Læknaneminn - 01.04.2021, Qupperneq 93
Allt er …
Hugvekja um
allt og ekkert
Hvað er allt? Er allt ónæmisfræði? Er allt vænt sem vel er grænt? Eru
einkunnir mögulega allt? Páll Óskar syngur „Allt fyrir ástina.“ En
hvað ef ég elska læknisfræði? Get ég gert allt fyrir læknisfræðina? Ég
læri samviskusamlega fyrir allar deildir og get yfirleitt svarað þeim
spurningum sem fólk baunar á mig með stakri prýði. Ég sýni áhuga
á öllu sem sagt er við mig, hvort sem það er um heilaskurðaðgerð
eða Bristol hægðaskalann. Ég sýni virðingu og umburðarlyndi
í starfi og tek því með jafnaðargeði þegar einhver hvæsir á mig
á skurðstofu eða byrstir sig og lítillækkar mig fyrir að vita ekki
svörin við spurningum sínum. Ég læt eins og ég vilji ekkert frekar
en að skrifa aðra innlagnarskrá þegar ég er við það að fara heim
eftir langan skóladag og kvöldvakt. Deildarlæknar hafa nefnilega
áhrif á hverjir fá vinnu sem læknanemar á Landspítalanum á
sumrin, þetta hefur mér verið sagt. Ég er búin að vinna nógu lengi
á hjúkrunarheimili. Ég hef að sjálfsögðu tekið hjúkrunarvaktir,
mér var sagt að það væri bráðnauðsynleg reynsla. Ég skrifa
vísindagreinar og er skráð í doktorsnám samhliða læknanáminu
því rannsóknarstörf eru jú eitt af grunnhlutverkum læknisins.
Hver myndi einu sinni líta á ferilskrána mína hefði ég ekki stundað
neinar rannsóknir? Ég vinn á spítalanum með skóla til þess að öðlast
meiri klíníska reynslu og tek allar aukavaktir sem mér bjóðast. Ég
vil að allir sjái að ég sé dugleg og fá sem mesta þjálfun áður en ég fæ
lækningaleyfið því ég veit að því fylgir mikil ábyrgð og vinna. Ég
passa svo að hreyfa mig reglulega, fórna bara akkúrat nógu miklum
svefni og kaupa próteinstykki í sjálfsalanum á vöktunum í staðinn
fyrir súkkulaði. Svo eru það áhugamálin. Ég les auðvitað bækur,
helst þessar læknisfræðitengdu sem allir deildarlæknarnir eru
að tala um, en líka þessar nýju sem komu út um jólin og kannski
einhverja klassíkera. Ég fylgist með fréttum, les greinar á PubMed
og sæki stundum sinfóníutónleika. Eitthvað verð ég að geta talað
um í skurðaðgerðum, fólk sem horfir bara á Netflix í frítíma sínum
er ekki áhugavert. Ég byrja að svitna þegar fólk fer að spyrja mig
út í barneignir. Það hefur verið heitt umræðuefni í gegnum árin
hjá okkur kvenkyns einstaklingum bekkjarins hvenær best er að
eignast börn í þessu ferli. Hvernig hægt er að gera það án þess að það
fresti náminu um eina einustu mínútu. Guð forði því að lífið standi í
vegi fyrir læknisfræðinni.
Thelma Kristinsdóttir
Fimmta árs læknanemi 2020–2021
En vil ég gera allt fyrir læknisfræðina? Má ég gera bara sumt fyrir
læknisfræðina? Get ég elskað læknisfræði en samt ekki verið tilbúin
að fórna öllu fyrir hana? Ég var nefnilega að ljúga í textanum hér að
ofan. Stundum kem ég heim eftir dag á spítalanum, sest í sófann og
hugsa ekki meira um læknisfræði þann daginn. Satt best að segja
gerist það mjög reglulega. Ég veit ekki svarið við öllum spurningum
sem ég er spurð að og stundum tek ég það inn á mig þegar ég er
niðurlægð fyrir að vita ekki svarið. Það kemur líka fyrir að ég sé bara
alls ekkert þakklát fyrir að fá að halda í haka. Ég dáist að fólki sem
stundar rannsóknir af kappi en ég hef ennþá ekki fundið neitt sem
mig langar að rannsaka og ég hef heldur ekki nægan áhuga á þessu
sviði til að skrifa bara eitthvað til að ferilskráin mín líti betur út.
Það eru fleiri lygar hér að ofan en nóg um það. Ég vil koma aftur að
spurningunni, hvað er allt? Er allt í lagi? Allt í lagi þýðir bókstaflega
að ekkert sé í ólagi en ef einhver segði mér að ég væri bara allt í
lagi í læknisfræði þá myndi ég líklega ekki taka því mjög vel. Allt
í lagi er nefnilega af einhverjum ástæðum túlkað sem sæmilegt í
íslenskri tungu. Það finnst mér endurspeglast í læknisfræðinni.
Stöðug þörf til að vera meira en allt í lagi, finnast maður þurfa að
vera framúrskarandi, vera betri en aðrir, gera betur en aðrir, gera
engin mistök. En það að vera ekki allt þýðir ekki að maður sé ekkert.
Og þrátt fyrir algengan misskilning meðal mín og kollega minna er
það að vita ekki allt ekki það sama og að vita ekkert. Sumir geta verið
allt og það er bara frábært. Ég má samt elska læknisfræði án þess að
vera allt. Ég má elska læknisfræði og vera bara sumt. Ég má elska
læknisfræði og vera bara allt í lagi.
91 Allt er ...