Mímir - 01.04.1962, Qupperneq 27

Mímir - 01.04.1962, Qupperneq 27
1) Sumir telja æskilegt, að unglingar geri sér grein fyrir uppruna orða, um leið og þeir læra að stafsetja þau. Þetta kann að vera rétt um lítinn hóp greindustu nemenilanna, en það er fjarri sanni um allan þorra þeirra. Annað þýðingarmeira námsefni lilýtur að sitja fyrir. 2) Ymsir segja: „Lítum á mál eins og ensku. Stafsetning hennar er enn fjær framburði en stafsetning íslenzkunnar, og ber ekki á, að það stándi henni fyrir þrifum“. Við þetta er margt að athuga. Islenzkan er töluð af i>r- fáum og á í vök að verjast. Við þurfum því að forðast í lengstu lög, að hér skapist sá regin- niunur í meðferð málsins milli mcnntaðra manna og lítt menntaðra, sem alls staðar ríkir með stórþjóðunum. Þess vegna megum við ekki leggja neinar óþarfa hindranir í veg þeirra, sem eru að læra notkun málsins, hversu óviðfelldnar sem okkur kunna að þykja hinar nauðsynlegu breytingar, meðan við erum að venjast þeim. Með enskumælandi mönnum hafa einnig risið upp margir, sem hafa viljað gerbreyta stafsetningu, og bar þar hæst G. B. Shaw, meðan hann lifði. Ég las nýlega rit eftir kunnan málvísindamann, próf. Stephen Ullman. Hann drepur þar á þessi mál og telur, að ekki verði komizt hjá því að gera einhverjar breytingar á stafsetningu enskunnar, en nefnir þó nokkrar veigamiklar röksemdir gegn breytingum. Ég ræði þær ekki nánar, en það er athyglisvert, að engin þeirra á við um íslenzku. Helztu röksemdirnar eru útbreiðsla og mállýzkumunur, og ennfremur hinar öru breytingar enskunnar og þróun til einsatkvæðisorða (Sbr. Stephen Ullman, Words and their Use (London 1951), 20.). 3) Ég hliðra mér hjá að ræða röksemdir um fegurð. I þessu efni finnst mönnum það yfirleitt fagnrt, sem þeir eru vanir. Það er ekki ætlunin að leggja hér fram ákveðnar tillögur í ölluin atriðum, en þó get ég ekki stillt mig um að benda á þær breyt- ingar, sem ég tel, að hefðu mestan ávinning í för með sér og heri því tvímælalaust að gera í næsta áfanga. Varkárni er að vísu góð í þessu sem öðru, en of mikil liófsemi er hættuleg. Það borgar sig örugglega að ganga svo langt í breytingum, að menn geti orðið sæmilega ánægðir með þær alllangan tíma, en þurfi ekki að fara að breyta reglunum strax aftur. Það mun naumast ofmælt, að allt að því helmingur af þeim tíma, sem varið er til staf- setningarkennslu í miðskólum, fari til að kenna ritun tveggja stafa, y og z, sem þó eiga sér engin samsvarandi hljóð í talmálinu. Þessa stafi vil ég báða afgreiða með stuttri reglu: „y og z eru nú aldrei rituð í íslenskum orðum“. z liygg ég, að yrði fáum harmdauði. Regl- um um ritun hennar er alls ekki fylgt nema af litlum hluta þjóðarinnar. Börnum þarf ekki að kenna hana, og á skyldunámsstigi læra aðeins greindustu unglingarnir að rita hana rétt. Hinir, sem ekki eru eins vel af guði gerð- ir, læra raunar að skrifa stafinn og nota liann venjulega óspart á prófum, en eru sjaldan svo heppnir að setja hann á réttan stað. Sem betur fer Iiætta flestir fljótlega aftur að nota z, og svo er raunar um marga mennta- menn líka. Flestir eru þessvegna samþykkir því að fella niður z. Þó hefur sú fáránlega málamiðlunartillaga komið fram að leyfa z að haldast í stofni orða, þótt liún yrði felld niður í endingum sagna. Þetta væri ömurlegt misræmi og nær vonandi ahlrei fram að ganga. Nokkuð öðru máli gegnir um y. Að vísu er mjög erfitt að læra að skrifa það rétt, enda getur syo farið, að jafnvel Jærðustu menn greini á um, livað rétt sé. Þó hefur vaninn megnað að gera úr því eins konar goð hjá miklum hluta þjóðarinnar. Mér virðist mál til komið að steypa þessu goði af stalli. Hljóðið er liorfið úr málinu fyrir nokkrum öldum, og stafsetningin verður að fylgja hljóðbreyt- ingurn eftir, þótt ástæðulaust sé að gleypa við þeim, sem ekki eru um garð gengnar. Veiga- mesta riiksemdin gegn því að fella niður v 19

x

Mímir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.