt, fuglar og villidýr, skrið- dýr og lauf. Runnamús skaust hjá og tvær örsmáar steinvölur ultu undan fótum hennar ofan í gmnnan læk. Daufir hringir mynduðust á möttu, glerkenndu yfirborðinu. „Andarnir hafa heyrt!” hrópaði Sétanka, og fann hvernig herpingurinn í háls- inum slaknaði. ,,Ég fínn návist þeirra!”
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.