Upp í vindinn - 01.05.2007, Qupperneq 16
... Upp í vindinn
Time since loading (log scale)
Mynd 4. Hlutfallsraki í því umhverfi sem steypan er I meðan hún er undir álagi hefur
mikil áhrifá skrið. Steypa í lágum hlutfallsraka umhverfis skríður meira en steypa I háum
hlutfallsraka. Á þessari mynd er skrið steypunnar á lóðrétta ásnum og tími frá því álag
er sett á steypuna á lárétta ásnum.
Ath.: Skalinn á lárétta ásnum er logaritmískur. [8]
[1]. Áhrif hlutfallsraka í umhverfi
steypunnar á álags-tímanum má sjá á
mynd 4. í þessu tilfelli er steypan að
þorna út á álagstímanum við misháan
hlutfallsraka, 50%, 70% og loks
100% hlutfallsraka, þ.e.a.s. í raka-
mettuðu lofti. Þetta er vegna svokall-
aðra „Picket" -áhrifa.
2.2. Innri þættir (efnisþætt-
ir) sem hafa áhrif á skrið
Sementstegundir hafa áhrif á skrið,
en þó fyrst og fremst á óbeinan hátt
með hvörfunarhraða. Steypa með
fljótharðnandi sementi skríður minna
en steypa með seinharðnandi sem-
enti, að því gefnu að álag sé sett á
sýni á sama aldri þar sem steypa með
fljótharðnandi sementi væri þá búin
að ná hærri hvörfunargráðu. Hærri
v/s-tala og aukinn hluti sementsefju í
steypunni veldur hvort tveggja meira
skriði. Þar sem það er sementsefja
steypunnar sem skríður en ekki fylli-
efnin, er steypu með háu hlutfalli
sementsefju hættara við skriði. Skrið
í sjálfum fylliefnunum er nánast
ekkert. Hærri v/s-tala gerir það að
verkum að háræðar verða meiri og
því er meira vatn til staðar og styrkur
og fjaðurstuðull lægri, þar sem hol-
rými í sementsefjunni er meira. Þetta
stuðlar allt að auknu skriði. Skrið
minnkar því með auknum hlut fylli-
efna og minni hlut sementsefju.
Vissir eiginleikar fylliefna hafa áhrif
á skrið steinsteypu. Holrými fylliefna
hefur áhrif á fjaðurstuðul og vatns-
drægni og þar með óbeint á skrið
steinsteypu. Því þéttari fylliefni, þ.e.
minna holrými, þeim mun minna
skrið. Sennilega hefur fjaðurstuðull
fylliefna mest áhrif; því hærri sem
hann er því minna skrið er í steypunni
[1]. Ef fylliefni hefur lágan fjaður-
stuðul þá gefur það meira eftir undir
álagi, þar af leiðandi færist meira
álag yfir á sementsefjuna sem skríður
þá meira. Um langtímaáhrif fylliefna
á skrið er hins vegar minna vitað. Þó
hafa einhverjar rannsóknir verið
gerðar á því og niðurstöður einnar
þeirra má sjá á mynd 5. Þar má sjá að
10 28 90 1 2 5 10 20 30
Days Years
Time since Loadmgdog scale)
Mynd 5. Samanburður á áhrifum fylliefna á skrið steinsteypu. Hér koma fram sérkennileg
áhrif basalts á skrið steypu. Þegar álag hefur verið á steypunni I u.þ.b. 90 daga fer
skriðhraðinn vaxandi I steypusýnum með basalti samanborið við hin sýnin. Á lóðrétta
ásnum er skrið, á lárétta ásnum tími frá þvi álag var sett á steypuna í lógaritmiskum
skala. [4]
16