Læknablaðið - 01.04.2023, Page 42
210 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
V I Ð T A L
inn við Akureyri er hvað mönnunin
á skurðstofunni er góð. Þar hefur fólk
unnið lengi. Við höfum byggt upp
teymið. Hollvinir hafa reynst okkur vel.
Keypt hryggjarborð, röntgentæki og
smásjá. Við höfum smám saman, í yfir
áratug, byggt upp. Allir vita hvað þeir
eru að gera og við höfum ekki þurft
meira bakland fyrir þessar aðgerðir,“
segir hann.
„En ég tek þær aðgerðir sem þurfa
samstarf við brjóstholsskurðlækna eða
heila- og taugaskurðlækna út til Svíþjóð-
ar.“
Freyr Gauti sér fyrir sér að sjúkra-
húsið á Akureyri geti enn vaxið, sér-
staklega litið til valaðgerða. „Þar er ekki
mikið flæði bráðaaðgerða. Þar er stöðug
mönnun, góðir svæfingalæknar. Það hef-
ur sýnt sig í gegnum tíðina að sjúkrahús-
ið hefur staðið sig vel þegar ráðist hefur
verið í átak í valaðgerðum. Ég tel að
sjúkrahúsið sé hæfilega stórt fyrir slíkt.“
Hann er ekki óvanur uppbyggingu
því frá árinu 2019 hefur hann stýrt
bæklunarlækningastofu Örebro-há-
skólasjúkrahússins. „Örebro er yngsta
háskólasjúkrahúsið í Svíþjóð. Þar vildu
þau byggja upp starfsemina, sérstaklega
varðandi slysalækningar, vegna stað-
setningar í miðri Svíþjóð. Ég var þá í
Malmö en hefði verið tvisvar til þrisvar
hjá þeim á ári og hjálpað þeim með þess-
ar fáu hryggjaraðgerðir. Núna gerum við
um 250 aðgerðir á ári.“ Svo kíkir hann á
Karólínska.
„Í Malmö gerði ég aðgerðir á börn-
um með flókna hryggjarsjúkdóma. Ég
vildi halda því við og hef nú í hálft ár
verið 50% þar, 2-3 daga í viku en hina í
Örebro.“ Það er alveg ljóst að margt er á
prjónunum hjá Frey Gauta – eða réttara
sagt: skurðarhnífunum.
„Ég hef haft svo mikið að gera og
fengið svo mörg tækifæri til að læra og
gera skemmtilega og krefjandi hluti. Það
er bæði gaman og dýrmætt fyrir mig að
geta komið til Akureyrar og hjálpað til.“
Horfir fram á betri tíma
37 ára tveggja barna móðir lýsir því hvernig hún datt úr klifurgrind á harðan
steininn 7 ára gömul, missti andann, var rifin upp og send í myndatöku. Þar
hafi brákaðir hryggjarliðir sést en ekki verið ljóst fyrr en við myndatöku eftir tvö
bílslys síðar á lífsleiðinni að þeir höfðu ekki gróið. Hryggskekkjan hafi verið orðin
mikil og eyðing í bakinu og hryggurinn að falla saman. Setja hafi þurft bein í bak-
ið.
„Ég vissi ekki fyrir aðgerðina að til væri beinabanki. Nú ber ég bein úr annarri
manneskju í mér,“ segir hún við Læknablaðið tveimur mánuðum eftir aðgerðina
á Sjúkrahúsinu á Akureyri. „Ég var orðin algjörlega óvinnufær vegna verkja og
hef ekkert unnið síðan í fyrravor. „Það er mjög erfitt fyrir mig þar sem ég er virk
manneskja.“
Nú bíði hún eftir að komast í vinnu á ný. „Já, það styttist í það,“ segir hún von-
góð við Læknablaðið. Verkirnir hafi að lokum kallað á stóra verkjalyfjaskammta.
„Ég tók 8 parkódín forte á dag, tramadól og gigtarlyfið Celecoxib, svo ég var á
miklum verkjalyfjum.“ Hún komst ekki að hjá verkjateymi á Landspítala og því
sá heimilislæknir hennar um verkjastillinguna. Hún hefur einnig verið á lyfjum
vegna Crohns-sjálfsofnæmissjúkdóms, þjáðst af endómetríósu og gigt. Nú eftir að-
gerð sé hún nær verkjalyfjalaus.
„Ég er nánast hætt á öllum verkjalyfjum. Er á paratabs og taugalyfinu
gabapentin kvölds og morgna. Fékk flott niðurtröppunarskema sem ég fylgdi og
hef ekki fundið nein fráhvörf. Ég er orðin betri núna en fyrir aðgerðina. Já, ég er
betri,“ segir hún. „Ég geri ekki ráð fyrir að þetta sé aðgerð til eilífðar en vonast til
að þeir hafi náð að leysa vandann í ágætis tíma.“
Hún hlakkar til að lifa lífinu eins og hún gat gert áður. „Geta til dæmis farið í
göngutúra án þess að vera að drepast á eftir,“ segir hún. „Nú eru að koma 8 vikur
frá aðgerðinni. Mér skilst að ég hafi hækkað um 3 cm. Ég hallaði alveg til hægri.
Svo var komin mikil kryppa. Núna stend ég teinrétt.“
Kona á fertugsaldri gekkst undir aðra aðgerðina með nýju hryggsjánni nú í janúar. Freyr Gauti lýsir því hvernig
hann notar stög til að skrúfa hrygginn í rétta stöðu, brýtur upp bein og malar og leggur yfir hryggbolinn. Hann
raði hryggnum upp með hálfgerðum legókubbum úr beini. „Það sést á L2-L4 á myndunum,“ bendir hann á.