Læknaneminn - 01.04.2021, Side 73
71 Að blanda fræðum og fjöri
Dagáll læknanemans
Hlaðvarpið Dagáll læknanemans leit dagsins
ljós á haustdögum 2020 og er það gefið út
sem þáttasyrpa innan Hlaðvarps Landspítala.
Það fjallar um klíníska læknisfræði og fá
þáttastjórnendur til sín sérfræðinga og
sérnámslækna og leysa með þeim tilfelli í
viðkomandi sérgrein. Efni þáttanna byggir
helst á lyflækningum og er því beint að
læknanemum og öðrum áhugasömum.
Hlaðvarpið er það fyrsta sinnar tegundar á
Íslandi og hefur hlotið mikið lof bæði lækna
og læknanema.
Við tókum viðtal við þau Sólveigu
Bjarnadóttur og Teit Ara Theodórsson,
þáttastjórnendur Dagáls læknanemans,
og spurðum þau út í hlaðvarpið og
aðdragandann að gerð þess.
Hver eruð þið?
TAT: Ég heiti Teitur Ari Theodórsson og er
5. árs læknanemi og fráfarandi formaður
Félags læknanema (FL).
SB: Ég heiti Sólveig Bjarnadóttir og er
nýútskrifaður læknir í sérnámsgrunni og
fyrrum FL-ari.
Hvernig kom hugmyndin upp?
TAT: Ég hafði verið að vinna á hjartadeildinni
eftir 4. ár. Það sumar uppgötvaði ég læknis-
fræði hlaðvörpin sem eru mjög mörg og
mörg gífurlega góð. Mæli með við alla
lækna nema að kíkja á þau. Hins vegar
fannst mér glufa á markaðnum sem mig
langaði að fylla, fæst hlaðvörpin voru
sérstak lega sniðin að læknanemum. Svo
fannst mér bara svo góð hugmynd að fá
klukku tíma með vel völdum sérfræðingum
sem myndu þá svara öllum mínum
spurningum um tiltekið málefni undir því
yfirskini að ég væri að taka upp hlaðvarp.
SB: Ég hafði hlustað töluvert á hlaðvarpið
Curbsiders eftir að mér var bent á það af
góðum sérnámslækni og fannst ég læra
margt þar sem ég hafði ekki endilega lært
í skólanum. Ég hélt samt að Teitur væri
að grínast þegar hann varpaði fram þeirri
hugmynd að við myndum byrja með
hlaðvarp fyrir læknanema. Áttaði mig hins
vegar fljótt á því að honum var fúlasta alvara
og að þetta væri raunhæf og í raun frábær
hugmynd.
Var auðvelt að koma hugmyndinni í
framkvæmd?
TAT: Þrettán dögum frá því að ég ræddi þetta
við Sólveigu var fyrsti þátturinn kominn í
loftið. Kosturinn við hlaðvörp er að það er
mjög lítil yfirbygging. LSH átti græjur sem
þau voru tilbúin að lána okkur. Svo er þetta
bara plug and play. Samskiptafræðideild
LSH var okkur og er mjög innan handar ef
eitthvað kemur upp á.
SB: Við vissum að við þyrftum öflugan
viðmælanda til að ríða á vaðið og fengum
því Eyjamanninn Hjálmar Ragnar
Agnarsson í fyrsta þátt. Verandi sérstaklega
veikur fyrir hjartabilun þá var hann auðvelt
fórnarlamb. Höfum síðan fengið $ölmarga
góða gesti, suma oftar en einu sinni, og fólk
er undantekningarlaust mjög jákvætt fyrir
því að taka þátt.
Voruð þið að byggja á einhverri
ákveðinni fyrirmynd?
TAT: Ég hugsa að fyrst um sinn hafi aðal
fyrirmyndin verið hlaðvarpið Curbsiders.
Þeir eru með mjög langa þætti þar sem
kafað er ofan í tiltekið málefni. Mér finnst
þættirnir okkar þó núna vera að þróast
meira í átt að hlaðvarpi CPS (Clinical
Problem Solver) og verða þannig enn meira
tilfellamiðaðir, fær þannig hlustandann
til þess að setja sig í stellingar og hlusta af
athygli.
SB: Höfum einmitt tekið þrjá þætti - um
hita, gigt og lungnabólgu - þar sem rétt
greining er a'júpuð í lok þáttarins.
Var eitthvað sem kom á óvart?
TAT og SB: Það sem kom einna helst á óvart
var hversu breiður hópur hlustar á þættina.
Við lögðum af stað með það að gera hlaðvarp
fyrir læknanema en höfum síðan heyrt frá
sérnámslæknum, hjúkrunarfræðingum,
ly$afræðingum og $ölmörgum öðrum sem
eru að hlusta og okkur þykir sérstaklega
vænt um það.
Af hverju lyflækningar?
TAT og SB: Þegar ég var að hlusta á hlaðvörp
eins og Curbsiders tengdi ég mjög við
þáttastjórnendurna. Þeir voru oft að
spyrja um atriði sem ég var að velta fyrir
mér, eftir að hafa haft einhverja klíníska
reynslu af einhverju tilteknu vandamáli.
Varð mér þá ljóst að til þess að gera gott
klínískt hlaðvarp þyrfti maður helst að haft
einhverja klíníska reynslu. Þess vegna held
ég að lyflækningarnar hafi orðið ofan á í
þáttunum til þessa, þar sem við höfum bæði
unnið á lyflækningasviði. Við erum þó að
færa út kvíarnar. Við fengum t.d. geðlækna
með okkur í þátt um óráð og erum með
nokkra geð þætti á planinu. Svo erum við
líka með augn þátt í pípunum. Svo kannski
bara BMT þætti eftir sumarið hver veit?
„Ég hélt samt að Teitur væri að grínast þegar
hann varpaði fram þeirri hugmynd að við
myndum byrja með hlaðvarp fyrir læknanema.“