Læknaneminn - 01.04.2021, Side 57

Læknaneminn - 01.04.2021, Side 57
ekki eini þátturinn í þessari ákvörðun. Nemendur sem lokið hafa sjötta ári í læknis fræði hafa lýst yfir óánægju með fyrir komulag kennslu á þessu námsári. Þótti þar ríkja bæði samhengisleysi og skipulagsleysi í kennslu og hefur haust- önnin iðulega verið kölluð „salatið“ vegna margra, ólíkra, smærri áfanga sem þar voru kenndir. Var álagið einnig ekki í samræmi við undangengin klínísk ár, þ.e. fólki þótti lítið að gera. Ánægja hefur þó ríkt með tólf vikna valtímabil sem hefur verið á vor- önninni en þá hefur læknanemum gefist tæki færi, í fyrsta sinn í sex ára námi, til að velja sjálfir hvar þeir verja tíma sínum eftir áhugasviði. Margir hafa nýtt þetta tímabil til að fara í verknám erlendis eða til að stunda rannsóknir og hafa látið vel af þeirri reynslu sinni. Það hefur þó einnig verið algengt að nemar hafi fengið þennan tíma metinn, til dæmis þeir sem átt hafa einingar úr fyrra námi, og hafa þeir þá nýtt þennan tíma í launaða vinnu eða önnur ótengd verkefni. Er það álit Læknadeildar að þessi tími hafi á heildina litið ekki verið að nýtast nemendum sem skyldi. Við endurskipulagninguna hefur einnig þurft að taka til greina stækkandi nemendahópa í læknisfræði en frá haustinu 2019 hafa verið teknir inn 60 nemendur á ári og því nauðsynlegt að byrja að huga að breytingum á klínísku árunum til að koma til móts við þá $ölgun. Stofnaður var vinnuhópur nokkurra kennara við Læknadeild, kennslustjóra, sérnámslæknis og fulltrúa nemenda til að standa að endurskipulagningunni. Rætt var við einstaka umsjónarkennara námskeiða til að sjá hvað mætti betur fara og hverju væri hægt að breyta til hins betra. Við þessa vinnu voru hæfniviðmið læknanáms, m.a. í Bandaríkjunum og Svíþjóð, höfð til Thelma Kristinsdóttir Fimmta árs læknanemi 2020–2021 Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir Hjartalæknir og kennslustjóri Læknadeildar hliðsjónar. Var markmiðið að tryggja þjálfun vinnubragða og getu til ákvarðanatöku svo að nemendur væru sem best undir það búnir að geta útskrifast með fullgilt lækningaleyfi. Breytingarnar Kennsla á sjötta ári í læknisfræði dreifist nú á báðar annir ólíkt því sem áður var þegar einungis valtímabil og CCSE prófið voru á vorönninni. Nemendum er því skipt í tvo hópa sem tekur hvor sína önnina en hóparnir víxlast svo við áramót. Sjá má skipu lag haust- og voranna á skólaárinu 2021-2022 ásamt áföngum á meðfylgjandi mynd. Áfangar eru að mestu leyti þeir sömu og hafa áður verið, með nokkrum undantekningum þó, og verða sumir þeirra kenndir öllum hópnum í einu eins og áður en aðrir tvíkenndir. Aukin áhersla verður á bráðalækningar og samhæfingu á milli svæfinga- og gjörgæslulækninga og bráðalækninga í þessu nýja skipulagi. Bætt verður við hermikennslu og viku á bráðamóttöku í verknámi, en það var áður kennt á $órða námsári. Kennsla í heimilislækningum, bráðalækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum dreifist þannig á báðar annirnar og fyrirlestrar eru tvíkenndir. Valtímabil verður stytt í $órar vikur í stað tólf og skilyrði til þess að fá það metið verða þrengd og ríkari krafa gerð um að þessi tími verði nýttur í að auka klíníska reynslu. Stærsta breytingin á kennslu á sjötta ári verður tilkoma sex vikna námskeiðs undir nafninu „Klínískt verklegt nám“. Námskeiðið er sex vikna langt og taka nemendur það ýmist að hausti eða að vori. Markmið þess er að leiða til góðra og farsælla starfshátta nýútskrifaðra lækna við klíníska vinnu. Á námskeiðinu verður nemendum skipt niður á hinar ýmsu klínísku deildir Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri. Verða nemendur í samfelldu verknámi á einni deild á meðan námskeiðinu stendur og lagt er upp með að þeir geti haft áhrif á það á hvaða deild þeir dvelja. Þeir munu vinna undir handleiðslu sérnámslæknis eða deildarlæknis með sérfræðilækni með handleiðaraþjálfun sem bakhjarl. Er markmiðið að handleiðari vinni klínískt með læknanemanum á tímabilinu til að Aðdragandi breytinga Þann 14. apríl 2021 tók gildi reglugerðar- breyting heilbrigðisráðherra sem felur í sér að fullt lækningaleyfi verður veitt eftir kandídatspróf, þ.e. að loknu sex ára læknanámi við Háskóla Íslands (HÍ).1 Nýút- skrifaðir læknar hafa hingað til þurft að ljúka kandídatsári til þess að öðlast almennt og ótakmarkað lækningaleyfi hérlendis. Það starfs þjálfunarár verður ennþá til staðar en nú verður það hluti af sérnámi lækna og kallast sérnámsgrunnur. Aðdragandi þessara breytinga eru sambærilegar breytingar á námi lækna sem innleiddar hafa verið víða erlendis en þar er gerð krafa um tólf mánaða starfsnám sem hluta af sér námi. Læknar útskrifaðir frá HÍ hafa lent í vandræðum þegar þeir hyggjast he$a sér nám sitt erlendis (aðallega í Noregi) þar sem íslenska kandídatsárið hefur ekki verið viður kennt sem hluti af sérnámi í þessum löndum þar sem það var unnið án fulls lækninga leyfis. Sambærilegar breytingar hafa nú þegar tekið gildi bæði í Noregi og Svíþjóð, en bæði löndin eru vinsæl þegar kemur að sérmenntun íslenskra lækna. Því er ljóst að reglugerðarbreytingin var nauðsyn leg, og að henni þurfti að koma hratt í gegn til að skerða tækifæri og menntun íslenskra lækna sem minnst. Til þess að bregðast við þessari reglu- gerðarbreytingu þurfti Læknadeild að fara í endurskipulagningu á sjötta námsári í læknis fræði. Mikil skipulagsvinna var unnin á vormánuðum 2021 og ákveðið var að breytingarnar skyldu taka gildi strax á haustönn þessa árs. Breytingarnar voru unnar með það til hliðsjónar að undirbúa lækna nema við HÍ sem best fyrir það að út skrifast með fullgilt lækningaleyfi. Þrátt fyrir að vera helsti dri.raftur endurskipulagningarinnar var það þó Endurskipulagning sjötta árs Endurskipulagning sjötta árs55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.