Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 20

Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 20
18 Læknaneminn réttingu og innri festingu og gipsmeðferð því á vissan hátt óþörf. Henni er þó oft beitt fyrstu dagana því það dregur úr verkjum. Verkjameðferð Gera má ráð fyrir verkjum í úlnliðnum fyrstu dagana eftir brotið en mesti verkurinn hverfur á fyrstu 7-14 dögunum. Oftast er þörf á verkjaly$um á meðan mestu verkirnir eru, en verkjatöflur eins og para- setamól og parkódín virka alla jafna vel á verkina sem fylgja einfaldari brotum.8 Við há orkuáverka og eins eftir aðgerðir getur verið þörf á sterkari verkjaly$um um tíma. Nauðsynlegt er að sjúklingur sé það vel verkjastilltur að viðkomandi geti gert ráð lagðar æfingar til að draga úr bjúg og bólgu. Við mikla bjúgsöfnun getur verið nauð synlegt að létta á umbúðum með því að klippa þær upp og ve$a á ný. Fylgikvillar Taugaklemma á miðtaug í úlnliðsgöngum (carpal tunnel heilkenni) Miðtaugin (n. medianus) liggur gegnum úlnliðsgöngin (carpal tunnel). Þrýstingur á hana vegna bólgu, blæðingar eða skekkju í broti getur verið afleiðing úlnliðsbrota en það leiðir til dofa, verkja og jafnvel skyntaps á ítaugunar svæði hennar. Við mikinn þrýsting geta líka orðið truflanir á vöðvum sem hún ítaugar. Við væg einkenni í kjölfar úlnliðsbrots þarf að huga að þáttum sem draga úr bjúg og bólgu eins og að hafa hönd í hálegu og hreyfa fingur. Einnig þarf að gæta þess að umbúðir séu ekki of þröngar. Við alvarlegri einkenni getur þurft að losa um taugina í aðgerð (carpal tunnel release). Hætta er á bráðri taugaklemmu (acute carpal tunnel syndrome) eftir áverka með svæsnum verkjum út í fingur og skyntapi frekar en dofa. Við slíkt ástand geta orðið óafturkræfar skemmdir á stuttum tíma og því brátt að gera að slíku. Ranggróning (malunion) eða vangróning (nonunion) beinhluta Ranggróning eða van gróning beinhluta getur orðið í kjölfar beinbrota óháð meðferð. Meiri hætta er á slíku ef upphafsmeðferð er ábótavant. Þegar brot grær skakkt (ranggróning) og það leiðir til færnisskerðingar eða verkja þarf að rétta það í aðgerð (correction osteotomy). Þá er bein tekið í sundur nálægt brotastað, skekkjan rétt og oftast fest með plötu og skrúfum. Oftast nær þarf þá beinflutning til að fylla í gap sem myndast en algengt er að nota beingraft frá crista iliaca. Þegar brot grær ekki (vangróning) þarf að gera opna réttingu með innri festingu ásamt beinflutningi til að hvetja gróanda. Slitgigt í kjölfar áverka (post-traumatic arthrosis) Slitgigt getur verið langtíma fylgi kvilli úlnliðsbrota, sérstaklega ef brotið gengur inn í liði. Slitgigt getur einnig verið fylgi- kvilli eftir aðgerð með plötu og skrúfum þar sem skrúfan gengur inn í liðinn. Því þarf að gæta þess að slíkt eigi sér ekki stað við innri festingu eftir úlnliðsbrot. Stífleiki í fingrum, úlnlið og olnboga Bjúgur, bólga og verkir eftir áverkann leiða til minni hreyfingar í liðum handleggsins. Þetta ásamt hreyfingarleysi vegna gips með- ferðar og skortur á þjálfun til langs tíma getur leitt til stífleika í liðum. Þetta endur- speglar mikilvægi þess að hreyfa fingurliði, oln bogalið og axlarlið á meðan meðferð stendur. Auk þess er mikilvægt að he$a sjúkraþjálfun að