Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 14

Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 14
12 Læknaneminn Skoðun Sjúklingur er áberandi úteygð (exopthalmos) og með hliðartilfærslu á vinstra auga (mynd 1a). Við mat á heilataugum III, IV og VI kemur fram að sjúklingur á erfitt með að horfa upp og tvísýni versnar þegar hún horfir upp og til hægri. Lífsmörk eru innan viðmiðunarmarka og önnur líkamsskoðun ómarkverð. Sunna Rún Heiðarsdóttir Fjórða árs læknanemi 2020–2021 Þórir Auðólfsson Sérfræðingur í lýtalækningum Meðferð og aðgerðarlýsing Fyrir aðgerðina var hannað módel með þrívíddarprentara (mynd 1b). Teknar voru tölvus neiðmyndir og segulsneiðmyndir sem stuðst var við í tölvustýrðri myndleiðsögn meðan á aðgerðinni stóð. Til að tryggja þétta lokun milli ne'ols og heila og tilfærslu æða ríks ve$ar á svæðið var notaður frír flipi. Sjúk lingur fékk fræðslu um fyrirhugaða aðgerð og hugsanlega fylgikvilla. Gerður var skurður frá eyra til eyra (bicoronal) og húðinni af enni flett fram, niður að augntótt og superior orbital taugin frílögð. Beinplata yfir ennisblaði og augntótt var söguð frá og heila himna losuð til að bæta aðgengi. Bak veggur ennisholu var $arlægður og öll slímhúð beggja vegna hreinsuð burt. Beinþakið á augntóttinni var sagað laust og losað frá. Beinið, sem var afmyndað, var þynnt með demantsbor, sárið skolað og öll slímhúð á svæðinu $arlægð. Í kjölfarið var augntóttin endurgerð með beingröftum. Skorinn var upp fremri lærisflipi (anterolateral thigh flap) samsettur úr vöðvafelli og litlum vöðvabita frá vastus lateralis og tengdur á sameiginlegum æðastilk frá circumflex femoralis æðinni (mynd 2). Flipinn var síðan staðsettur ofan við endurgerða augntóttina og vöðvabitinn lagður inn í ne'olið. Í gegnum holu í ennisbeininu var æðastilkurinn frá flipanum þræddur út. Með aðstoð smásjár var gagnaugaæðin (temporal artery) saumuð saman með Ethylon 9.0 og bláæðin tengd með 2,5 mm hring áföstum doppler til að hægt væri að fylgjast með blóðflæði til og frá flipanum fyrstu dagana eftir aðgerð. Beinplatan frá ennisblaði var síðan fest aftur með þunnum járnplötum og skrúfum, húðinni flett yfir svæðið, sinafell saumað og húð heftuð saman. Á mynd 3 má sjá sárið fyrir og eftir ígræðslu flipans. Aðgerðartími var um 6 klukkustundir. Útkoma Bataferlið gekk vel og sjúklingur losnaði við tvísýni og höfuðverkjaköst. Á mynd 4 sést hvernig úteygða og tilfærsla á vinstra auga gekk nánast alveg til baka. Líðan og lífsgæði sjúklings bötnuðu til muna. Fræðileg umræða Meingerð og einkenni Slímblaðra í nefskútum er uppsöfnun slíms (mucus) og þekjufrumna, oftast vegna einhvers konar hindrunar á frárennsli um skútana.3 Þó slímblöðrur séu að jafnaði taldar góðkynja, líkja þær gjarnan eftir hegðun illkynja meins og geta vaxið inn í aðlæga vefi, valdið bein- og mjúk vefs- eyðingu eða tilfærslu. Slímblöðrur myndast gjarnan í kjölfar langvarandi bólgu, æxlis eða áverka til dæmis eftir fyrri aðgerðir á nefskútum.4 Einkenni slímblöðru í Inngangur Slímblöðrur (mucocele) í nefskútum eru til- tölulega sjaldgæfar.1 Þrátt fyrir að þær séu í eðli sínu góðkynja fyrirbæri geta þær vaxið ífarandi, valdið aflögun á aðliggjandi ve$um og haft alvarlegar afleiðingar.2 Hér verður $allað um sjúkling með þekkta slímblöðru í vinstri ennisholu (frontal sinus) sem ítrekað hefur verið reynt að $arlægja. Í kjölfar versnunar á einkennum var ákveðið að framkvæma umfangsmikla skurðaðgerð þar sem blaðran, ásamt slímhúð og aðliggjandi beinvef, var $arlægð og útlitsgalli lagfærður með flipaaðgerð. Aðgerðin var flókin í framkvæmd og krafðist samvinnu ólíkra sérgreina en að henni komu meðal annars lýtaskurðlæknir, háls-, nef- og eyrnalæknir og heila- og taugaskurðlæknir. Tilfelli Sjúkrasaga 66 ára kona með 20 ára sögu um endurtekna myndun slímblöðru í vinstri ennisholu. Hún hefur gengist undir sex aðgerðir sökum þessa, þar af fimm með speglunartækni um ne'ol og eina opna skurðaðgerð. Mikil aflögun hefur orðið á vef umhverfis blöðruna vegna ífarandi vaxtar í augntótt og fyrri aðgerða. Hún leitar nú til læknis vegna vaxandi verkja í vinstra auga, tvísýni og tíðra höfuðverkjakasta. a) MRI mynd af höfði sjúklings fyrir aðgerð. Vinstra auga er útstætt vegna fyrirferðar slímblöðrunnar. b) Þrívíddarmódel af höfuðkúpu sjúklings. Hér má sjá hvernig slímblaðran er vaxin í augntótt. Afleiðingar slímblöðru: Tilfelli af lýtaskurðdeild Mynd 1: Rannsóknir fyrir aðgerð ba
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.