Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 26
24 Læknaneminn
konum.16 Breytanlegir áhættuþættir eru svo
flokkaðir enn frekar í vel þekkta og minna
þekkta þætti út frá því hversu sterk tengsl
þeir hafa við tilurð blóðþurrðarslags. Vel
þekktir áhættuþættir eru háþrýstingur,
reykingar, sykursýki, blóðfituröskun,
háls slagæðarþrenging, sigðkornablóðleysi,
hormóna meðferð eftir tíðahvörf, óhollt
matar æði, hreyfingarleysi, ofþyngd, gátta tif
og aðrir hjartasjúkdómar. Minna þekktir
áhættuþættir eru meðal annars efna-
skiptakvilli (metabolic syndrome), óhófl eg
áfengisneysla, vímuefnanotkun, hor-
móna getnaðarvörn, kæfisvefn, mígreni og
blóðstorkutruflun.25
Áhættuþættir slags eru $öldamargir
en ljóst er að þeir hafa mismikið vægi.
INTERSTROKE var tilfellaviðmiðarannsókn
sem kortlagði áhættuþætti slags og
mikil vægi hvers og eins þeirra. Rann-
sak endur báru saman 3000 tilfelli með
fyrsta slag, annað hvort blóðþurrðarslag
eða heilablæðingu, við 3000 viðmið og
komust að þeirri niðurstöðu að tíu breytan-
legir áhættuþættir liggja að baki um
90% af slagáhættunni. Fyrstu fimm eru
háþrýstingur, reykingar, kviðfita, mataræði
og hreyfingarleysi sem skýra um 80% af
áhættu á slagi. Seinni fimm eru sykursýki,
áfengis notkun, félagslegir þættir, hjarta-
sjúkdómar og apólípóprótín.26
Slag er því að miklu leyti lífsstílstengdur
sjúk dómur. Besta leiðin til þess að draga
úr byrði slaga á heimsvísu væri að leggja
áherslu á fyrsta stigs forvarnir eins og hollt
mataræði, reglulega hreyfingu og reyk-
leysi.25 Fyrrnefndir þættir fyrirbyggja enn
fremur að fólk þrói með sér aðra áhættuþætti
slags á borð við háþrýsting og sykursýki.
Í INTERSTROKE rannsókninni kom fram
að matar æði ríkt af fiski og ávöxtum, til
að mynda Miðjarðarhafsmataræðið, sé
verndandi gegn slagi en að mataræði ríkt
af meðal annars rauðu kjöti og salti hefði
tengsl við aukna áhættu.26 Óhófleg salt-
inntaka stuðlar að slagi, að miklu en ekki að
öllu leyti, með því að hækka blóðþrýsting.
Banda rísku slagsamtökin ráðleggja fólki því
að draga úr inntöku salts og auka inntöku
á kalíum til þess að lækka blóðþrýsting.
Í leið beiningum er sérstaklega ráðlagt
að fylgja DASH-style mataræðinu sem
er ríkt af ávöxtum, grænmeti og lágfitu
mjólkur vörum og inniheldur einnig lítið af
mett aðri fitu.25 DASH stendur fyrir Dietary
Approaches to Stop Hypertension og var heitið
á klínískri rannsókn sem kannaði áhrif
matar æðis á blóðþrýsting. Niðurstaðan
var að fæðusamsetning DASH-style matar-
æðisins væri hugsanlega áhrifarík í að
fyrir byggja háþrýsting og gæti dregið
úr þörf á notkun blóðþrýstingslækkandi
ly$a.27 Mikil athygli hefur einnig beinst
að áhrifum Miðjarðarhafsmataræðisins
sem hefur tengsl við minnkaða áhættu á
hjarta- og æðasjúkdómum.28,29 Miðjarðar-
hafs mataræðið er ríkt af ólífuolíu, hnetum,
ávöxtum, grænmeti og tre$um. Einnig
inniheldur það meðalmikið af fiski og
alifugla kjöti en lítið af rauðu og unnu
kjöti sem og sætindum. Niðurstöður ný-
legrar safngreiningar (meta-analysis) um
matar æði og slag voru að bæði DASH-style
matar æðið og Miðjarðarhafsmataræðið
hefðu tengsl við minnkaða áhættu á slagi
og dánartíðni.30 Vísbendingar eru um að
Miðjarðarhafsmataræðið dragi úr nýgengi
blóðþurrðarslags en ekki heilablæðingar.31
Mikilvægasti breytanlegi áhættuþáttur
slags er háþrýstingur. The Framingham Heart
Study hefur gert garðinn frægan í gegnum
tíðina fyrir innsýn þess í faraldsfræði og
áhættu þætti hjarta- og æðasjúkdóma, þar á
meðal háþrýstings.32 Fyrrnefnd rannsókn er
framsýn langsniðsrannsókn sem hófst árið
1949 og gerði rannsakendum kleift að fylgja
eftir 5.209 körlum og konum á aldrinum 30
til 62 ára í 14 ár og kanna tengsl háþrýstings
við slag. Hún leiddi í ljós að greinileg tengsl
væru þar á milli. Niðurstaðan var að það
væri lítill vafi um að háþrýstingur væri
undanfari og öflugur áhættuþáttur slags.33
Góð blóðþrýstingsstjórnun ætti því að vera
forgangsatriði sem fyrsta forvörn gegn slagi.
Ráðlagt er að halda blóðþrýstingsmörkum
undir 140 í slagsbilsþrýsting og 90 í hlébils-
þrýsting með lífsstílsbreytingum og
ly$ameðferð eftir því sem við á.25
Gáttatif, hvort sem um er að ræða kvikult
(paroxysmal) eða viðvarandi, er vel þekktur
áhættuþáttur slags. Mikilvægt er að greina
fólk með gáttatif, en meðhöndlun þess
dregur úr nýgengi slaga. Af 320 sjúklingum
með blóðþurrðarslag árið 2013 á Íslandi voru
29% með gáttatif. Gáttatifið var þekkt hjá
18%, greindist á hjartalínuriti við komu hjá
6% og kom í ljós við uppvinnslu hjá hinum.16
Til þess að draga úr nýgengi slags ráðleggja
Bandarísku slagsamtökin að sjúklingar
í hárri áhættu á slagi, og í sumum til-
vikum meðalmikilli, he$i meðferð með
blóð þynningu. Almennt er miðað við að
he$a eigi blóðþynningu hjá sjúklingum
Sjónsviðsskerðing
L R
1
2
3
4
5
6
7
8
Temporal Nasal
Sjónskúfur
Nasal Temporal
L RSjónbrautir
1
2
3
4 5
6
7
8
Sjónbörkur
Mynd 4: Sjónsviðsskerðing eftir staðsetningu skaðans (táknað með svörtu)