lokinni gipsmeðferð. Samantekt og lokaorð Tilfellið lýsir 76 ára konu sem leitaði á BMT í Fossvogi eftir fall í hálku. Uppvinnsla á BMT leiddi í ljós brot á neðri enda sveifar vinstra megin. Brotið var rétt og gipsað en ekki fékkst ásættanleg lega á brotinu. Brotið var einnig óstöðugt og var konan því tekin í skurðaðgerð þar sem gerð var opin rétting og innri festing með plötu og skrúfum. Aðgerðin gekk vel og sömu leiðis endur hæfingin eftir hana. Vonast er til að eftir lestur þessa tilfellis geti lesandi tekið ákvarðanir varðandi næstu skref í með- ferð brota í neðri enda sveifar og einnig með höndlað einföld brot með góðri gips- lagningu. Hafa ber í huga að tilfelli eru sjaldnast háklassísk eins og áverkasaga hér að ofan segir til um. Þar var ekki um að ræða fall á útrétta hendi heldur ódæmigerðan áverkahátt sem leiddi til klassísks Colles brots. Heimildir 1. Handbook of Fractures. Publication Year: 2019. Edition: 6th Ed. Authors/Editor: Egol, Kenneth A.; Koval, Kenneth J.; Zuckerman, Joseph. Publisher: Lippincott Williams & Wilkins (LWW) 2. Corsino CB, Reeves RA, Sieg RN. Distal Radius Fractures. [Updated 2020 Aug 11]. In: StatPearls [Internet]. Treasure Island (FL): StatPearls Publishing; 2021 Jan-. Available from: https://www.ncbi.nlm.nih. gov/books/NBK536916/ 3. Sigurdardottir, Kristbjörg & Halldorsson, S & Robertsson, Johann. (2011). Epidemiology and treatment of distal radius fractures in Reykjavik, Iceland, in 2004. Comparison with an Icelandic study from 1985. Acta orthopaedica. 82. 494-8. 10.3109/17453674.2011.606074. 4. Orthobullets.com. 2021. Distal Radius Fractures - Trauma - Orthobullets. [online] Available at: <https://www. orthobullets.com/trauma/1027/distal- radius-fractures> [Accessed 10 March 2021]. 5. Gutow AP. Avoidance and treatment of complications of distal radius fractures. Hand Clin. 2005 Aug;21(3):295-305. doi: 10.1016/j.hcl.2005.04.004. PMID: 16039441. 6. Andersen DJ, Blair WF, Steyers CM Jr, Adams BD, el-Khouri GY, Brandser EA. Classification of distal radius fractures: an analysis of interobserver reliability and intraobserver reproducibility. J Hand Surg Am. 1996 Jul;21(4):574-82. doi: 10.1016/s0363-5023(96)80006-2. PMID: 8842946. 7. Medoff RJ. Essential radiographic evaluation for distal radius fractures. Hand Clin. 2005 Aug;21(3):279-88. doi: 10.1016/j.hcl.2005.02.008. PMID: 16039439. 8. Úlnliðsbrot. Published by: Heilbrigðisstofnun Suðurlands DOI: https://www.hsu.is/fraedsla/fraedsla- fyrir-almenning/stodkerfisvandamal/ ulnlidsbrot/ 9. Úlnliðsbrot tilfært. Almennar upplýsingar. Deildarstjóri og yfirlæknir bráða- og göngudeild G3 Landspítali 2018 Reykjavík: Landspítali 10. Meðhöndlun brota með gipsi. Hjörtur Brynjólfsson. Landspítali. https:// notendur.hi.is/eih14/baeklun/Gipsun.pdf 11. Gifs. Almennar upplýsingar. Deildarstjóri og yfirlæknir bráða- og göngudeild G3 Landspítali 2018 Reykjavík: Landspítali 12. Bæklunarskurðaðgerð - gifs. Útskriftar- fræðsla. Landspítali Reykjavík: Land- spítali. https://www.landspitali.is/ library/Sameiginlegar-skrar/Gagnasafn/ Sjuklingar-og-adstandendur/ Sjuklingafraedsla---Upplysingarit/ Skurdlaekningasvid/Ùtskriftarfræðsla- gifs.pdf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.