Læknaneminn - 01.04.2021, Blaðsíða 35
33 Mat á lungnastarfsemi fyrir skurðaðgerðir
vanstarfsemi sem hefur klínísk áhrif og
breytir sjúkdómsgangi eftir aðgerðina.2
Þeir fylgikvillar sem eru algengastir og
eru taldir hafa mest áhrif á dánartíðni eru
lungna hrun, lungna bólga, öndunar bilun í
kjölfar aðgerðar og versnun á undir liggjandi
lungna sjúkdómi.8 Aðrir algengir fylgi-
kvillar eru lágur súrefnisþrýstingur í blóði
(hypoxemia), aukinn slímuppgangur með
hósta, óeðlileg lungnahlustun og óútskýrður
hiti (tafla 1).1
Lungnahrun er algengt vandamál eftir
aðgerðir þar sem truflun verður á starfsemi
þindar, svo sem eftir brjóstholsaðgerðir og
efri kviðarholsaðgerðir (mynd 2).8 Rannsókn
sýndi að allt að 75% þeirra sem fá lyf sem
hafa áhrif á tauga vöðvamót (neuromuscular
blocking drug) fá lungna hrun.6 Þá spila verkir
einnig hlutverk því þeir geta komið í veg
fyrir að sjúklingar dragi djúpt andann og
þá þenjast lungnablöðrur ekki nægilega
út. Ef lungnahrunið er stórt má heyra
minnkuð öndunarhljóð yfir þeim hluta
lungans og jafnvel greina bankdeyfu.
Notkun jákvæðs útöndunarþrýstings (PEEP)
í öndunarvél á meðan á aðgerð stendur
hjálpar til við að minnka lungnahrun.5
Hægt er að vinna gegn lungnahruni eftir
aðgerðir með flautu sem er með jákvæðum
útöndunar þrýstingi (positive expiratory
pressure, PEP) (mynd 3). Einnig hjálpar að
sjúklingur sé í uppréttri stöðu, svo sem
við setu á rúmstokki eða stól og á göngu.
PEP flautan eykur mótstöðu í lungum og
losar þannig slím og opnar lungun. Aukinn
slím uppgangur með hósta er fylgikvilli
sem vert er að hafa í huga hjá sjúklingum
eftir skurðaðgerð. Annar mikilvægur
fylgi kvilli er lungnabólga sem greina má
með sögu, skoðun og myndgreiningu ef
þörf krefur. Í lungnabólgu er dæmigert að
heyra brakhljóð við innöndun yfir lungna-
stað og berkjuöndunarhljóð (bronchial
breath sounds). Lungna bólga er meðal
mismunagreininga sem þarf að hafa í
huga þegar sjúklingur á fyrstu dögum
eftir aðgerð fær hita. Til eru tvær Gupta
reiknivélar sem annars vegar áætla líkur
á lungnabólgu eftir aðgerð og hins vegar
áætla líkur á öndunarbilun eftir aðgerð
(sjá undirkafla: Hjálpartæki til að meta
lungnaáhættu). Alvarlegur fylgikvilli skurð-
aðgerða er öndunarbilun eftir aðgerð en
skilgreiningin á því samkvæmt Arozullah er
þörf á öndunarvél eftir aðgerð, nánar tiltekið
öndunarvélar meðferð sem varir lengur en
48 klukkutíma eftir aðgerð, eða þörf á að
sjúklingur fari aftur í öndunarvél innan
30 daga eftir að skurð aðgerð lýkur.8,9 Til er
skimunartæki til að meta líkur á öndunar-
bilun eftir aðgerð sem heitir Arozullah
Respiratory Failure Index (sjá undirkafla:
Hjálpartæki til að meta lungnaáhættu).9
Mikilvægur fylgikvilli sem vert er að
hafa í huga er versnun á undirliggjandi
lungna sjúkdómum, sérstaklega lang-
vinnri lungnateppu og astma en einnig
milli vefslungnasjúkdómum. Einnig má
nefna lágan súrefnisþrýsting í blóði en súr-
efnisskort má greina með blóð gasa sýni.1,8
Ef sjúklingur sem er á leið í skurð aðgerð
hefur undirliggjandi lungna sjúkdóma
getur þurft að gera viðbótar rannsóknir í
mati fyrir aðgerð og ganga úr skugga um að
sjúk dómurinn sé vel meðhöndlaður áður en
sjúklingur fer í aðgerð.
Áhættuþættir fylgikvilla
Áhættuþáttum fylgikvilla má skipta í
tvennt, annars vegar þætti sem tengjast
sjúk lingnum sjálfum og hins vegar þætti
sem tengjast skurðaðgerðinni. Áhættu-
þættirnir eru $öldamargir en á marga þeirra
má hafa áhrif fyrir aðgerðina. Sem dæmi
um breytanlegan áhættuþátt eru reykingar
og óbreytan legan er aldur. Mikilvægt er að
heil brigðis starfsmenn sem sinna mati á
sjúk lingum fyrir aðgerðir séu meðvitaðir
um þessa þætti og að möguleiki sé á að draga
úr líkum á fylgikvillum frá lungum eftir
skurð aðgerðir með breytingum á venjum
Mynd 2: Sjúklingur á þriðja degi eftir aðgerð
á magálshaul (ventral hernia).
a) Röntgenrannsókn af lungum sýnir nokkrar
bandlaga þéttingar liggja frá lungnaporti í
átt að fleiðru hliðlægt og neðan til í báðum
lungum. Útlit samrýmist lungnahruni.
b) Tölvusneiðmynd sama dag sýnir lungna-
hrun með sömu dreifingu í miðhluta og neðri
hluta lungna. Engar íferðir voru til staðar í
lungnavef.
Mynd 3: Dæmi um PEP flautu.
Tafla 1: Helstu fylgikvillar frá lungum eftir skurðaðgerð
*Öndunarvélarmeðferð lengur en 48 klukkutíma eftir aðgerð eða þörf á að fara aftur
í öndunarvél ≤30 daga frá aðgerð.
Helstu fylgikvillar frá lungum eftir skurðaðgerð
Lungnahrun
Lungnabólga
Öndunarbilun í kjölfar aðgerðar*
Versnun á undirliggjandi lungnasjúkdómi, svo sem LLT, astma eða
millivefslungnasjúkdómum
Lágur súrefnisþrýstingur í blóði
Aukinn slímuppgangur með hósta
Óeðlileg öndunarhljóð við lungnahlustun
Óútskýrður hiti
a)
b)