Mímir - 01.04.1962, Blaðsíða 14

Mímir - 01.04.1962, Blaðsíða 14
Fundahöld, og skommtanir Forfíir á sögustöSvar og landsins um peninpahjálp til þess að koma út prófrilgerðum, en hún fékkst ekki, og hefur síðan ekkert orðið af útgáfu, livorki á prenti né í öðru aðgengi- legu formi. Má ef til vill líta á þetta afmælisblað sem fyrstu efndir útgáfu af hendi félagsins. Fundargerðir sýna, að oft hefur verið fjörugt á fundum félagsins á fyrstu árum þess og umræður stundum heitar. Fundir voru þá alloft haldnir, og menn gerðu þar fleira en ræða nauðsynja- og alvörumál. Stundum voru lesin upp frumort ljóð eða sögur, þýðingar nemenda á verkum erlendra höfunda, farið var með ýmisskonar skop og léttmeti. Einkum er það vert athygli, að menn fluttu þarna tilraunir sínar til listaverka, ljóð og sögur. Hefur slíkt ekki átt sér stað á fundum félagsins mörg síðari árin, og þetta sýnir, að aldarhátturinn hefur hreytzt. Þegar nokkur ár voru liðin frá stofnun félagsins, virðist hafa dofnað yfir því til muna, og virðist það hafa verið dauflegast í nokkur ár eftir 1950. I seinni tíð liefur aftur glaðnað til á ýmsan hátt. Félagið hefur tekið að halda kvöldvökur með kaffidrykkju, upplestri og fleiru til yndis og skemmtunar. Ásamt Félagi íslenzkra fræða hefur Mímir staðið að haldi rannsóknaræfinga. Hafa margar góðar rannsóknaræfingar verið haldnar, síðan þær voru teknar upp að nýju. Merkur þáttur í starfi félagsins eru kynnisferðir á sögustöðvar. Þegar á fyrsta starfsvetri var hafizt handa um að útvega fé í þessu skyni, þar sem hér væri um að ræða ómissandi þátt menntunar í sagnfræði. Fékkst framlag frá mennta- málaráðuneytinu til slíkra ferða, og voru farnar nokkrar ferðir fyrstu árin; síðar var ferðastyrkurinn tekinn af félaginu, og féllu þá kynnisferðir þessar niður alllengi, þar til stuðningur fékkst á ný, og var farið á sögustaði í Rangár- þingi veturinn 1960. Haustið eftir var ferð í Viðey og síðar sama vetur á sögustaði í Árnessþingi. Sumarið 1961 var farin ferð kringum Snæfellsnes, út í eyjar á Breiðafirði og lieimleiðis um Dali og Borgarfjörð. Sú ferð var farin án stuðnings utan að. Allar þessar ferðir þóttu takast með ágætum, og voru kennararnir Einar Ólafur Sveinsson, Guðni Jónsson og Þórhallur Vilmundarson leiðbeinendur og skýrendur. Horfur eru á, að hagur félagsins hlómgist í framtíðinni og því takist að vinna meðlimum sínum æ meira nagn. Aðstaðan batnar með auknum nemendafjölda. Fámenni námsgreinarinnar og það, hve fáir hafa tök á að sinna námi eingöngu um námstímann, en vinna ýmis stiirf samtímis því, hefur einkum staðið félaginu fvrir þrifum. Fyrsti formaður Mímis var Finnbogi Guðmundsson menntaskólakennari, en síðan hafa eftirtaldir menn gegnt formennsku í félaginu sitt árið hver í þessari röð: Gunnar Finnbogason, Runólfur Þórarinsson, Ólafur Halldórsson, Aðalgeir Kristjánsson, Grímur M. Helgason, Sigurður V. Friðþjófsson, Jón Böðvarsson, Hannes Pétursson, Hallfreður Örn Eiríksson, Ingvar Stefánsson, Árni Björnsson, Ölafur Pálmason, Einar Sigurðsson, Heimir Steinsson. Núverandi formaður er Svavar Sigmundsson. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Mímir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.