Læknaneminn - 01.04.2021, Side 52
Læknaneminn50
sem er í boði í verkefninu er meðal annars
umbúða skipti á sárum, aðhlynning við
minni háttar áverka, saumatökur, sálrænn
stuðningur og áfallahjálp, skaðaminnkandi
samtal, skimun fyrir lifrarbólgu C og
sýklaly$ameðferð við húðsýkingum.
Verkefnið var á sínum tíma stofnað sem
nála skiptaþjónusta út frá skaðaminnkandi
hug myndafræði, til að tryggja aðgengi að
sprautu búnaði og hreinlætisaðstöðu fyrir
einstaklinga sem nota vímuefni um æð
og veita mannúðlega nálgun við virkum
vímu efnavanda. Þörfin fyrir þjónustuna
var mikil, ekkert annað sambærilegt úrræði
var til á landinu, en sýnt hafði verið fram
á mikilvægi slíkra verkefna erlendis fyrir
þennan samfélagshóp. Rauði krossinn
starfar meðal annars eftir þeirri nálgun að
mæta þörfum jaðarsettra hópa í samfélaginu
sem er ekki mætt annars staðar og gerir Frú
Ragnheiður það. Aukin áhersla hefur verið
á heilbrigðisþarfir notenda í Frú Ragnheiði
vegna skorts á aðgengi að þjónustu og
alvar leika heilbrigðisvandamála þeirra. Í
gegnum nýlegan heimsfaraldur skertust
réttindi þeirra og aðgengi enn frekar og því
varð mikilvægi Frú Ragnheiðar enn meira í
kre$andi og ófyrirséðum aðstæðum.
En hvernig getur það verið, ef allir eiga
rétt á sömu heilbrigðisþjónustu? Undir-
rituð hefur nú starfað í þrjú ár faglega í
verkefninu, en lengur sem sjál(oðaliði.
Vanda málið er að það geta ekki allir nýtt
Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir
Hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi
verkefnastýra Frú Ragnheiðar
sér sömu tegund heilbrigðisþjónustu, þó
allir eigi rétt á henni. Það er erfitt að líta
framhjá fordómum, mismunun, félags-
legri stöðu og fátækt; hindrunum sem
mæta fólki sem sækir sér þjónustuna.
Aðrar hindranir koma einnig í veg fyrir
nýtingu á þjónustu, hindranir á borð við
langa biðtíma, úrræðaleysi, samgöngur og
opnunar tíma sem henta illa. Raunin er sú að
það geta ekki allir nýtt sér þá þjónustu sem
er í boði. Það er nær ómögulegt að nálgast
einstakling og sjúkdóma eða einkenni hans,
án þess að taka til greina allar þarfir hans
og nálgast hann heildrænt. Þar á meðal þarf
að taka inn í myndina hver afstaða heil-
brigðisstarfsmannsins er gagnvart félags-
legri stöðu viðkomandi, og hvort sú ómeð-
vitaða eða meðvitaða afstaða geti haft áhrif
á þjónustuna sem einstaklingurinn fær,
eða jafnvel, spyrja hvort ríkjandi afstaða
gegn minnihlutahópum hafi áhrif á hvernig
þjónustur eru þróaðar?
Heilbrigðismenntaðir sjál(oðaliðar í Frú
Ragnheiði tóku sig til árið 2018 og fundu leið
til þess að geta veitt sýkla ly$a töflu meðferð
á vett vangi til notenda þjónustunnar.
Til gangurinn var að draga úr alvarlegum
sýkingum, meðhöndla þær á byrjunar-
stigum og hlúa að sárum. Sjál(oða liðarnir
og undirrituð vildu einnig sjá hvort með-
ferðin myndi ganga betur ef stigið yrði út
fyrir þann kassa að veita þjónustu innan
stofnunar og koma fremur með hana til
þeirra, jaðarsetta hópsins, í þeirra nær-
umhverfi og veita sérhæfða eftirfylgni.
Niðurstöður þessarar meðferðar tala
fyrir sig sjálfar. Árið 2018 voru 40 sýkla-
ly$a töflu meðferðir hafnar í gegnum Frú
Ragnheiði fyrir 26 einstaklinga, af þeim
voru 37 meðferðir árangursríkar án aðkomu
annarrar heilbrigðisþjónustu í meðferðar-
ferlinu. Þetta eru 37 sýkingar sem hægt
var að koma í veg fyrir að þróuðust yfir í
Á Íslandi, þar sem allir hafa rétt á sömu
heilbrigðisþjónustu, er þar með ekki
sagt að allir hafi jafnt aðgengi að henni.
Þröskuldarnir og hindranir geta verið
af mörgum toga eftir félagslegri stöðu,
en skortur er á innlendum rannsóknum
varðandi þátttöku jaðarsettra hópa í
heilbrigðis kerfinu. Það sem við vitum þó
er að heimilisleysi hefur aukist síðustu
ár á Íslandi ásamt neyslu vímuefna. Þeir
einstaklingar sem eru heimilislausir og
nota vímuefni, lögleg eða ólögleg, verða
gjarnan jaðarsettir og mæta hindrunum
þegar kemur að því að sækja sér heilbrigðis-
þjónustu. En hvað er þá til ráða?
Áður en lengra er haldið: Hversu stór
er þessi vandi á Íslandi? Heimilislausum
$ölgaði um rúmlega 95% í Reykjavík á fimm
árum, frá 2012 til 2017, og stærsta aukningin
var í ungum aldurshópum. Meðferðar-
stofnanir og aðrar þjónustur hafa áætlað að á
hverjum tíma séu rúmlega 700 einstaklingar
í virkri vímuefnanotkun um æð.
Frú Ragnheiður, skaðaminnkunar-
verkefni Rauða krossins, hefur verið
á ferðinni í 12 ár. Árið 2020 leituðu til
verkefnisins 596 einstaklingar í rúmlega
4.400 heimsóknum. Mikil aukning er á
heim sóknum til verkefnisins, en þær
hafa rúmlega $órfaldast á $órum árum.
Verkefnið er rekið af sjál(oðaliðasamtökum
og sjál(oðaliðar standa því vaktina, þar á
meðal læknanemar. Heilbrigðisþjónusta
Afglæpavæðing, skaða-
minnkun og heilbrigðis-
þjónusta: Heilbrigðis-
þjónusta við jaðarsetta
einstaklinga á Íslandi