Mímir - 01.04.1962, Page 42

Mímir - 01.04.1962, Page 42
illi lotningu. Segir skáldið, að vifí munum kyssa konungleg spor hans, sem stígur á kjöltu móður okkar, en hin aldna fjallkona breiði fagnandi út faðminn á móti honum og j>akki lionxim af innstu rót j>á elsku og virðingu, sem henni sé nú sýnd. Þá ávarpar skáldið fjall- konuna og biður hana skarta sínum fegursta skrúða og lieilsa gesti sínum með djörfung. Segir skáldið hana þekkja konunglega lotn- ingu, þótt ellileg sé, og biður hana að faðma að sér föður sinn. Því næst snýr skáldið orðum sínum aftur til konungs og mælir á jxessa leið: Stíg nú inn til vor, faíSir fús, fylgjur þínar oss blvssun valda, vort er hjarla þitl veizluhús, vonin og elskan salinn tjalda. Minna jxessar línur mjög á Konungsminni eftir séra Matthías, þar sem stendur: Sjá liástól þinn. vor himinfjöll, og h jarta vort, er konungshöll þér býr. Þá er konungur beðinn að líta sína „hollu drengi“, sem lengi hafi elskað og lotið dönsk- um konungum, og hann er einnig beðinn að virða fyrir sér Island eða réttara sagt fjall- konuna, jxar sem hún situr „sveipuð brúsandi Atlantshafi", einmana og öllum öðrunx þjóð- um fjarri. Nú muni hún koma og heilsa konungi sínum fagnandi. Hér hefst því annar hluti kvæðisins. Skáldið teflir fram landinu sem lifandi veru í líki fjallkonunnar, og hún ávarpar konung sinn. Fyrst býður hún hann velkominn. Hún biður sólina og skína á skaut sitt hvítt, biður gljúf- ur og fossa að skemmta konungi, úrga hájökla anda blítt og landvættir Ijx'ika upp höllum dverga. Hiin hiður „stálklæddan vættinn“ að standa á Ingólfsfjalli og litast um og sjá kon- ung og kristna jxjóð. Segir hún, að sér verði starsýnt á konunginn, „virðulegan og elsku- ríkan“; guð hafi ekki áður leyft sér að sjá þvílíkan gest á Þingvelli. Hxxn segir, að fram fyrir konunginn muni hún leiða sonu sína og dætur og fela fátæka þjóð sína á náðir guðs og konungsins. Síðan segir: Sjá nú, hvaS ég er beinaber, brjóstin visin og fölar kinnar, eldsteyptu lýsa hraunin hér hörSum búsifjum œvi minnar; Kóréma mín er kaldur snjátr, klömbrur hafísa rnitt aSsetur, þrautir mínar í þúsund ár þekkir guS einn og taliS getur. Þetta er átakanleg lýsing, dregin hörðum, miskunnarlausum dráttum, sem jafnan eru einkenni á skáldskap Bólu-Hjálmars; heiting orðanna er hvöss, og skarpur skilningur og innileg txilkun samfara karhnannlegu væmnis- leysi gerir jxessar línur að tærri ljóðlist, eins og hixn verður bezt. Þjóðin er saman komin konungi til heiðurs, ungir menn glíma og „fljóðin ungu fingranett“ fiétta honum blómkrans. Síðan segir Fjall- konan: Fegin ég vildi fylgja þér, faSir, um bláa storSar hringa; ég méi um aldur hírast hér og haföldur láita á mér springa. Svo kemur að kveðjuorðum fjallkonunnar: Pigg ni't rninn hreiruin kœrleiks koss, kveSjan tárvota mín er þessi: HéSan vér væntum heilla oss, hilmi vorn styrki guS og blessi! Að lokum biður svo fjallkonan konunginn lengi lifa og segir, að nafn hans verði letrað óafmáanlegu letri á sjálft landið. Hér endar 34

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.