Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 59

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 59
Surtsey – Ljóð og myndir Surtseyjargosið hófst að morgni 14. nóvember 1963 og fagnar Surtsey 60 ára afmæli í ár. Gosið hófst sem neðansjávargos og telst það með lengstu eld- gosum Íslandssögunnar en það stóð allt til miðs árs 1967 eða í rúm þrjú og hálft ár. Strax á öðrum degi gossins kom í ljós eyja upp úr sjónum og stækkaði hún hratt næstu vikur og mánuði. Henni var gefið nafnið Surtsey eftir eldjötninum Surti úr Norrænni goðafræði. Gosið vakti mikla athygli innanlands sem utan en myndun slíkrar eldfjallaeyjar er mjög sjaldgæfur atburður. Jarðfræðingar gátu fylgst með þróun gossins og í fyrsta sinn urðu menn vitni að og gafst færi á að rannsaka og staðfesta kenningar um myndun móbergs. Einnig hafa líffræðingar fengið einstakt tækifæri til að fylgjast með landnámi plantna, fugla og annarra lífvera síðustu áratugina. Eyjan var friðlýst árið 1965 og árið 2008 var hún skráð á heimsminjaskrána. Á næstu opnum eru birt ljóð um Surtsey eftir félaga Bragskinnu; áhugafélag fólks um brag- fræði og íslenskt mál. Með ljóðunum fylgja myndir eftir ýmsa fræðimenn og málverkið hér að neðan er af gróðri í Surtsey, eftir Þórunni Báru Björnsdóttur myndlistarkonu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.