Mímir - 01.04.1962, Side 11
Mí MIR
B L A Ð F É L A G S STÚDENTA í ISLENZKUM F R Æ Ð U M
Rilnefnd: ASalsteinn Davíðsson,
DavíS Erlingsson, Páll Rjarnason
IjETTA blað er gefið út af MÍMI, félagi stúdenta í íslenzkuni frœðum við
Háskóla Islands, og er samnefnt því. Það er gefið út í tilefni af 15 ára afmæli
félagsins, en jafnframt er gert ráð fyrir, að framhald verði á útgáfunni og setji
nemendur í íslenzkum fræðum saman hlað, a. m. k. einu sinni á ári hverju.
f ýmsum öðrum deildum liáskólans hafa nemendur lengi lialdið uppi útgáfu
hlaða, og eru þau sum liver inyndarleg rit. Hefur það ekki þótt vansalaust, að
í einu deild háskólans, þar sem íslenzk fræði og bókmenntir eru beinlínis við-
fangsefni nemendanna, skuli slíkt ekki vera gert. Námsvinnu nemenda í ís-
lenzkum fræðum er og þann veg háttað, að þar ber margt fvrir augu, sem þarf-
legt er, fróðlegt og skemmtilegt að komi fyrir sjónir annarra, sem svipuðum
hugðarefnum sinna. Einnig er alkunna, að ýmsir nemenda í fræðunum haía
ritstörf og útgáfu að atvinnu síðar á ævinni, og ætti því blað eins og þetta að
vera liollur vettvangur til þjálfunar í slíkum viðfangsefnum jafnframt námi.
Geta nemendur birt liér greinar um hagsmunamál sín og áhugamál samhliða
greinum um fræðileg efni. Oft hefur verið rætt um það,
að gefa þyrfti út ritgerðir til fyrra hluta prófs þeim til
glöggvunar og viðmiðunar, sem eiga eftir að leysa slík
viðfangsefni, og öðrum til fróðleiks. Hér er nú hafizt
handa um þetta með því að birta kafla úr slíkri ritgerð
í bókmenntasögu. Slíkar ritgerðir lieilar eru liins vegar of langar fvrir lítið
hlað. f þeim er oft girnilegt efni, og má vænta meira af Jiessu tæi síðar.
UM BLAÐIÐ
Ritnefndin væntir þess, að það form, sem blaðinu hefur verið valið, reynist
heppilegt. Útgáfu þessari er þar með ýtt af stað.
3