Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 41
39 HPV bólusetning óháð kyni á Íslandi
veiruna sjálfa né hluta af erfðaefni hennar.21
Bólu efnin innihalda bæði L1 prótein
sermis gerða HPV16/18 og hafa rannsóknir
sýnt að bóluefnin koma í veg fyrir um 90%
HPV sýkinga.23 Bóluefnin eru þó aðeins
fyrirbyggjandi og hafa ekki áhrif á virkar
sýkingar.21 Cervarix heldur virkni sinni
í að minnsta kosti 10 ár, að öðru leyti
er ekki vitað með vissu hvort þörf sé á
endurbólusetningu seinna meir á Cervarix
og Gardasil 9.24 Bóluefnin þarf að gefa eftir
ákveðnum skammtaáætlunum þar sem
börn á aldrinum 9-14 ára fá tvo skammta en
einstaklingar 15 ára og eldri þurfa þrjá.22
Cervarix
Cervarix er tvígilt bólefni sem ver gegn
gerðum 16 og 18.21 Bóluefnið er framleitt af
GlaxoSmithKline og var samþykkt árið 2007
af Ly$astofnun Evrópu og er Cervarix það
bólefni sem hefur verið notað á Íslandi frá
árinu 2011.1, 22 Helsti kosturinn sem Cervarix
hefur fram yfir Gardasil 9 er að virkni
þess er að öllum líkindum betri þar sem
T-frumu svar líkamans verður sterkara við
bólusetningu á Cervarix.25 Einnig er Cervarix
ódýrara en Gardasil 9.22
Gardasil-9
Gardasil-9 er nígilt bóluefni gegn HPV
sermis gerðum 6, 11, 16, 18, 31, 33, 45, 52
og 58 og er þar með það bóluefni sem ver
gegn flestum HPV sermisgerðum.21 MSD
er framleiðandi bóluefnisins og var það
samþykkt af Ly$astofnun Evrópu árið
2015. Fyrsta kynslóð Gardasil var samþykkt
árið 2006 og var þá fyrsta bóluefnið gegn
HPV til þess að vera samþykkt af Ly$a-
stofnun Evrópu.22 Stærsti kostur Gardasil
bóluefnanna, sem þau hafa fram yfir
Cervarix, er að þau verja gegn sermigerðum
6 og 11 og koma þannig í veg fyrir
kynfæravörtur.21, 22
Staða HPV bólusetningar á heimsvísu
Árið 2019 setti Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin (World Health Organization, WHO)
fram heimsmarkmið um útrýmingu
legháls krabbameins og var einn þáttur
mark miðsins að ná að fullbólusetja 90% af
stúlkum í heiminum gegn HPV veirunni
fyrir árið 2030.26 HPV bólusetning er
hluti af almennum bólusetningum í 100
löndum en nær þó aðeins til 30% af mann-
$ölda heimsins.27 Flest þessara landa
eru hátekjuríki og því minna af bólu-
setningum meðal fátækra ríkja þar sem
dánar tíðnin vegna leghálskrabbameina er
hærri.26 Nokkur lönd standa framarlega á
sviði HPV bólusetninga óháð kyni, þar á
meðal Ástralía, Bandaríkin, Bretland og
Norðurlöndin.
Árið 2013 var drengjum bætt inn í bólu-
setningaráætlunina í Ástralíu og 14-15 ára
drengir fengu þá rétt á bólusetningu. Frá
árinu 2018 hefur verið notast við Gardasil 9
en fyrir það var bólusett með Gardasil. Árið
2016 var bólusetningarþekja (vaccination
coverage) meðal 15 ára barna talin vera 78,6%
meðal stúlkna og 72,9% meðal drengja.
Í rannsókn frá 2019 er áætlað að ef bólu-
setningar þekjan haldi áfram að vera jafn
góð næstu árin ásamt áframhaldandi
legháls skimunum muni nýgengi legháls-
krabbameina í Ástralíu lækka og fara úr sjö
tilfellum á hverja 100 þúsund íbúa niður í
$ögur tilfelli árið 2028.28
Allar þrjár gerðirnar af bóluefnunum
gegn HPV veirum hafa verið samþykktar
af Ly$astofnun Bandaríkjanna en aðeins
Gardasil 9 er í dreifingu. Advisory Committee
on Immunization Practices (ACIP), nefnd innan
sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, mælir
með að allir einstaklingar á aldrinum 9-26
ára, óháð kyni, séu bólusettir.29
Árið 2019 var drengjum bætt í bólu-
setningaráætlunina í Bretlandi, 12-13
ára börn óháð kyni eru nú bólusett með
Gardasil. Þeir hópar sem eiga rétt á gjald-
frjálsri bólusetningu eru allir undir 25 ára,
transkonur 45 ára og yngri ásamt körlum
sem stunda kynlíf með körlum. Transmenn
sem stunda kynlíf með körlum eiga einnig
rétt á bólusetningunni.30
Öll Norðurlöndin eru með HPV bólu-
setningu sem hluta af almennum bólu-
setningum en Ísland er eina landið sem
bólu setur ekki óháð kyni. Misjafnt er eftir
löndunum hvaða bóluefni er notað. Flest
nota Cervarix í almennum bólusetningunum
nema Danmörk og Svíþjóð sem bólusetja
með Gardasil 9.31-34
Hér á Íslandi hafa 12 ára stúlkur verið
bólusettar með Cervarix frá árinu 2011.1 Ein
helsta ástæða þess að Cervarix var bætt inn
í almennu bólusetningarnar á Íslandi var
að koma í veg fyrir leghálskrabbamein,
enda eru um 88% leghálskrabbameina á
Íslandi tengd við HPV gerðir 16 og 18.1, 35
Bólu setningin er hluti af almennum bólu-
setningum fyrir stúlkur og er því greidd
að fullu af sóttvarnalækni. Aðrir sem ekki
tilheyra þessum hóp, meðal annars konur
18 ára og eldri og drengir/karlar, þurfa sjálfir
að greiða fyrir bóluefnið. Þó Gardasil 9 sé
líka á markaði á Íslandi er það ekki greitt af
sóttvarnalækni, aðeins Cervarix.36
Ástæður HPV bólusetningar óháð kyni og
mögulegar fyrirstöður þess
Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar til að
meta hjarðónæmi og sjúkdómsbyrði HPV.
Hér verður gerð samantekt á nokkrum
þeirra rannsókna. Þá verður farið yfir
rann sóknir sem rökræða hagkvæmni HPV
bólusetningar óháð kyni ásamt mögulegum
áhrifum á heilsufarslegan ójöfnuð.