Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 93

Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 93
Allt er … Hugvekja um allt og ekkert Hvað er allt? Er allt ónæmisfræði? Er allt vænt sem vel er grænt? Eru einkunnir mögulega allt? Páll Óskar syngur „Allt fyrir ástina.“ En hvað ef ég elska læknisfræði? Get ég gert allt fyrir læknisfræðina? Ég læri samviskusamlega fyrir allar deildir og get yfirleitt svarað þeim spurningum sem fólk baunar á mig með stakri prýði. Ég sýni áhuga á öllu sem sagt er við mig, hvort sem það er um heilaskurðaðgerð eða Bristol hægðaskalann. Ég sýni virðingu og umburðarlyndi í starfi og tek því með jafnaðargeði þegar einhver hvæsir á mig á skurðstofu eða byrstir sig og lítillækkar mig fyrir að vita ekki svörin við spurningum sínum. Ég læt eins og ég vilji ekkert frekar en að skrifa aðra innlagnarskrá þegar ég er við það að fara heim eftir langan skóladag og kvöldvakt. Deildarlæknar hafa nefnilega áhrif á hverjir fá vinnu sem læknanemar á Landspítalanum á sumrin, þetta hefur mér verið sagt. Ég er búin að vinna nógu lengi á hjúkrunarheimili. Ég hef að sjálfsögðu tekið hjúkrunarvaktir, mér var sagt að það væri bráðnauðsynleg reynsla. Ég skrifa vísindagreinar og er skráð í doktorsnám samhliða læknanáminu því rannsóknarstörf eru jú eitt af grunnhlutverkum læknisins. Hver myndi einu sinni líta á ferilskrána mína hefði ég ekki stundað neinar rannsóknir? Ég vinn á spítalanum með skóla til þess að öðlast meiri klíníska reynslu og tek allar aukavaktir sem mér bjóðast. Ég vil að allir sjái að ég sé dugleg og fá sem mesta þjálfun áður en ég fæ lækningaleyfið því ég veit að því fylgir mikil ábyrgð og vinna. Ég passa svo að hreyfa mig reglulega, fórna bara akkúrat nógu miklum svefni og kaupa próteinstykki í sjálfsalanum á vöktunum í staðinn fyrir súkkulaði. Svo eru það áhugamálin. Ég les auðvitað bækur, helst þessar læknisfræðitengdu sem allir deildarlæknarnir eru að tala um, en líka þessar nýju sem komu út um jólin og kannski einhverja klassíkera. Ég fylgist með fréttum, les greinar á PubMed og sæki stundum sinfóníutónleika. Eitthvað verð ég að geta talað um í skurðaðgerðum, fólk sem horfir bara á Netflix í frítíma sínum er ekki áhugavert. Ég byrja að svitna þegar fólk fer að spyrja mig út í barneignir. Það hefur verið heitt umræðuefni í gegnum árin hjá okkur kvenkyns einstaklingum bekkjarins hvenær best er að eignast börn í þessu ferli. Hvernig hægt er að gera það án þess að það fresti náminu um eina einustu mínútu. Guð forði því að lífið standi í vegi fyrir læknisfræðinni. Thelma Kristinsdóttir Fimmta árs læknanemi 2020–2021 En vil ég gera allt fyrir læknisfræðina? Má ég gera bara sumt fyrir læknisfræðina? Get ég elskað læknisfræði en samt ekki verið tilbúin að fórna öllu fyrir hana? Ég var nefnilega að ljúga í textanum hér að ofan. Stundum kem ég heim eftir dag á spítalanum, sest í sófann og hugsa ekki meira um læknisfræði þann daginn. Satt best að segja gerist það mjög reglulega. Ég veit ekki svarið við öllum spurningum sem ég er spurð að og stundum tek ég það inn á mig þegar ég er niðurlægð fyrir að vita ekki svarið. Það kemur líka fyrir að ég sé bara alls ekkert þakklát fyrir að fá að halda í haka. Ég dáist að fólki sem stundar rannsóknir af kappi en ég hef ennþá ekki fundið neitt sem mig langar að rannsaka og ég hef heldur ekki nægan áhuga á þessu sviði til að skrifa bara eitthvað til að ferilskráin mín líti betur út. Það eru fleiri lygar hér að ofan en nóg um það. Ég vil koma aftur að spurningunni, hvað er allt? Er allt í lagi? Allt í lagi þýðir bókstaflega að ekkert sé í ólagi en ef einhver segði mér að ég væri bara allt í lagi í læknisfræði þá myndi ég líklega ekki taka því mjög vel. Allt í lagi er nefnilega af einhverjum ástæðum túlkað sem sæmilegt í íslenskri tungu. Það finnst mér endurspeglast í læknisfræðinni. Stöðug þörf til að vera meira en allt í lagi, finnast maður þurfa að vera framúrskarandi, vera betri en aðrir, gera betur en aðrir, gera engin mistök. En það að vera ekki allt þýðir ekki að maður sé ekkert. Og þrátt fyrir algengan misskilning meðal mín og kollega minna er það að vita ekki allt ekki það sama og að vita ekkert. Sumir geta verið allt og það er bara frábært. Ég má samt elska læknisfræði án þess að vera allt. Ég má elska læknisfræði og vera bara sumt. Ég má elska læknisfræði og vera bara allt í lagi. 91 Allt er ...
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.