Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 84
gjafanna. Það er einkar hvetjandi að sækja þessa fundi, að
sögn Gróu, og þeir eru frábær leið til að sækja innblástur fyrir
Flóruvini. Starf norrænu félaganna er misöflugt og má nefna
að flestir fundargestir voru starfsmenn félaganna, sem hafa
það fyrir sitt aðalstarf að vinna að markmiðum félaga sinna.
Andinn á þessum fundum er alltaf mjög góður og þar má finna
fyrir miklum stuðningi við okkur sem minna bakland höfum
í þessum efnum, þ.e. Finna og Íslendinga. Í ár greiddi stjórn
HÍN ferðakostnað fulltrúa síns.
SAMSTARF VIÐ NÁTTÚRUMINJASAFN ÍSLANDS
Náttúruminjasafn Íslands var stofnsett með lögum árið 2007
en rætur þess má rekja aftur til ársins 1889 þegar Hið íslenska
náttúrufræðifélag var stofnað. Fyrsta áratuginn eftir setningu
laganna var safnið lítið meira en nafnið og starfsemin var nán-
ast engin nema barátta fyrir tilvist þess. Félagið var áberandi í
baráttunni fyrir uppbyggingu safnsins, bæði með beinni þátt-
töku stjórnar á fundum með ráðamönnum, samþykkt álykt-
ana og hvatningu yfirvalda til dáða. Í ríflega 133 ár hefur það
verið helsta markmið félagsins að koma á fót „veglegu nátt-
úrugripasafni sem gagnist landi og þjóð“. Nafn félagsins og
hin langa baráttusaga þess fyrir safninu kemur fyrir í nánast
öllum texta og umfjöllun þegar málefni safnsins ber á góma.
Enda er ekki annað hægt og sögunnar vegna eru félagið og
safnið tengd nánum böndum. Undanfarin ár hefur orðið mikil
umbylting. Safnið hefur blómstrað, í senn hvað varðar glæsi-
lega sýningu þess um vatnið í Perlunni, frábært starfsfólk og
framtíðarhúsnæði á Nesinu. Þar sem HÍN á svo stóran hlut í
sögu og baráttunni fyrir uppbyggu safnsins, væri eðlilegt að
félagið ætti aðild að starfsemi þess, í formi þátttöku í nefnd
og/eða fagráði.
Útgáfa Náttúrufræðingsins er eitt helsta samstarfsverk-
efni HÍN og NMSÍ. Hún er kostuð til helminga af félaginu og
safninu samkvæmt samningi sem undirritaður var árið 2014
og endurskoðaður í desember 2021. Margrét Rósa Jochums-
dóttir var ráðin í ársbyrjun 2022 sem ritstjóri Náttúru-
fræðingsins, bæði prentútgáfu og vefriti tímaritsins. Margrét
hefur staðið sig vel á þessu fyrsta ári í starfi og sést það best á
að tímaritið kom út á réttum tíma auk þess sem vefritið mun
nú loks verða opnað, eftir töluverða þrautagöngu við undir-
búning þess. Safnið tilnefndi jafnframt fulltrúa í ritstjórn,
Ragnhildi Guðmundsdóttur.
Merking tímaritsins hefur verið mikið rædd innan
stjórnar HÍN og við forstöðumann NMSÍ. Þrátt fyrir að
tímaritið sé gefið út á kostnað beggja aðila er brýnt að því
sé haldið til haga að Náttúrufræðingurinn er áfram tímarit
Hins íslenska náttúrufræðifélags. Fram hefur komið að
útgáfan hefur verið í samstarfi við ýmsa aðila í gegnum tíð-
ina sem tilteknir eru framan á kápunni og að innan, fremst
og aftast. Sú stjórn sem tekur nú við eftir þennan aðalfund
ætti að gæta að þessu og finna til mikillar ábyrgðar í þessu
máli, sem kjörnir fulltrúar félagsins.
LOKAORÐ
Starf félagsins var með ágætum á síðastliðnu starfsári þrátt
fyrir heimsfaraldur. Stjórn vann vel saman og fór meðal
annars yfir hvernig best yrði staðið að utanumhaldi fjármála
og félagatals. Viðsnúningur hefur orðið á fjárhag félagsins,
sem var rekið með tapi árið áður. Útgáfa Náttúrufræðings-
ins er eitt merkasta, dýrmætasta og mikilvægasta langtíma-
verkefni HÍN. Hvergi annars staðar hefur verið birt jafn
fjölbreytt og vandað efni um náttúru Íslands í svo langan
tíma og á svo góðri íslensku. Vefútgáfa Náttúrufræðingsins,
sem hleypt verður af stokkunum á þessum aðalfundi, hefur
verið umfangsmesta viðfangsefni stjórnarinnar undanfarin
ár. Útgáfa tímaritsins á vef er lykilatriði í þeirri vegferð sem
framundan er við eflingu félagsins. Nú er brýnt að koma
þeirri hvatningu á framfæri að sem flestir taki þátt í stuðningi
við þetta merka og mikilvæga félag og útgáfustarfsemi þess.
Markmiðin eru göfug, því félagið er rekið sem óhagnaðar-
drifin eða arðsóknarlaus sjálfboðasamtök í þágu náttúrunnar
og samfélagsins. Því öflugra sem félagið er, þeim mun meira
getur það lagt af mörkum, aukið þekkingu og áhuga almenn-
ings á náttúrufræði og stutt við bakið á Náttúruminjasafni
Íslands. Bæði fjárhagur félagsins og sjálfstæði þess hafa oft
verið rædd innan stjórnar. Það er löng hefð fyrir því á Íslandi
að treysta á frjáls félagasamtök til stuðnings opinberum
stofnunum. Í því samhengi má benda á ýmis félög sem hafa
fjármagnað tækjakaup og tryggt starfsemi í sjúkraflutn-
ingum, heilbrigðisþjónustu, krabbameinsrannsóknum o.m.fl.
Í stjórn HÍN hefur verið rædd sú hugmynd að félagið fái
stuðning frá hinu opinbera til að veita opinn aðgang á sama
hátt og stofnanir fá fjárstuðning til að kaupa opinn aðgang
að fræðigreinum fyrir starfsfólk sitt. Yfirvöld á Íslandi þurfa
að vera meðvituð um nauðsyn þess að halda áfram að tryggja
starfsemi félagsins og útgáfu Náttúrufræðingsins, bæði á vef
og á prenti. Það verður verkefni nýrrar stjórnar að taka við
boltanum og halda áfram þeirri vegferð.
Ég hef nú gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið í átta ár,
þar af þrjú ár sem gjaldkeri og fimm ár sem formaður. Þetta
hefur verið viðburðaríkur tími og verkefnin breytileg. Mitt
helsta markmið var að Náttúrufræðingurinn kæmi út á raf-
rænum miðli og nú er þeim áfanga náð. Það er því komið að
leiðarlokum hjá mér. Ég vil þakka samstjórnendum mínum á
þessum tíma fyrir frábært samstarf og óska þeim sem áfram
sitja, auk þeirra sem hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu,
velfarnaðar og farsældar í störfum sínum. Við sem látum
nú af trúnaðarstörfum fyrir félagið höldum ótrauð áfram í
baklandinu og hvetjum alla til að ganga til liðs við félagið og
sinna því af þeirri elju og alúð sem þessi öldungur á skilið.
HÍN lengi lifi!
f.h. stjórnar
Ester Rut Unnsteinsdóttir, formaður
Náttúrufræðingurinn
84