Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 110

Læknaneminn - 01.04.2021, Síða 110
Læknaneminn108 2005-2019. Úr Vökudeildarskrá fengust upp- lýsingar um kyn, meðgöngulengd, fæðingar- þyngd, lengd og höfuðummál við fæðingu. Úr gæsluskrám voru sóttar upplýsingar um staðsetningu barka rennu við nös eða vör. Skoðaðar voru röntgen myndir af börnunum teknar á fyrstu viku lífs og út frá þeim reiknað hversu langt frá barkakili endi barkarennu ætti að vera stað settur, þ.e. í sömu hæð og T1 og miðað við það var fundið út hvar barkarennan hefði átt að vera fest við nös eða vör. Síðan var gerð línu leg aðhvarfsgreining á þeim breytum sem höfðu línulegt samband við rétta staðsetningu til að smíða reiknilíkanið. Niðurstöður: Þátttakendur í rann- sókninni voru 464 börn, fædd á 23.-42. viku meðgöngu, þar af voru 311 með barka- rennu festa við nös (N-hópur) og 153 með barkarennu festa við vör (O-hópur). Meðal- $arlægð frá kjörstaðsetningu í N-hóp var 5,9 mm en 10,6 mm í O-hóp (p<0,01), en í báðum hópum var algengara að barkarenna færi of langt niður en of stutt, auk þess sem meðal $arlægðin í þá átt var lengri (p<0,01). Allar breytur sem voru skoðaðar höfðu línu legt samband við rétta staðsetningu að kyni undanskildu. Samsett líkön fyrir allar breyturnar fengust með R2=0,8272 (við nös) og R2=0,7365 (við vör). Líkön byggð eingöngu á meðgöngulengd höfðu R2=0,7639 (við nös) og R2=0,5924 (við vör). Öll líkönin gáfu nákvæmari staðsetningu fyrir börn fædd fyrir 28 vikna meðgöngu, en börn fædd eftir 28 vikna meðgöngu. Ályktun: Niðurstöðurnar benda til þess að barkaþræðing um munn sé ónákvæmari m.t.t. staðsetningar en um nef, en fyrir báðar aðferðir er hættara við því að barka- renna fari of langt en of stutt. Ættu læknar því mögulega að þræða barkarennu styttra en lengra, ef vafi leikur á um það hvort um rétta staðsetningu sé að ræða. Reiknilíkönin eru nákvæmari en þau viðmið sem notuð eru í dag og notkun líkananna gæti orðið til að fækka þeim skiptum þar sem endur- staðsetja þarf barkarennu og dregið úr alvarlegum fylgikvillum tengdum rangt staðsettri barkarennu. Þá er jafnframt hentugt að hafa líkan sem byggir eingöngu á meðgöngulengd, þegar barkaþræða þarf nýbura í bráðaaðstæðum strax eftir fæðingu og aðrar stærðir ekki þekktar. Þó er ekki víst að líkönin gefi góða raun fyrir börn eldri en viku gömul né heldur fyrir mjög stór börn, þar sem rannsóknarhópurinn innihélt bara börn barkaþrædd á fyrstu viku lífs og mjög fá þyngri en 4500g. Association of Lowering Default Pill Counts in Electronic Medical Record Systems With Postoperative Opioid Prescribing After Cardiac Surgery Arnar Einarsson BS1, Alexander S. Chiu MD3 , Makoto Mori MD2, Arianna Kahler-Quesada BS4, Roland Assi MD MMS2, Prashanth Vallabhajosyula MD MS2, Arnar Geirsson MD2 1 Faculty of Medicine, School of Health Sciences, University of Iceland, 2 Division of Cardiac Surgery, Yale School of Medicine, New Haven, CT, USA, 3 Department of Surgery, Yale School of Medicine, New Haven, CT, USA, 4 Yale School of Medicine, New Haven, CT, USA Objective: Overprescribing of opioids has contributed to the opioid epidemic. Electronic medical records (EMR) systems can auto-populate a default number of opioids that are prescribed at time of discharge. The aim of this study was to examine the association between lowered default pill counts with changed prescribing practices after cardiac surgery. Methods: On May 18 2017, the default number of pills prescribers see in electronic medical records in the Yale New Haven Health System was lowered from 30 to 12. Patients undergoing coronary artery grafts, valve surgeries, and thoracic aortic aneurysm surgeries were included in this study. Data was