Læknaneminn - 01.04.2021, Page 48
Læknaneminn46
breiða þekkingu á sýklaly$um, eiginleikum
þeirra og tinktúrum. Fyrir þá sem eru að
byrja í klíník, hvort sem það er innan eða
utan spítala, er þessi þekking ómetanleg.
Því verður hér farið stuttlega yfir almenn
atriði varðandi sýklalyf og praktískar
ráðleggingar þeim tengdum.
Sýklalyf beinast þannig einvörðungu að
bakteríum, með því markmiði að hefta vöxt
þeirra (bakteríuhemjandi, bacteriostatic) eða
drepa þær (bakteríudrepandi, bacter icidal).
Til þess nýtum við okkur þá stað reynd að
eiginleikar bakteríufrumna eru gjörólíkir
því sem sést hjá heilkjörnungum.
Ri$um aðeins upp hvernig bakteríu-
frumur eru byggðar upp (mynd 1). Bakteríur
Jón Magnús Jóhannesson
Sérnámslæknir í lyflækningum
eru drei. jörnungar (prokaryotes) og eru
því ein frumungar án kjarna. Erfðaefni
baktería má finna í umfrymi frumunnar,
á svokölluðu kjarnasvæði (nucleoid region).
Þannig eiga öll skref í myndun prótína úr
kjarn sýrum sér stað í umfryminu. Ríbósóm
baktería (70S) eru öðruvísi að gerð m.v.
ríbósóm okkar (80S), sem skiptir máli þegar
kemur að vissum sýklaly$um. Utan um
umfrymið hafa allar bakteríur frumuhimnu
sem er keimlík okkar frumuhimnu. Síðan
eru flestar bakteríur (en ekki allar) með
frumuvegg utan um frumuhimnuna. Þessi
veggur mótar form bakteríunnar og tryggir
stöðugleika hennar gagnvart ýmsum ytri
öflum - án veggsins geta flestar bakteríur
ekki verið.
Margir heilkjörnungar (t.d. plöntufrumur
og sveppafrumur) hafa einnig frumuvegg,
en byggingarefnin eru þar mismunandi.
Frumuveggur baktería er samansettur úr
slím peptíðum sem kallast peptídóglýkan.
Peptídó glýkan er keðja af sykrum sem er
kross tengd við aðrar keðjur með aðstoð
peptíða - þetta leiðir til myndunar á þéttu
neti sem umlykur bakteríufrumuna. Til
Sýklalyf eru ótrúlega $ölbreyttur og
flókinn flokkur ly$a. Meira að segja flokkun
sýklaly$a getur verið ruglingsleg. Þegar við
notum orðið sýklalyf (antibiotics) erum við
að vísa í lyf sem að beinast sérstaklega gegn
bakteríum, þrátt fyrir að sýklar geti verið af
öðrum gerðum. Þá er orðið sýkingalyf (anti-
infectives) regnhlífarhugtak sem nær yfir
öll lyf sem beinast gegn sýklum í hinu víða
samhengi.
Það eru fá lyf sem eru eins víða notuð
og sýklalyf. Það má með sanni segja að
allir læknar muni oftar en einu sinni ávísa
sýklaly$um á sínum starfstíma, langflestir
mun oftar. Því skiptir gífurlegu máli að hafa
Sýklalyf fyrir byrjendur
Klóramfeníkól, makrólíðar og linkósamíð
- Bindast við 50S undireiningu ríbósóma
- Hindra myndun peptíðtengja
- Stöðva prótínmyndun
50S stór undireining
Amínóglýkósíð
- Bindast við 30S undireiningu ríbósóma
- Trufla villuleit, sem leiðir til myndunar á
gölluðum prótínum
Tetrasýklín
- Bindast við 30S undireiningu ríbósóma
- Hindra bindingu tRNA sameinda, sem
hindrar prótínmyndun
Amínósýrur
Vaxandi fjölpeptíð
tRNA
mRNA
30S lítil undireining
Mynd 1: Helstu flokkar sýklalyfja sem hindra prótínmyndun. Mynd endurgerð af Martha Smith-CaldasChristopher Herren, General
Microbiology BIOL 455. OpenStax CNX. Apr 30, 2018. Mynd sótt af https://cnx.org/contents/kxd8RhSc@1.9:M7QMeAxP@1/Mechanisms-of-
Antibacterial-Drugs?(clid=IwAR0Qoab2OPxzuwlEgh0_bQcQEm5UMFsUr8Uoi8nRRx2YPNeam7-7V2Juk8Q