Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 9

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 9
Tafla 2. Niðurstöður af talningu lifandi plantna í kvæmatilraun á lerki, Sarpi í Skorradal 1986 (2 árum eftir gróðursetningu) %lifandi Tegund Kvæmi *** plöntur Rússalerki Guðrúnarlundur ................................................. A 50,0 Síberíulerki Sjagonar (Tuvinskaya)........................................... B 36,7 Síberíulerki VerKatunski(Altai,1850m.h.y.s.) ................................ B 34,2 Síberíulerki Tsemalski (Altai,1200 m.h.y.s.) ............................... BC 32,9 Síberíulerki Sonski (Krasnojarsk) .......................................... BC 32,5 Síberíulerki Ust Kanski (Altai,1000 m.h.y.s.) .............................. BC 30,9 Rússalerki Kuhmo (Finnland) .............................................. BC 28,4 Rússalerki Hirvas (Finnland) .............................................. C 26,2 Rússalerki MoDo (Svíþjóð) ................................................. D 20,8 Rússalerki Hausjárvi (Finnland) ........................................... D 20,8 *** Kvæmi sem ekki hafa sama bókstaf hafa tölfræðilega sannaðan mismun á vanhöldum. Athuganir á afföllum í kvæmarannsóknum eru ekki síður athyglisverðar en mælingar á vexti og vaxtarlagi trjáa. Athuganir á vanhöldum eru einn hluti af svokölluðum forprófunum á kvæmum trjátegunda (early testing), en mikil áhersla er lögð á þær í kvæmarannsóknum í dag. Það vekur athygli hvað eina íslenska kvæmið í tilrauninni, úr Guðrúnarlundi á Hallormsstað, ber af hinum kvæmunum. Petta bendir til þess að erfðafræðilegur ávinningur sé mikill strax í fyrsta ættlið. Ef þessi tilgáta reynist vera rétt ber að leggja meiri áherslu á að safna fræi af íslenskum trjám og takmarka innflutning erlendra kvæma eins mikið og unnt er. í samskonar tilraun á Buðlungavöllum, rétt innan við Hallormsstað, voru afföll einnig sann- anlega minni á lerki úr Guðrúnarlundi en öðrum kvæmum (Þórarinn Benedikz 1987. Munnleg heimild). Plönturnar sem notaðar voru í tilrauninni voru eitthvað misgóðar og rýrir það nokkuð mark- tækni niðurstaðanna. 3. Sjúkdómar og skemmdir. Aðeins einn sjúkdómur virðist hafa herjað á lerki hér á landi. Er það douglasátan (Potebni- amyces coniferarum (Hahn) Smerlis) en hún er sveppsjúkdómur náskyldur lerkiátunni sem áður hefur verið minnst á. Sveppurinn, sem veldur átunni, var fyrst einangraður hér á landi 1969 og virðast sjúkdómseinkennin vera svipuð og hjá lerkiátunni erlendis (Roll-Hansen 1969 og 1973). Sveppurinn sest að í skemmdum vef og breiðist út þaðan. Hann veldur sjaldan dauða trjánna og oftast aðeins óverulegum greinadauða. Eins og að líkum lætur er tíðni og umfang sýkinga og skemmda mjög háð öðrum skakkaföll- um sem trén verða fyrir, s.s. frostskemmdum og beitarskemmdum, en sveppurinn getur ekki sýkt heilbrigðan vef. Utbreiðsla douglasátunnar hefur ekki verið könnuð ýtarlega hér á landi. Sennilega er hún landlægur sjúkdómur þar sem hún getur auðveld- lega borist með plöntum og jarðvegi frá gróðrar- stöðvum út í skóglendin. Enn sem komið er hafa ekki fundist hér á landi skaðsöm skordýr eða önnur meindýr á lerki (Jón Gunnar Ottósson 1985. Munnleg heimild). Víða erlendis gera skordýr, eins og t.d. lerkiblaðlús, mikinn usla í lerkiskógum. Pað er því til mikils að vinna að komið sé í veg fyrir innflutning skaðvalda á lerki úr dýraríkinu, sbr. örlög skógarfurunnar hér á landi. Afleiðing- ar skordýraplága geta verið mjög svo afdrifaríkar. Hreindýr hafa lagst á lerki að vetrarlagi austan- lands og hafa þau með biti og nagi skemmt ungan lerkiskóg töluvert (Jón Loftsson 1976). Eftir skemmdir dýranna fylgir douglasátan í kjölfarið og gengur endanlega frá þeim trjám sem verst eru farin. Beitarskemmdir geta þannig orðið mjög ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987 7
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.