Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 15
13 Afleiðingar slímblöðru
nefskútum eru hægvaxandi og breytileg
eftir staðsetningu og umfangi meinsins.5
Langflestir sjúklingar lýsa verkjum1 en
önnur einkenni eru tvísýni, andlitsbjúgur
og tilfærsla augna.6, 7 Slímblaðra sem vex inn
í höfuðkúpu getur valdið heilahimnubólgu
og leka á heila- og mænuvökva8. Sjúklingar
geta því verið með væg eða alvarleg og
lífshótandi einkenni.
Meðferð
Skurðaðgerð er eina læknandi meðferðin
við slímblöðru í nefskútum en umfang
aðgerðarinnar fer eftir stærð og eðli
meinsins. Ef slímblaðran er minniháttar má
$arlægja hana með holsjá en ef blaðran er
vaxin ífarandi getur verið þörf á um fangs-
meiri aðgerð.7 Þá er blaðran, ásamt öllum
aflöguðum vef umhverfis hana, $arlægð í
opinni skurðaðgerð. Ef $arlægja þarf stóran
hluta af höfði er notaður frír flipi úr eigin vef
sjúklings til enduruppbyggingar en hann
aðskilur einnig heila og ne'ol ásamt því
að lagfæra útlitsgalla.9 Fremri lærisflipi er
mest notaði flipinn í flóknari viðgerðum, til
dæmis enduruppbyggingu á höfði.10 Flipinn
veitir æðaríkan vef sem hægt er að aðlaga
að aðgerðarsvæði og nota til lagfæringar á
heilahimnu. Til þess að græða frían flipa
þarf að styðjast við smásjáraðgerðartækni
en slík aðgerð hefur hingað til ekki verið
framkvæmd hér á landi í þessum tilgangi.
Heimildir
1. Devars du Mayne M, Moya-Plana A,
Malinvaud D, Laccourreye O, Bonfils P.
Sinus mucocele: Natural history and long-
term recurrence rate. European Annals
of Otorhinolaryngology, Head and Neck
Diseases. 2012;129(3):125-30.
2. Aggarwal SK, Bhavana K, Keshri A, Kumar
R, Srivastava A. Frontal sinus mucocele
with orbital complications: Management
by varied surgical approaches. Asian J
Neurosurg. 2012;7(3):135-40.
3. Capra GG, Carbone PN, Mullin DP.
Paranasal sinus mucocele. Head Neck
Pathol. 2012;6(3):369-72.
4. James E, Dutta A, Swami H,
Ramakrishnan R. Frontal Mucocele
causing Unilateral Proptosis.
Medical Journal Armed Forces India.
2009;65(1):73-4.
5. Carvalho BVd, Lopes IdCC, Corrêa JdB,
Ramos LFM, Motta EGPC, Diniz RLFC.
Typical and atypical presentations of
paranasal sinus mucocele at computed
tomography. Radiologia Brasileira.
2013;46:372-5.
6. Zainine R, Loukil I, Dhaouadi A, Ennaili M,
Mediouni A, Chahed H, et al. [Ophthalmic
complications of nasosinus mucoceles]. J
Fr Ophtalmol. 2014;37(2):93-8.
7. Waizel-Haiat S, Díaz-Lara IM, Vargas-
Aguayo AM, Santiago-Cordova JL.
Experience in the surgical treatment of
paranasal sinus mucoceles in a university
hospital. Cirugía y Cirujanos (English
Edition). 2017;85(1):4-11.
8. Voegels RL, Balbani AP, Santos Júnior RC,
Butugan O. Frontoethmoidal mucocele
with intracranial extension: a case report.
Ear Nose Throat J. 1998;77(2):117-20.
9. Parkes WJ, Krein H, Heffelfinger R,
Curry J. Use of the Anterolateral Thigh
in Cranio-Orbitofacial Reconstruction.
Plastic Surgery International.
2011;2011:941742.
10. López F, Suárez C, Carnero S, Martín C,
Camporro D, Llorente JL. Free flaps in
orbital exenteration: a safe and effective
method for reconstruction. European
Archives of Oto-Rhino-Laryngology.
2013;270(6):1947-52.
11. Hannesson ÓB. Smásjáraðgerðir við
augnlækningar. Ný glákuaðgerð kynnt.
Læknablaðið. 1978(64):84-90.
12. Eckardt A, Fokas K. Microsurgical
reconstruction in the head and neck
region: an 18-year experience with 500
consecutive cases. J Craniomaxillofac
Surg. 2003;31(4):197-201.
Mynd 2: Ljósmynd af flipanum, sem
samsettur er úr vöðvafelli og vöðvabita
frá vastus lateralis.
Mynd 3: Hér sést aðgerðarsvæðið fyrir a) og
eftir b) ígræðslu flipans.
a) MRI mynd af höfði sjúklings eftir aðgerð.
Slímblaðran er horfin og augntótt komin í
eðlilega stöðu.
Mynd 4: Sjúklingur eftir aðgerð
b) Ljósmynd af augum sjúklings. Úteygða og
tilfærsla á vinstra auga er
gengin til baka.
Smásjáraðgerðir
Á Íslandi voru fyrstu smásjáraðgerðirnar
framkvæmdar á árunum 1962-1970.11
Síðan þá hefur skurðsmásjá verið notuð
í $ölmörgum sérgreinum, meðal annars
lýtaskurðlækningum. Ígræðsla frírra
flipa er flutningur ve$ar frá einum stað
líkamans til annars og er smásjá notuð til
að tengja æðar flipans við viðtakasvæði.
Einn alvarlegasti fylgikvilli flipaaðgerðar
er drep (necrosis) í ígræddum flipa, en það
má í flestum tilfellum rekja til truflunar
á blóðflæði til flipans.12 Enduraðgerðum
vegna dreps eftir flipaaðgerðir hefur fækkað
verulega samhliða þróun smásjáraðgerða
og eru nú innan við 3%. Þannig hafa
smásjáraðgerðir gagnast í meðferð á flóknu
lýti en einnig bætt horfur sjúklinga. Því er
líklegt að smásjáraðgerðum, sem kre$ast
sérhæfðrar þekkingar og þjálfunar, muni
halda áfram að $ölga.
a
a
b
b