Mímir - 01.04.1962, Page 16
ko.nar stofnunum á Norður-
löndum. Úr þeim ráðagerðum
liefur, sem kunnugt er, ekki
orðið. Hið eina, sem benda má
á til þessa, er starfsemi hand-
ritanefndar háskólans, sem mun
hafa verið sett á laggirnar 1955
í því skvni að hefja vísindalega
útgáfu á fornritum og Ijós-
prentun liandrita. Hefur nefnd-
in fengið styrk frá alþingi og
þrjú merk rit þegar hirzt á
hennar vegum með þeim frá-
gangi, sem vísindaútgáfum hæf-
ir. (Sbr. Saga Háskóla Islands,
bls. 274).
Háskóli íslands átti hálfrar ald-
ar afmæli hinn 17. júní 1961,
og var ákveöið að halda afmælið
hátíðlegt í byrjun októbermán-
aðar, svo sem mönnum er enn
í fersku minni. Það er gamalt
mál, að liátíð sé til heilla bezt,
og því þótti heimspekideild-
inni sem þá mundi hentugur
tími til þess að bera fram óskir
sínar um stofnun í íslenzkum
fræðum í fullkomnari mynd en
áður, stofnun, sem bætti úr
hrýnni þörf og yrði nokkurs
konar afmælisgjöf ríkisstjórn-
arinnar og alþingis til háskól-
ans. Málið var lagt fyrir fnnd
í heimspekideild 17. jan. 1961,
og voru prófessorarnir Guðni
Jónsson, þáverandi deildarfor-
seti, Einar Ól. Sveinsson og
Halldór Halhlórsson kjörnir í
nefud til þess að undirbúa mál-
ið. Skilaöi nefndin áliti sínu og
tillögum á deildarfundi 9. rnarz.
Þar voru tillögurnar ræddar
allrækilega og að lokum sam-
þykktar að mestu óbreyttar og
deildarforseta falið að leggja
þær fyrir rektor og háskólaráð. — Erindi heimspekideildar
var lagt fyrir fund í háskólaráði 24. marz. Urðu um það
allmiklar umræður, og að þeim loknum var samþykkt að
veita erindinu meðmæli liáskólaráðs. Kosin var þriggja
manna nefnd, prófessorarnir Armann Snævarr rektor, Guðni
Jónsson fulltrúi heimspekideildar og Magnús Már Lárusson
fulltrúi guðfræðideildar, til þess að athuga tillögurnar nán-
ar og ganga endanlega frá þeim í hendur ríkisstjórnarinnar.
Gerði nefndin fáeinar breytingar á orðalagi, einkum með
tillili til þess, að háskólaráð var nú orðið aðili að tillögun-
um í stað lieimspekideildar. Þess skal og getið, að nefndin
valdi hinni væntanlegu stofriun nafnið Handritastofnun ís-
lands, en um það hafði heimspekideild ekki komið sér sam-
an um ákveðna tillögu, aðeins stungið upp á nokkrum nöfn-
um, sem til greina gætu komið og þó öðrum en þeim, sem
nefnd háskólaráðs valdi. Erindið var sent menntamálaráðu-
neytinu 28. rnarz 1961, og fer það hér á eftir:
UM STOFNUN 1 ISLENZKUM ERÆÐUM.
Háskólaráð telur vel til fallið, að 150 ára afmælis Jóns Sig-
urðssonar og 50 ára afmælis Háskóla Islands verði nt. a.
minnzt með þeim hætti, að komið verði þegar á þessu ári á
fót rannsóknarstofnun í íslenzkum fræðurn með því sniði,
sem að neðan greinir.
7. Nafn.
Stofnunin heitir Handritastofnun Islands.
2. Tilgangur.
Tilgangur stofnunarinnar er að vinna að aukinni Jtekkingu
á máli, hókmenntum og sögu íslenzku Jijóðarinnar fyrr og
síðar. Þetta geri stofnunin með öflun og varðveizlu gagna
um |>cssi efni, rannsóknum á heimildum um þau, útgáfu
handrita og fræðirita og með liverju öðru, sem stutt getur
að þessu markmiði.
3. Stjórn.
Yfirstjórn stofnunarinnar sé falin nefnd manna, sem í séu
þrír prófessorar við Háskóla Islands, sem kosnir séu af há-
8