Læknablaðið - 01.04.2023, Qupperneq 40
208 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
Ný hryggsjá á Akureyri breytir öllu. Hún gerir aðgerðirnar öruggari, einfaldari og
fljótlegri, segir hryggjarskurðlæknirinn Freyr Gauti Sigmundsson sem flýgur þrisvar til
fjórum sinnum á ári á heimaslóðirnar og sker með Bjarka Karlssyni sjúklinga með hryggjarvanda
sem áður þurfti að skera erlendis. Hér lýsir hann einni fyrstu skurðaðgerðinni fyrir norðan
þar sem hryggsjáin nýttist
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Bryður bein og byggir
upp hryggi á heimaslóðum
„Ég er uppalinn á Akureyri, er Akureyr-
ingur og foreldrar mínir eru ennþá bú-
sett þar og þar á ég bróður. Ég á nánustu
fjölskyldu mína á Akureyri,“ segir Freyr
Gauti Sigmundsson, yfirlæknir bæklun-
ardeildar Háskólasjúkrahússins í Örebro.
Hann venur komur sínar á æskuslóð-
irnar og gerir einar flóknustu bakaðgerð-
irnar sem gerðar eru hér á landi – nú
með glænýrri hryggsjá sem Hollvina-
samtök sjúkrahússins gáfu spítalanum
og tekin var í notkun í byrjun árs. Þessi
bakgrunnur Freys Gauta er ein ástæða
þess að sérhæfðar bakaðgerðir hafa
blómstrað á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Mjög hæft starfsfólk er á skurðstofum
og legudeild spítalans.“
Freyr Gauti fór ekki hefðbundna leið í
læknisfræði því námið varð að víkja um
stund fyrir júdóæfingum. Hann keppti á
Ólympíuleikunum 1992, aðeins tvítugur,
lagði stund á íþróttina og útskrifaðist
svo úr Verkmenntaskólanum 27 ára
gamall. Kandídatsárið sitt tók hann svo
á sjúkrahúsinu á Akureyri. „Ég fór í sér-
nám í Svíþjóð og skrifaði doktorsritgerð
í Lundi 2014.“ Nú yfirlæknir á Örebro
háskólasjúkrahúsinu, stekkur hann þó
reglulega á Karólínska og sker fram á
kvöld.
„Ég hringi eftir vaktina klukkan 22,“
svarar hann pósti frá Stokkhólmi þegar
blaðamaður vill ræða betur um eina
fyrstu aðgerðina í hryggsjánni nýju.
Fjölskyldan bíður í Örebro. Eiginkonan
Sylvía Húnfjörð tannlæknir og þrír tán-
ingar þeirra. Hann er þó ekki einn á Kar-
ólínska. „Hér á ég líka bróður, Þóri svæf-
ingalækni. En það er þó ekki sjálfgefið
að ég hitti hann í þessum ferðum,“ segir
hann og hlær. „Þetta er svo stór spítali.“
Meiri nákvæmni með sjánni
Freyr Gauti lýsir hlýjum tilfinningum til
sjúkrahússins á Akureyri. Þar eigi hann
góða kollega. „Þannig að ég hef viljað
koma og hjálpa þeim öðru hverju.“ Að-
gerðirnar gerir hann með Bjarka Karls-
syni bæklunarlækni sem lærði í Svíþjóð
og hafa þeir unnið þar saman frá árinu
2016. „Síðan ég varð sérfræðingur hef ég
komið 3-4 sinnum á ári og við gert erfið-
ustu aðgerðirnar saman.“
Eina slíka gerði hann nú í janúar á 37
ára konu. Skar upp bak og spengdi. Freyr
Gauti lýsir því hvernig ofan við neðstu
skrúfurnar hafi „diskurinn“ verið ónýt-
ur og ekki þolað álag. „Þar var skekkjan
mest. Svo heldur skekkjan áfram eftir
lendarhryggnum. Við settum skrúfur
í hryggjarbolinn og neðri hluta brjóst-
hryggjar. Þar var liðskrið sem ég þurfti
að laga,“ segir hann og lýsir því hvernig
hryggjarbolur ofan við neðstu skrúfurn-
ar hafi verið skriðinn til hliðar. „Þá tek
ég diskinn, set búr og fylli með beini.“
Aðgerðin tók allt í allt 2,5-3 klukku-
stundir og var sú önnur sem hann gerði
með aðstoð nýju hryggsjárinnar. „Við
höfum gert svona aðgerðir áður en með
nýju hryggsjánni er hún nákvæmari,“
segir hann.
„Aðgerðin er gerð í gegnum bak, en
sumar aðgerðir gerum við í gegnum síð-
una eða magann og þá með hjálp æða-
skurðlækna á Akureyri. Þetta er hefð-
bundin, hryggskekkjuaðgerð þar sem við
opnum hrygginn. Við nýtum hryggsjána
sem siglingatæki. Þá setjum við loftnet á
sjúklinginn og skönnum inn og tengjum
við þessa hryggsjá. Þegar við gerum
aðgerðina sjáum við inn í líkamann,
inn í hryggbolinn, setjum skrúfuna um
leið og við horfum á skjá fyrir framan á
okkur. Með hryggsjánni er alltaf meiri
nákvæmni.“
Freyr Gauti segir að það taki sjúk-
linga oft langa tíma að ná sér eftir svona
aðgerðir. Meta þurfi vel hvort inngripið
sé þess virði því eftir langan tíma með
verki geti aðgerð verið eins og að hella
bensíni á eld. Verkirnir hverfi þá ekki
þar sem hryggjarliðir sem legið hafi
í þessari skökku stöðu lengi séu allir
skemmdir og slitnir.
Skrúfur og stög í bakið
Hann segir að skrúfurnar sem settar eru
séu í aldrei teknar. „Svo nota ég stög til
að skrúfa hrygginn í rétta stöðu.“ Tek