Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 8

Náttúrufræðingurinn - 2023, Blaðsíða 8
RANNSÓKNASVÆÐI Lega og veðurfar Surtsey liggur syðst og vestast Vest- mannaeyja og er hún útvörður Ís- lands í suðri (1. mynd). Næst henni er Geirfuglasker í 5 km fjarlægð og þá Súlnasker öðrum 5 km fjær til land- norðurs. Til Heimaeyjar eru 18 km og 32 km upp í Landeyjasand. Við goslok var Surtsey 2,7 km2 að flatarmáli og mesta hæð yfir sjávarmáli 175 m. Hún var þar með langstærst úteyja Vestmannaeyja en næst henni gengur Elliðaey sem er 0,46 km2. Aðrar úteyjar eru aðeins 0,01– 0,32 km2 að flatarmáli.9 Heimaey ber hins vegar höfuð og herðar yfir aðrar eyjar í klasanum. Hún var 13,6 km2 að flatarmáli eftir eldgosið þar árið 1973.15 Mjög hefur gengið á Surtsey vegna sjávarrofs. Það var mest fyrstu árin en er enn mikið og stöðugt hin seinni ár.3 Samkvæmt síðustu mælingum, sumarið 2021, var flatarmál eyjarinnar 1,2 km2. Mest hefur gengið á hraunskjöldinn á suðurhluta eyjarinnar en einnig á láglendistangann að norðan. Hann er gerður úr gosmalarseti og eru þar fjöru- kambar af lábörðu hnullungagrjóti sem brimið hefur lagt af sér hlémegin eyjarinnar. Miðhluti Surtseyjar, hæsti hluti hennar, eru móbergsbunkarnir og gígarnir stóru, Surtur og Surtungur, sunnan undir bunkunum (1. mynd), en þar hefur minnst breyting orðið á eynni.3,4 Í Vestmannaeyjum er hafrænt lofts- lag. Þar er fremur úrkomusamt, milt og vindasamt. Sjálfvirk veðurstöð var sett upp í Surtsey árið 2009. Mælingar tímabilið 2009–2019 sýndu meðalárs- hitann 6,6°C og ársúrkomu 1.009 mm. Að meðaltali var tímabil frostleysis, frá vori til hausts, 199 dagar en regn mældist 229 daga.16 Rannsóknir og friðun Það varð uppi fótur og fit þegar Surtseyj- argosið hófst haustið 1963. Jarðfræðingar og fréttamenn flugu yfir gosstöðvarnar á fyrsta degi og á næstu dögum og vikum var siglt að þeim til að virða þetta undur betur fyrir sér. Ferðir vísindamanna til eyjarinnar áttu eftir að verða margar en fá eldgos og eldfjöll hér á landi hafa verið rannsökuð jafn ýtarlega. Menn gerðu sér fljótt grein fyrir mikilvægi hinnar nýju eyjar fyrir vísindin. Af mikilli framsýni var hún friðlýst árið 1965 og aðgangur að henni að mestu takmarkaður við þá sem þar vinna að rannsóknum og fræðslu.17 Þar skyldi náttúran hafa sinn gang án röskunar og inngripa mannsins. Sama ár var Surtseyjarfélagið stofnað af vísinda- mönnum og öðrum áhugamönnum um rannsóknir í Surtsey. Félagið starfar enn í dag og kemur að skipulagningu rann- sókna í eynni. Á þess vegum hafa þar 2. mynd. Surtsey og staðsetning gróður- reita. Worldview 2 gervitunglamynd frá 8. ágúst 2021 (úr myndgrunni Esri, Maxar, Earthstar Geographics, and the GIS User Community. – Location of permanent veg- etation plots (dots and numbers) on Surts- ey, Worldview 2 image from 8 August 2021 (Source: Esri, Maxar, Earthstar Geo- graphics, and the GIS User Community). 1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020 Fj öl di te gu nd a / N o. o f s pe ci es 80 60 40 20 0 Heildarfjöldi frá 1965 / Cumulative from 1965 Á lífi hvert ár / Alive each year Náttúrufræðingurinn 8 Ritrýnd grein / Peer reviewed
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.