Læknaneminn - 01.04.2021, Side 40

Læknaneminn - 01.04.2021, Side 40
38 Læknaneminn þeirra há-áhættu stofnar sem tengjast myndun á krabbameini.1, 3 Sjúkdómar af völdum HPV HPV sermisgerðum er skipt í hágráðu og lággráðu stofna eftir tilhneigingu sýktra fruma til að valda leghálskrabbameini. Til dæmis finnst hágráðu HPV16 stofninn í einu af hverjum tveimur tilfellum ífarandi flögufrumukrabbameins (invasive squamous cell cancer, SCC), en lággráðu HPV6 stofninn í 1 af 932 tilfella.5 HPV sýking er til staðar í nánast 100% tilfella leghálskrabbameins, 90% tilfella endaþarmsopskrabbameins, 33% tilfella krabbameins í ytri kynfærum karla, 22% tilfella krabbameins í munnholi og 4% tilfella krabbameins í munnkoki og barkakýli meðal kvenna og karla.6 Tíðni HPV tengdra krabbameina annarra en leghálskrabbameina virðist vera að aukast, sérstaklega munnhols-, munnkoks- og endaþarmsopskrabbameina.7 Algengi HPV smits er áætlað 11,7% á heimsvísu þó talsverður munur sé á milli ríkja og rannsókna, þar af er HPV16 sermisgerðin algengust.8 HPV sýkingar í endaþarmsopi og kynfærum Hlutverk HPV sem orsök forstigsbreytinga og síðar krabbameina í endaþarmsopi og kynfærum (anogenital) hefur verið staðfest með sameindalíffræðilegum og faraldsfræðilegum rannsóknum.3, 5 Hlutverk HPV sem orsök annarra krabbameina tengdum kynfærum hafa ekki verið jafn vel rannsökuð þar sem algengi HPV sýkinga virðist vera lægra í þeim krabba- meinum en í leghálsinum.5 Þá hafa rann- sóknir sýnt fram á samband stöðugs hás Hugrún Lilja Ragnarsdóttir Þriðja árs læknanemi 2020–2021 Snædís Inga Rúnarsdóttir Fjórða árs læknanemi 2020–2021 Brynja Ármannsdóttir Sérfræðilæknir í sýkla- og veirufræði gildis HPV og annarra krabbameina en leghálskrabbameina.9, 10 Takmarkaður $öldi HPV sermisgerða hefur verið tengdur beint sem áhrifaþáttur við myndun þeirra krabbameina, en einna helst hefur HPV sýking verið tengd við myndun innanflöguþekjuskemmda (squamous intraepithelial lesions, SILs) í leghálsi, leg- göngum, skapabörmum, getnaðarlim og enda þarmsopi.3, 5 Algengi HPV smits á enda þarmsops- og kynfærasvæði er ekki vel skilgreint, en á heimsvísu virðist algengið vera hærra meðal karla.3, 8 HPV sýking í kynfærum er algeng meðal karla og ýmsar rann sóknir sem byggja á PCR hafa sýnt fram á algengi upp á 3,5% - 46,4%. 11, 12 Sýkingar af völdum tveggja lággráðu sermis gerðanna HPV6 og HPV11 valda kynfæra vörtum (condyloma acuminata).13 Kynfæra vörtur koma á slímhúð og húð á ytri kynfærum og við endaþarmsop.3 Vís bend- ingar eru um að kynfæravörtur séu einn algengasti kynsjúkdómurinn á Vestur- löndum.1 Umfang og kostnaður sam félagsins vegna kynfæravarta er ekki þekkt hér á landi en myndi eflaust vega þungt í um- ræðunni um hvort þörf sé á bólusetningu gegn HPV óháð kyni.  HPV sýkingar í munnholi og koki Fjöldi krabbameina á höfuð- og hálssvæði af völdum HPV sýkinga, sérstaklega sermis gerðum 16 og 18, hefur aukist.14, 15 Krabba mein í munnholi og koki virðast sérstaklega tengd HPV sýkingu en síður krabba mein í barkakýli.16 Mesta aukningin sést í munnkokskrabbameinum, en á Íslandi fóru tilfellin úr 3 tilfellum árið 2009 í 15 til felli árið 2016.17 Rannsóknir hafa sýnt fram á að hlutfall þeirra sem greindust með HPV-jákvætt munnkokskrabbamein jókst úr 40,5% árið 2000 í 72,2% árið 2005 í Evrópu og Norður-Ameríku.18 Þriggja ára lifun þeirra sem greinast með krabbamein af völdum HPV er betri (82%) en þeirra sem greinast með munnkokskrabbamein sem er ekki af völdum HPV (57%).19 Þrátt fyrir að bólusetningu gegn HPV sé ætlað að koma í veg fyrir leghálskrabbamein af völdum veirunnar, mætti færa rök fyrir því að drengir ættu einnig að fá þessa bólu setningu til að fyrirbyggja munn koks- krabbamein og krabbamein í getnaðarlim af völdum HPV.20 Bóluefni gegn HPV Til eru þrjú bóluefni gegn HPV, Cervarix, Gardasil og Gardasil 9.21 Árið 2021 eru tvö bóluefni á markaði á Íslandi gegn HPV veirum: Cervarix og Gardasil 9.22 Bæði þessi bóluefni innihalda L1 prótein sem hylki veiranna er myndað úr. Þessi prótein eru í formi veirulíkra agna (virus-like particles, VLPa) og innihalda því bóluefnin hvorki Inngangur Human papillomavirus (HPV) er veira sem smitast við kynmök. Veiran er einkum algeng hjá ungu fólki sem stundar kynlíf.1-3 Tíðni veirunnar hefur farið vaxandi víða um heim á undanförnum áratugum af óþekktum orsökum.1, 2 Sýkingar af völdum veirunnar geta verið þrálátar en ónæmiskerfið eyðir veirunni oftast innan fárra mánaða án afleiðinga. Viðvarandi sýking eykur líkur á forstigsbreytingum og síðar krabbameini.1, 2 HPV sýkingar hafa verið tengdar við krabbamein í leghálsi, endaþarmsopi, munnholi, munnkoki, ytri kynfærum og við kynfæravörtur.4 Á markaði hér á landi eru tvö bóluefni gegn HPV en það eru Cervarix og Gardasil 9. Frá árinu 2011 hafa heilbrigðisyfirvöld á Íslandi boðið 12 ára stúlkum bólusetningu.1 Hér verður $allað um hvort ástæða sé til að he$a bólusetningu gegn HPV á Íslandi óháð kyni og mögulegar fyrirstöður þess. Human papillomavirus (HPV) Papillomaveirur eru hópur lítilla DNA veira sem hafa tilhneigingu til að örva $ölgun flöguþekjufrumna. Veiruagnirnar eru án veiruhjúps (nonenveloped), hafa tvítugs- flötungs veiruhylki (icosahedral capsid) utan um tvístrendings hringlaga 7,9kB erfða mengi (DNA). Megin stoðprótein veiruhylkisins er prótein sem kallast L1. Þrátt fyrir mikla frumusértækni HPV sýkinga, geta þær bundist og sýkt $öldan allan af mismunandi frumum. Erfðamengi yfir 100 HPV sermisgerða (serotype) hafa verið skilgreind.3, 5 Um 40 þeirra geta valdið sýkingum í húð og slímhúðum á kyn færa- svæði, munni og koki. Þar af eru um 15-17 HPV bólusetning óháð kyni á Íslandi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.