Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 209
síðan bein, brýt upp og mala og legg
yfir hryggbolinn þannig að það grói.“
Hann einfaldar málið til að lýsa fyrir
blaðamanni, lýsir því hvernig hann
raði hryggnum upp með hálfgerðum
legókubbum úr beini. „Það sést á L2-L4 á
myndunum.“ Það sé tímafrekast og erf-
iðast. „Þar fer ég framhjá taugaknippum.
Set 2-4 kubba.“
En hvernig tilfinning er það þegar vel
tekst til? „Mér finnst þetta skemmtilegt,
krefjandi aðgerðir þar sem maður getur
rétt fólk við og séð lífsgæði sjúklinga
aukast,“ segir hann. „Ef manni tekst að
rétta við og minnka verki er það mjög
gefandi.“
Freyr Gauti lýsir aðgerðinni á ungu
konunni sem meðalstórri. Hana hefðu
þeir Bjarki gert án nýju hryggsjárinnar.
„Það er hægt að gera þessar aðgerðir án
hennar en óvissunni er eytt með henni.
Hún gerir aðgerðina bæði öruggari og
fljótlegri. Á flestum sjúkrahúsum í hin-
um siðaða heimi er svona tækjabúnaður
og svipað tæki má finna á Landspítala.
Með svona hryggsjá setjum við þessi
ígræði á besta hátt til að rétta hrygginn.
Smáatriðin skipta svo miklu,“ segir
hann.
En mænan, er hún aldrei í hættu?
Mænan er bara að hluta til þarna. Hún
verður að taugaknippi sem við fylgj-
umst með í sérstöku tæki sem mælir
taugaleiðni. Svo setjum við skrúfurnar
í brjósthrygginn. Hættan er afskaplega
lítil. Við erum vanir og vinnum með
siglingatækið og höfum verið með þessa
taugaleiðnimælingar (nevromonitoring)
til stuðnings,“ segir hann og að sér-
fræðingar frá Þýskalandi hafi komið sér-
staklega til landsins til þess verks. „Þeir
hafa setið og fylgst með mænunni þegar
við gerum aðgerðina.“
Hér má sjá teymið á skurðstofunni. Bjarki Karlsson
læknir, Elva Ásgeirsdóttir og Hulda Birgisdóttir
skurðhjúkrunarfræðingar, og Freyr Gauti
Sigmundsson læknir. Mynd/Skapti Hallgrímsson/
Akureyri.net
Freyr Gauti lýsir því hvernig þeir
Bjarki hafi smátt og smátt gert flóknari
aðgerðir á spítalanum á Akureyri enda
sé það sérsvið hans í Svíþjóð. Núna
starfi hann á Akureyri fjórar vikur á ári.
„Sjúkratryggingar hafa stutt við bakið á
sjúkrahúsinu í þessum verkefnum.“ Þeir
fái gesti á skurðstofuna sem fylgist með.
„Já, já, síðast frá Svíþjóð. Þetta eru
sömu aðgerðir og ég geri hér í Svíþjóð í
daglegri vinnu. Geri við hryggskekkju,
en það eru ekki margir sjúklingar á
Íslandi sem þurfa slíka meðferð. Ég hef
stundum tekið þá til Svíþjóðar en stund-
um gert aðgerðir á Akureyri. Eftir að við
fengum þessa hryggsjá er engin þörf á
að flytja þá út,“ segir hann.
Vill sjá fleiri valaðgerðir
En er Sjúkrahúsið á Akureyri nægilega
stórt fyrir svona flóknar aðgerðir? „Við
þurfum góða svæfingalækna og góða
gjörgæslu fyrir þessa sjúklinga. Kostur-
Freyr Gauti Sigmundsson, yfirlæknir bæklunardeildar
Háskólasjúkrahússins í Örebro, kemur reglulega til
Akureyrar og gerir flóknar bakaðgerðir með Bjarka
Karlssyni; aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis.
Mynd/Skapti Hallgrímsson/Akureyri.net