gathered and stratified in to two groups: One year prior and one year following the default change. The amount of opioid prescribed was compared between the two groups. Results: A total of 1741 patient charts were reviewed, 832 before the change and 909 after the change. Significant changes were seen in prescribing practices, where the average amount of opioid prescribed was about 25% lower after the change. This amounted to about 15 fewer pills of 5 mg morphine for each patient. A linear regression model adjusting for other factors determined a prescribing difference of 75.2 morphine milligram equivalent (MME) per prescription (p < 0.01). In addition, a significant decrease in opioids prescribed was found for each type of procedure. Conclusions: Lowering the default opioid pill count in EMRs is a simple intervention that may modify prescribing behavior to promote judicious prescribing of opioids after cardiac surgery. Getur súrefnismettun í æðum sjónhimnu gefið vísbendingar um orsök vægrar vitrænnar skerðingar? Ágúst Kolbeinn Sigurlaugsson (Ágrip barst ekki.) Árangur míturlokuviðgerða vegna hrörnunartengds míturlokuleka á Íslandi 2004-2018 Árni Steinn Steinþórsson1, Martin Ingi Sigurðsson1,2, Tómas Guðbjartsson1,3 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala, 3Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala Inngangur: Míturlokuviðgerð er þriðja algengasta opna hjartaaðgerðin á Íslandi en árlega eru gerðar á bilinu 10-15 slíkar aðgerðir. Míturlokuleki er algengasta ábendingin og má skipta í annars vegar starf rænan míturlokuleka og hins vegar hrörnunar tengdan leka. Tilgangur rann- sóknarinnar var að kanna $ölda og árangur mítur lokuviðgerða vegna hrörnunartengds leka með áherslu á fylgikvilla og lang- tímalifun. Efni og aðferðir: Rannsóknin var aftur- skyggn og náði til 82 sjúklinga (meðalaldur 55 ár, 76% karlar) sem gengust undir mítur- loku viðgerð vegna hrörnunartengds leka á Landspítala á tímabilinu 2004 – 2018. Úr sjúkraskrám voru skráðar tæplega 150 breytur, m.a. um fyrra heilsufar og einkenni mítur lokulekans. Niðurstöður hjarta- ómunar fyrir aðgerð voru skráðar sem og helstu aðgerðartengdir þættir. Farið var yfir snemmkomna (< 30 daga) fylgikvilla, bæði alvarlega og minniháttar og reiknuð 30 daga dánartíðni. Árlegur $öldi aðgerða var aldursstaðlaður skv. upplýsingum frá Hag stofu og poisson-aðhvarfsgreining notuð til að meta breytingar á $ölda þeirra. Lang- tíma lifun var áætluð með aðferð Kaplan- Meier. Miðgildi eftirfylgdartíma var 6 ár (bil: 0 – 15) og miðaðist við 31.desember 2018. Niðurstöður: Að meðaltali voru gerðar 6 viðgerðir á ári (bil: 1-12). Algengi snemm- kominna fylgikvilla var 65% og 30 daga dánar tíðni 2,4%. Alvarlegir fylgikvillar greindust hjá 36,6% sjúklinga og var hjarta drep tengt aðgerð algengast (26,8%) og enduraðgerð vegna blæðingar næst algengast (8,5%). Minniháttar fylgikvillar greindust hjá rúmlega helming (56,1%) sjúk- linga og var nýtilkomið gáttatif algengast (28,0%). Miðgildi dvalar á gjörgæslu var 1 [0,5] dagar og heildarlegutími 7 [0,16] dagar. Enginn sjúklingur þurfti að gangast undir enduraðgerð vegna endur komu mítur- lokuleka á eftir fylgdar tímabilinu. Mánuði eftir aðgerð var lifun 97,6% (95%-ÖB: 94,3-100) og einu ári eftir aðgerð var lifun 97,6% (95%- ÖB: 94,3-100), fimm árum eftir aðgerð var lifun 94,8% (95%-ÖB: 90,0-99,9) og eftir 10 ár 88,1% (95%-ÖB:78,3-99,1). Ályktun: Árangur míturlokuviðgerða vegna hrörnunartengds leka er góður á Íslandi og á pari við árangur á stærri hjarta - skurðdeildum erlendis. Almennt farnast sjúklingum vel, bæði með tilliti til fylgi- kvilla og langtímalifunar (95% 5-ára lifun).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.