Mímir - 01.04.1962, Side 45

Mímir - 01.04.1962, Side 45
notar orðiö hagfræði sem þýöingu á orðinu statistik, og benda allar líkur til, að hann hafi búið |>að til sjálfur. Er það þannig þar að sjálfsögðu í alll annarri merkingu en okk- ur er tamast að leggja í það nú, og í þessari merkingu var það síðan töluvert notað. Fræðigreinin ökonomia var þá svo illa á vegi stödd að eiga sér ekkert heiti á íslenzku, sem almennt væri viðurkennt, og var svo lengi enn. Margar tilraunir höfðu verið gerðar til að íslenzka heiti Iiennar og engin tekizt nema rétt vel, en einna helzt hafði lialdið velli orðið þjó&megunarfrœði. Árið 1880 kom út eftir séra Arnljót Ólafsson fyrsta bókin, sem rituð var á íslenzku um almenna hagfræði, og nefndist hún Au&frw&i. Var það orð síðan töluvert notað sem heiti á fræðigreininni, og einnig orðið vi&skiptafrœSi, sem Jón Ölafsson, ritstjóri og alþingismaður, mun liafa horið einna mesta ábyrgð á. Öll þessi heiti á sömu fræðigreininni urðu svo til þess, að nokkur ruglingur varð á, og dróst orðið hagfræði síðan inn í hann, því að um náskyldar greinar var að ræða, sem oftast var fjallað um í sömu andránni á opinberum vettvangi. Áttuðu margir sig ekki á því, að um tvær fræðigreinar væri að ræða, og lykt- aði þessu því svo, að stytzta og munntamasta orðið, hagfræði, vann sigur í samkeppninni og varð að lokum almennt notað í daglegu máli sem sameiginlegt hciti á báðum fræði- greinunum, ökonomiu og statistik.1) 1) Sjá nánar um þetta efni greinina Islenzk hag- fræði eftir Gylfa Þ. Gíslason í tímaritinu Ur þjóðar- húskapnum. útg. Framkvæmdabanki íslands, Rvk., 2. hefti, marz 1956. Þetta hefur orðið nokkuð snemma, og sést það t. d. á því, að í Supplementer til islandske Ordhoger, Tredje Samling, eftir Jón Þorkels- son, sem út kom í Reykjavík 1890—97, er orðið hagfræði þýtt svo: „(Statistik) Stats- okonomiu. Jón Þorkelsson hefur því greini- lega þekkt báðar merkingarnar, en talið þýð- iuguna Statsökonomi (þ. e. þjóðhagfræði, hagfræði) öllu réttari. Einnig má benda á, að í ltinni íslenzk-dönsku orðabók Sigfúsar Blöndals, sem út kom 1920—24, er orð’ið bæði þýtt með Nationalökonomi og Statistik, en einnig gefin þýðingin hagsýni eða ökonomisk Indsigt, sem virðist vera einhver aukamerk- ing. Þess ber þó að geta, að ekki er fullkom- lega treystandi á orðabók Sigfúsar Blöndals sem heimild um nákvæmt málfar þess tíma, sem hún var samin á, því að við samningu hennar var leitað fanga í ritað mál töluvert aftur í tímann. Öllu traustari heimild í því efni virðist mega telja hina íslenzk-ensku orða- bók Geirs Zoega, sem út kom 1922 (hér farið eftir 3. útg. 1951, sem er Ijósprentun 2. útg., 1922), en þar er orðið hagfræði þýtt eingöngu með political economy (enska heitið á hag- fræði), svo að af því virðist mega draga þá ályktun, að þá liafi sú merking þegar útrýmt hinni eldri. Fleiri dæmi mætti tína til úr íslenzkum orðabókum og öðrum slíkum heimildum um þetta atriði, en er þó ekki ástæða til að lialda lengra í því efni, þar sem fæstum mun bland- ast hugur um, að merking orðsins hagfræði í íslenzku nútímamáli sé hin sama og erlenda orðsins ökonomia. Um statistik nota íslenzkir hagfræðingar hins vegar nú tölfrœði, og er það orð m. a. notað í viðskiptadeild Háskóla Islands, þar sem hún er kennslugrein. Verður ekki séð, að nokkur rök mæli á móti því orði, enda er það munntamt og hefur þegar verið tekið upp af þeirri stétt manna, sem mest fjallar um þessi efni. Þá má og geta þess, að í nútímamáli eimir enn eftir af liinni gömlu merkingu orðsins hagfra-ði, þar sem eru orðin hagstofa og liagskýrsla, en að baki þeim orð- 37

x

Mímir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.