Læknaneminn - 01.04.2021, Side 30
28 Læknaneminn
Tafla 3: Slagheilkenni
Slag í fremri blóðveitu
Fremri hjarnaslagæð Máttminnkun og skyntruflun í gagnstæðum neðri útlim og hegðunarbreytingar.
Miðhjarnaslagæð Máttminnkun og skyntruflun í gagnstæðum líkamshelming sem er meira áberandi
í andliti og efri útlim. Ef drepið teygir sig framarlega getur sést augnhliðrun til sömu
áttar (conjugate eye deviation). Málstol kemur fram ef skaði verður á ríkjandi heilahveli en
gaumstol ef skaði verður á víkjandi heilahveli. Sjónsviðsskerðing kemur fram ef lokun
verður á neðri grein (inferior division) miðhjarnaslagæðar og fer eftir því hvaða hluti
sjónskúfsins (optic radiation) verður fyrir skaða:
• Superior quatrantanopsia – sjónskúfur í gagnaugablaði
• Inferior quatrantanopsia – sjónskúfur í hvirfilblaði
Slag í aftari blóðveitu
Aftari hjarnaslagæð Samhliða helftarblinda gagnstæðu megin (controlateral homonymous hemianopsia). Ef skaði
verður á ríkjandi heilahveli þá getur komið fram heilkenni lesblindu án ritstols (alexia
without agraphia). Barkarblinda (cortical blindness) getur komið fram ef skaði verður á
hnakkablaði beggja vegna.
The thalamic syndrome of Dejerine and Roussy
Lokun á greinum frá aftari hjarnarslagæð
Skyntap og verkur í gagnstæðum líkamshelming.
Locked-in syndrome
Lokun á hjarnabotnsslagæð
Eðlilegar lóðréttar augnhreyfingar, framsagnarstol (anarthria) og ferlömun (quadriplegia)
vegna skaða beggja vegna í brú.
Weber syndrome
Lokun á greinum frá aftari hjarnarslagæð
í miðheila
Lömun á þriðju heilataug sömu megin og máttminnkun gagnstæðu megin.
Claude syndrome
Lokun á greinum frá aftari hjarnarslagæð
í miðheila
Lömun á þriðju heilataug sömu megin og óregluhreyfing í efri og neðri útlim gagnstæðu
megin.
Benedikt's syndrome
Lokun á greinum frá aftari hjarnarslagæð í
miðheila
Lömun á þriðju heilataug sömu megin og óregluhreyfing og rykkjabrettur (chorea)
gagnstæðu megin.
Bandarísku slagsamtakanna um bráða-
meðferð við blóðþurrðarslagi ætti að stefna
að því að gefa segaleysandi meðferð eins
fljótt og hægt er frá komu sjúklings
á spítala.21
Gjöf segaleysandi meðferðar utan tíma-
marka hefur verið að ryðja sér til rúms
vegna aukinnar notkunar á myndgreiningu
sem sýnir umfang kjarnadreps og jaðars
(penumbra). Við hentugar aðstæður á
kjarna drep að vera lítið en jaðar stór. Slíkar
mynd greiningar eru tölvusneiðmynd með
heilave$argegnumflæðisrannókn (cerebral
perfusion) eða flæðisvigtuð (diffusion-
weighted imaging, DWI) segulómrannsókn.
Þó æskilegast væri að gefa rt-PA sem fyrst
eftir upphaf einkenna þá mæla nýlegar
leið beiningar Evrópsku slagsamtakanna
með gjöf segaleysandi meðferðar utan tíma-
marka ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Á
það einna helst við um sjúklinga sem vakna
með einkenni og voru síðast einkennalaus
fyrir meira en $órum og hálfri klukkustund
en hafa merki um lífvænlegan vef á fyrr-
nefndum rannsóknum.50
Fara þarf vel yfir ábendingar og frá-
bendingar þegar gefa á rt-PA. Helstu
frá bendingar við segaleysandi meðferð,
þegar búið er að útiloka heilablæðingu, er
blóð þynning, innvortis blæðing, saga um
slag æðarstungu (<7 daga), stóra aðgerð (<3
vikur) eða fyrra slag (<3 mánuði). Ekki má
gefa segaleysandi meðferð ef blóðþrýstingur
mælist yfir 185 í slagbilsþrýsting eða 110 í
hlé bils þrýsting. Í slíkum tilfellum þarf að
lækka blóðþrýstinginn með ly$um fyrir
gjöf rt-PA.51
Ef blóðtappi í nærlægum (proximal)
æðum heilans sést við myndgreiningu ber
að íhuga segabrottnám. HERMES rann-
sóknin var safngreining sem kannaði
árangur segabrottnáms með því að sameina
gögn fimm slembiraðaðra rannsókna.52-56
Rannsóknirnar báru saman segabrottnám
innan tólf tíma frá upphafi einkenna við
hefð bundna meðferð hjá fólki með nærlæga
lokun í fremri hringrás. Megin niðurstaða
rannsóknarinnar var betri færni sjúklinga
90 dögum eftir inngrip samkvæmt
endurbætta Rankin-kvarðanum (modified
Rankin scale, m-RS). Flestir sjúklingar voru
með lokun á M1 grein miðhjarnaslagæðar og
næstflestir með lokun á innri hálsslagæð.
Niðurstaða HERMES var að sá $öldi sem
þyrfti að með höndla (number needed to treat)
til draga úr fötlun um eitt stig á endurbætta-
Rankin kvarðanum væri 2,6. Segabrottnám
hefur því í för með sér mikinn ávinning
fyrir flesta sjúklinga með nærlæga lokun í
fremri blóð veitu heilans. Af 100 sjúklingum
sem fara í segabrottnám munu 38 fá vægari
fötlun og 20 til viðbótar verða sjál(jarga.57
Bandar ísku hjarta- og slagsamtökin ráð-
leggja að gefa öllum segaleysandi meðferð
sem hafa ábendingu fyrir henni jafnvel þótt
að segabrottnám komi til greina.58