Læknablaðið - 01.04.2023, Side 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 171
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Halla Viðarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Oddur Ingimarsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
1850
Áskrift
23.400,- m. vsk.
Lausasala
2340,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Fimm sjúklingar hafa síðustu ár verið sendir til Svíþjóðar í CAR T-frumumeðferð.
Hallgerður Kristjánsdóttir, blóðlæknir á Landspítala, segir bæði hagræði fyrir sjúklinga
og sparnað fyrir ríkið að fá þessa meðferð hingað heim
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Blóðlæknir vill byltingarkenndar
frumumeðferðir heim
Blóðdeild Landspítala hefur sent 5 sjúklinga til
Svíþjóðar í CAR T-frumumeðferð sem er ný og
byltingarkennd meðferð við ýmsum blóðsjúk-
dómum. Hallgerður Kristjánsdóttir, blóðlæknir
á Landspítala, segir meðferðina lengst á veg
komna í endurkomu á stórfrumueitlakrabba-
meini. Einnig sé meðferðin til að mynda notuð
við endurkomu á bráðaeitilfrumuhvítblæði.
„Á næstu árum sjáum við þessa meðferð til
að mynda verða notaða við endurkomu á merg-
æxli,“ segir hún við Læknablaðið. Hallgerður
sat ráðstefnu nú um miðjan marsmánuð um
tækifæri og áskoranir sem felast í gena- og
frumumeðferðum. Þar hvatti hún til þess að
boðið yrði upp á þessa meðferð hér á landi í
stað þess að senda sjúklingana út.
„Við höfum þegar átt fyrsta fund með
lyfja fyrirtæki, Kite frá Gilead, sem framleiðir
Yescarta,“ segir hún, en lyfið er notað til að
meðhöndla tvær tegundir eitlaæxla, samkvæmt
heimasíðu framleiðandans, og segir Hallgerður
þetta einmitt CAR T-lyfið sem flestir hafi fengið
í Svíþjóð.
„Það er allt tilbúið að hefja þessa vegferð
með okkur en áður en sú vegferð getur hafist
verður greiðsluþátttaka að vera ljós,“ segir hún.
„Íslenska ríkið er nú þegar að borga fyrir þessa
meðferð þegar einstaklingarnir hafa verið
sendir út,“ benti hún á á fundinum og að allur
kostnaður og fylgdarkostnaður væri greiddur
þegar þjónustan væri sótt til útlanda. „Það er
því ljóst að bæði hagræði og sparnaður skapast,
færum við þessa meðferð heim.“
Hallgerður segir við Læknablaðið að miðað
við sænskar áætlanir megi ætla að 1-2 sjúk-
lingar hér á landi þurfi meðferðina árlega. Bú-
ast megi við að þeir verði allt að 12 á komandi
árum þegar fyrr verði gripið til meðferðarinnar
við fleiri sjúkdómum. „Þessi meðferð veitir
sjúklingum alveg ný tækifæri.“
Hallgerður segir blóðlækna spennta fyrir
þessari nýju tækni. „Það eru ekki öll lönd farin
að nýta hana. Það er verið að byrja í Noregi og
ef okkur tekst að landa samningnum verðum
við með þeim fyrstu.“
Hún segir þó nokkur CAR T-lyf þegar
samþykkt af bandarísku og evrópsku lyfja-
stofnununum. Þau séu þegar notuð í yfir 16
Evrópulöndum. „Svíþjóð hefur verið leiðandi
í CAR T-meðferð á Norðurlöndunum og fóru
sjúklingarnir fimm frá blóðdeild Landspítala til
Lundar í meðferðina,“ segir hún.
„Við óskum því eftir samtali og aðstoð
íslenskra stjórnvalda og eins frá yfirstjórn
Landspítala svo færa megi CAR T-meðferð til
Landspítala.“
Hallgerður Kristjánsdóttir, blóð-
læknir á Landspítala, biður um
samtal við yfirvöld og yfirstjórn
Landspítala um að færa CAR T-með-
ferðir til Íslands. Mynd/gag
Hvernig virkar CAR
T-meðferð?
„Meðferðin virkar þannig að hvítu blóð-
kornin eru tekin úr sjúklingnum með svo-
kallaðri hvítkornasíu. Afurðin er send til
lyfjafyrirtækis sem ræktar upp frumurnar
og genabreytir þeim með veiruvektor þannig
að þær fái viðtaka sem þekkir krabbameins-
frumurnar,“ segir Hallgerður Kristjánsdóttir,
blóðlæknir á Landspítala.
„Í tilfelli eitilfrumukrabbameins er það
CD19-viðtaki sem er settur inn í T-frumur.
Þessum genabreyttu CAR T-frumum er þá
sprautað aftur inn í líkama sjúklings þar sem
þær svo finna krabbameinsfrumurnar og
eyða þeim.“