Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 97

Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 97
95 Hvaða lyfjaflokkur ert þú? a) Hægðalyf: Ef aðeins þú gætir hugsað um námið eins og þú hugsar um hægðirnar þínar. Í raun er þér ekki treystandi fyrir mannlegum samskiptum þar sem fátt annað kemst fyrir í huga þínum en Bristol hægðaskemað. Spurningin sem þú gleymir aldrei á stofugangi er ,,hvernig eru hægðirnar í dag”. Það brennir fátt eins mikið í augun og einstaklingur á morfínskyldum ly$um án hægðalyfs samhliða. b) Geðlyf: Þú ert mögulega svolítið sveiflukenndur persónuleiki. Getur verið uppi en líka niðri. Þér finnst geðlæknisfræði geggjuð en þú verður smá geggjaður af henni. Það hafa komið tímabil þar sem SSRI hefur verið lausn á þínum vandamálum. Þú ert stundum svo illa haldin/inn/ið að það jaðrar við að þú sért með ranghugmyndir. Þú hefur hins vegar þann göfuga hæfileika að hlusta og ert það sem Engilbert deildarforseti myndi líklega kalla næmur persónuleiki. c) Líftæknilyf: Þú ert draumur medisinska yfirlæknisins. Þú lærðir Handbókina utanbókar fyrir verklega medisin prófið og komst alltaf undirbúin/inn/ið í tíma. Þér fannst ótrúlega gagnlegt að læra sameindalíffræðina í preklíník og þér finnst essential að þekkja Krebs hringinn og öll helstu jónagöngin enda mikilvægt fyrir grunnskilning í ly$afræði. Það að fara yfir gömul próf gefur þér óæskilegt forskot en þú þarft það hvort sem er ekki. Þú ert alltaf búin/inn/ið að lesa bókina sem mælt er með á kúrsinum. Það má með sanni segja að þú sért framtíð læknisfræðinnar. d) Verkjalyf: Einu sinni skáti ávallt skáti. Þú veist aldrei hvað bíður þín úti í hinum óreiðukennda heimi en þú veist að þú kemst aðeins lengra ef þú átt íbúfen. Höfuðverkur? Túrverkur? Stoðkerfisverkir? Say no more, þú ert með stuffið. Bekkjarsystkini þín vita að þú ert alltaf með lager af NSAID og Cox ly$um. Það aflar þér sérstakra vinsælda daginn eftir bekkjardjammið. Þú óttast líka alls ekki lyf. Mundu samt að hægðaly$avinir þínir líta þig stundum hornauga, sérstaklega ef þú lumar á einni parkódín. e) Anabólískir sterar: Þú ert alltaf í ræktinni. Fyrsta máltíð dagsins er protein shake, mögulega líka önnur og þriðja. Kaffi hvað? Þú drekkur bara amino. Þú ætlar klárlega í bæklun af því þú sérð deildarlæknaherbergi bæklunar í hyllingum. Þar er allur búnaðurinn sem þú þarft fyrir vinstri og hægri byssuna. Þú hefur aldrei sýnt jafn mikinn áhuga í tíma og þegar Raggi og Maggi kenndu líffærafræði útlima, nema jú kannski þar til þú komst í bæklunarfyrirlestur á 4. ári. „Ég gæti spengt á þér bakið, elskan“ er pick- up línan sem þú notar í bænum og þú ferð aldrei ein/einn/eitt heim. f) Náttúrulyf: Þú ert ekki mikið fyrir nútíma læknavísindi. Þú ert í raun ekki alveg viss af hverju þú valdir læknisfræði en hefur samt haft alla burði til að vera hér. Þú ert ekkert viss um að Wakefield hafi verið að ljúga. Þú ert heldur ekki alveg sammála heilbrigðisyfirvöldum um COVID-19. Fólk lýgur alveg og þetta er nú bara eins og hvert annað kvef. Þú fórst í bólusetningu en varst samt mjög á móti því. En Jóhannesarjurtin! Hún er sko allra meina bót! g) Sýklalyf: Þú ert eins og köttur sem lendir alltaf á fótunum. Próf í næstu viku og þú ert ekki búinn að læra neitt allan kúrsinn? Einn all- nighter á þig og málunum er reddað. Eins og frammistaða penicillins í lágu CURB65 skori. Passaðu þig samt. Kennarinn getur séð í gegnum þetta með heiftarlegum viðbrögðum, sérstaklega ef þú lest rangar glósur. Auk þess er ekki gott að taka inn svona mikið af upplýsingum á skömmum tíma. Þú getur orðið hægari í hugsun og ónæmari fyrir nýjum upplýsingum. Ef þú varst með flest:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.