Mímir - 01.04.1962, Page 38

Mímir - 01.04.1962, Page 38
FULLTRÚI ANDANS: Eg held á lampanuin Dharma. ÚTFLYTJANDINN (bendir á nunnuna [/>. e. Ljónu klædda kuflinum]): Og frúin með leyfi? FULLTRÚI ANDANS: Ilún hefur feingið köllun til að taka lamp- ann. Má vera að hún sé sú sem á eftir að finna maní-gini6teininn. 128,—129. hls. Lampinn Dliarma og maní-gimsteinninn. Af einhverri rælni fór eg að fletta þessum er- lendu orðum upp í alfræðibók, eins og eg hafði áður — reyndar árangurslaust — leitað að ærhornarispunni h já Blöndal. Sennilega hafa flestir lesendur leiksins ekki búizt við sérstakri merkingu þessara orða. Áhorfandi í leikhúsi leitar þeirra vitanlega ekki í bók. Lampi án sérstaks nafns getur líka vcrið nógu golt tákn, og gimsteinninn, sem kannski finnst aldrei, er sjálfsagt jafn- gott lífsmið, hvað sem liann lieitir. Samt fór það svo, þegar eg hafði skoðað lítillega þessi tvö tákn og nöfn þeirra, sem eru áreið- anlega ekki valin út í bláinn, að mér fannst minni frumstæðu skilningsþörf svalað ögn betur en áður var, og ósjálfrátt komu mér í liug tvær Ijóðlínur eftir Guðmund Böðvars- son: / vegarins ryki lá rauSur steinn, — vi8 rifium þar hjá, eins ug gengur. II Samkvæmt því, sem lesa má í alfræðibók- um og trúarlexikonum, er dharma eitt hið yfirgripsmesta liugtak í sánian lögðum hók- menntum á sanskrít. Það getur táknað rétt, réttlæti, skyldu, sið og víst sittlivað fleira, sem mér er ofvaxið að rekja. En í indverskum trúarbrögðum mun dharma einnig þekkjast persónugert og táknar þá guð réttlætis og dómara hinna dauðu. Andstæða þessa Dharma er liöfðingi ranglætis, sem kallaður er Adharma. Þessa persónugerving dharma sem annars afls í tvíhyggjutrú, held eg, að rétt sé að hafa í huga með tilliti til þess, sem á eftir fer. Maní var persneskur trúarbragðahöfundur á 3. öld e. Kr. Við hann er kennd Manítrú eða maníkeismi, sem hann vár höfundur að. Þetta eru trúarbrögð og heimspekikerfi í senn. Maní skýrir ekki aðeins liinn æðsta helgidóm, held- ur einnig tilurð heimsins. Maníkeisminn er ofinn þáttum, er suma má rekja til babýl- onskrar goðafræði, en aðra til Persatrúar eða Zaraþústratrúar, Gyðingatrúar og kristin- dóins. Hugmynd Manís var að skapa alls- herjartrúarbrögð, er fælu í sér kjarna allra trúarjátninga. Guðdómurinn er einn, hvernig sem menn ncfna liann eða skilgreina. Það er líkt og Guðmundur Friðjónsson kvað fyrir munn Þórhalls biskups Bjarnarsonar: A hátypptu fjallinu menn geta rnœtzt, er margs konar einstigi ganga. Afi endafiri þrœtu urn liismi og hjóm þeim hugnast nú takmarkifi sama lijá Einurn, sem skiptist vifi orfimynda hljórn í Alföfiur, Drottin og Brahtna.1 Gildastur þáttur í trúarkenningu Manís er dúalismi eða tvíhyggja og er hér komin úr Zaraþústratrúnni, en er auðvitað í einhverri mynd sameiginlegur þáttur allra trúarbragða. Eg get ekki stillt mig um að taka upp orð- rétla tilvitnun um tvíhyggju maníkeismans og heimsmynd úr þeirri alfræðibók, sem fyrst varð fyrir mér og kveikti þessar hugleiðingar: Mani ... frenikoui med en dualistisk Lære: et Lysets og ct Merkets Rige staar over for liinanden fra Evighed og til Evighed. Til Kamp mod Morket skahte Gtid Urmennesket, som imidlertid blev overvundet. Siden hlev han hefriet af en Lysaand, men en Del af hans Lys blev tilhage, og af dette Lys, blandet ined i) Skírnir 1917. Erindið hefur brenglazt hæði í Kvæðuin 1925 og Ritsafni Guðm. Friðjónssonar IV 1955. 30

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.