Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 8
Það má með sanni segja að við í Lýðheilsu-
félaginu höfum byrjað skólaárið bjartsýn og
jákvæð, eftir óvenjulegt skólaár 2019-2020.
Eitt af því fyrsta sem við gerðum var að
hanna nýtt einkennismerki Lýðheilsu-
félagsins, og vil ég þakka Önnu Karen
Richardson fyrir sína listrænu hæfileika og
önnur vel unnin störf.
Við hófumst strax handa við skipu-
lagningu Bangsaspítalans, sem haldinn
er í september ár hvert eins og kunnugt
er. Þar sem óvissa í samfélaginu vegna
yfir standandi heimsfaraldurs jókst mjög
á haust mánuðum síðasta árs ákváðum
við að fresta Bangsaspítalanum fram á
vor, með von um betri tíð. Við sátum þó
ekki aðgerðar laus heldur fórum í mikla
vinnu til að geta keypt frekari búnað fyrir
framtíðarbangsalækna. Við fengum styrk
til að geta $árfest í eyrnaskoðunartækjum
sem munu klárlega nýtast vel þegar
Bangsaspítalinn verður loksins haldinn.
Þau eru á leið til landsins þegar þetta er
skrifað og verða glæsileg, litrík viðbót við
tækjabúnaðinn sem til er nú þegar.
Eins og flestir fögnuðum við því þegar
hið ótrúlega ár 2020 leið undir lok, og
hófum við nýja árið af miklum krafti
með hressandi $allgöngu í Mosfellssveit.
Verkefnið Sjálfselsk hefur það að markmiði
að efla og bæta geðheilsu læknanema, og var
ferðin upp á Helgafell á vegum þess. Boðið
var upp á hnetur, súkkulaði og orkustykki, á
meðan veðurguðirnir buðu upp á hvassviðri
og snjóbyl. Við létum það þó ekki á okkur fá
og fór fríður tuttugu manna hópur ásamt
þremur hundum alla leið upp á topp.
Í marsmánuði var svo komið að virkilega
áhugaverðum viðburði sem haldinn var á
Zoom. Við fengum til liðs við okkur Unu
Emilsdóttur, lækni og fyrirlesara, sem hefur
brennandi áhuga á umhverfislæknisfræði
og fræddi hún okkur um það málefni. Hátt
í fimmtíu manns fylgdust með hennar
kynningu á málefninu sem loks er að fá
aðeins meira pláss í umræðunni.
Nú í apríl töldum við í Lýðheilsufélaginu
okkur vera komin með fullkomna lausn
á Bangsaspítalamálinu mikla, og vorum
við komin á lokasprettinn í skipulagningu
Bangsaspítala með breyttu sniði. Í stað
þess að halda viðburðinn á heilsugæslum
eins og venjan er ætluðum við að senda
bangsalækna á $ölmarga leikskóla
höfuðborgarsvæðisins, og þannig koma
í veg fyrir mikinn missi fyrsta árs nema
að fá ekki að taka þátt í viðburðinum. Á
síðustu stundu varð mikil aukning smita í
leikskólum og skólum höfuðborgarsvæðisins
og því töldum við öruggast að bíða með
viðburðinn enn um sinn. Við stöndum hins
vegar í þeirri trú að næsta haust, þegar þorri
landsmanna verður bólusettur, getum við
haldið Bangsaspítalann hátíðlegan á ný.
Mikil endurnýjun varð í félaginu síðasta
sumar, og voru sjö af níu meðlimum nýir
og komu með ferskan hug og margar
hugmyndir. Mig langar að þakka fyrsta árs
fulltrúum okkar, Andreu Kolbeinsdóttur
og Guðmundi Dagnýjarsyni fyrir vel unnin
störf í öllu sem við kom skipulagningu
Bangsaspítalans. Þriðja árs fulltrúar okkar,
Margrét Kristín Kristjánsdóttir og Högna
Ingunnardóttir Oddsdóttir eiga einnig hrós
skilið fyrir vel unnin störf. Að lokum vil ég
þakka fulltrúum okkar á klínísku árunum,
Sif Snorradóttur, Örnu Ýr Karelsdóttur,
og reynsluboltanum Gísla Gíslasyni fyrir
frábært samstarf og skemmtilegt ár.
6
Eygló Dögg Ólafsdóttir
Formaður Alþjóðanefndar 2020–2021
Freydís Halla Einarsdóttir
Formaður Lýðheilsufélagsins 2020–2021
Alþjóðanefnd
Lýðheilsufélagið
Starfsárið 2020–2021 hófst með mikilli
til hlökkun fyrir skipulagningu árangurs-
ríkra nemenda skipta eftir að COVID setti
strik í reikninginn árið áður. Þó varð
fljótt ljóst að bólu setningar yrðu ekki svo
almennar að skiptinám kæmist á fullt skrið.
Annað sumarið í röð gat Landspítalinn
Læknaneminn
ekki tekið á móti erlendum skiptinemum
og voru íslenskir lækna nemar hikandi að
skipuleggja utan lands ferðir á óvissutímum.
Það var því afar ánægju legt að geta sent
íslenskan læknanema í skipti til Þýskalands
í mars 2021, sá fyrsti sem fór út síðan
sumarið 2019. Þegar þessi annáll er skrifaður
er unnið að undirbúningi skiptináms
fyrir tvo íslenska læknanema sem fara
í sumar í skipti nám til Portúgal annars
vegar og Rúmeníu hins vegar. Fyrir COVID
fóru árlega um 15 íslenskir læknanemar í
skiptinám og því nokkuð minni starfsemi
sem fór fram í ár. Þó markar það ákveðin
kaflaskil að senda þrjá nema út og er það
mikil hvatning fyrir komandi starfsár.
Stjórnarmeðlimir Alþjóðanefndar
læknanema hafa nýtt starfsárið í fleiri
verkefni. Í framhaldi af opnun nýrrar
vefsíðu á síðasta starfsári, var síðastliðið
haust opnaður Instagram reikningur
Alþjóðanefndar læknanema. Hvoru tveggja
með það hlutverk að gera upplýsingar um
skipti nám aðgengilegar fyrir læknanema.
Einnig var lagður grunnur að áfram-
haldandi samstarfi við Landspítalann og
Læknadeild Háskóla Íslands með drögum að
endurnýjuðum stofnanasamningum.
Á sumrin fer iðulega stór hluti af
starfsemi nefndarinnar fram. Á þessum
árstíma er tekið á móti erlendum
skiptinemum sem koma hingað í
skiptinám. Í ár gefst þess í stað loksins
tækifæri til að halda bingó Alþjóðanefndar
læknanema en því hefur ítrekað verið
frestað vegna samkomutakmarkana. Bingó
Alþjóðanefndar er ein helsta $áröflunarleið
nefndarinnar. Vinningasöfnun gengur
iðulega vel og hafa vinningslíkur því verið
miklar.
Alþjóðanefnd hlakkar til að aðstoða
enn fleiri ævintýragjarna og námsfúsa
læknanema að komast í skiptinám á
komandi starfsári.