Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 61

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Side 61
hefur verið lögð fram áætlun um 1.800 ferkfló- metra skógrækt á völdum svæðum. Slíkt starf er 15 ára verkefni og til þess er talið að útvega þurfi árlega tæpar 130 m.kr. eða samanlagt fyrir allt tímabilið um tvo milljarða króna. Við starfsemina mætti reikna með um 150 ársstörfum. Þetta eru stórhuga áform en það sem ekki segir í lögum eða ályktunum er hvers konar eða hversu miklar nytjar menn hafa í huga. í nýútkominni Árbók bóndans er grein eftir skógræktarstjóra ríkisins um nytjaskóga á bújörð- um. Þar segir höfundur að orðið „nytjaskógur" skýri sig að mestu leyti sjálft, en áhersla skuli lögð á það, að átt sé við beinar efnislegar nytjar sem skógurinn gefi af sér. Auk þess getur skógur gefið af sér óbeinar nytjar. Þá er viðarframleiðsla aðalmarkmið. f framhaldi af þessu spyr höfundur sig eftirfarandi spurninga: 1. Hve mikið vex skógurinn? 2. Hvers slags viður fæst úr skóginum og hvaða markaður er fyrir afurðirnar? 3. Hve mikið kosta ræktunin, skógarhögg og vinnsla? Allt eru þetta góðar og gildar spurningar sem vitaskuld verður að finna svör við áður en nytja- skógrækt er hafin. Ég held nefnilega að svörin skipti höfuðmáli fyrir áframhald allrar umræðu og hugtakið „nytjaskógur" skýri sig ekki fyllilega sjálft. Um fyrstu spurninguna ætla ég ekki að hafa mörg orð en að því er best verður séð er vöxtur skógar vel sambærilegur við það sem gerist í nálægum löndum þar sem ræktaður er nytja- eða arðskógur. Skógræktarmenn munu vera nokkuð öruggir um að 4-5 rúmmetrar við góð skilyrði sé líklegur vöxtur á stórum svæðum. Er þá miðað við að jarðvegur sé unninn og áburður borinn á plöntur til þess að örva vöxt. Önnur spurningin varðar hvers konar viður eigi að fást úr skóginum. Skógræktarstarf hér á landi hefur í ríkum mæli beinst að því að finna þær tegundir sem best fella sig við jarðveg og veður- far. Tilteknar tegundir sýna þar yfirburði. Ekki segir það þó að afurðir þeirra séu þær sem mest er sóst eftir og gefi mest í aðra hönd. Þær afurðir sem nú eru unnar úr skógum okkar eru fyrst og fremst jólatré og girðingarstaurar. Jólin höldum við aðeins einu sinni á ári og girðingarstaurar úr tré eru á undanhaldi fyrir rafmagnsgirðingum og staurum úr öðru efni. Skógrækt til nytja og sem atvinnugrein verður því að byggjast á öðrum rökum. Þannig liggur næst hendi að ætla, að menn hafi í huga borðvið og massavið til iðnað- arframleiðslu. Einnig kemur til álita vinnsla úr trefjum og viðarkurli í t.d. plötugerð. Markaðir þykja ótryggir á mörgum sviðum. Þar gildir nánast einu hvort um er að ræða þungaiðnað, léttan iðnað eða matvælafram- leiðslu. Á öllum sviðum er hörð samkeppni um markaði. Ég held að allir spádómar um líklega markaði fyrir girðingarstaura, trefjaplötur eða borðvið séu einkar ótryggir ef við hugsum hálfa eða heila öld fram í tímann svo ekki sé lengra farið. Iðnríkin hafa verið furðulega lagin að taka upp hvers konar gerviefni í stað lífrænna efna. Tökum sem dæmi fataiðnaðinn. Á því sviði hafa gerviefni verið í stöðugri sókn. Grundvallarspurningin er e.t.v. sú hvort lífræn efni eins og trjátrefjar eigi framtíð fyrir sér í heiminum. Að áliti fúturista eða framtíðarsinna er það talið svo. Og það má líka setja fram sem rök að trjávörur muni þá fyrst verða verðmætar þegar skógum á stórum svæðum í heiminum hefur verið spillt með súru regni og öðru eitri eða skógar verið höggnir ótæpilega sem víða virðist vera. Þriðja spurningin sem varpað var fram var um tilkostnað við skógrækt hér á landi. Ég held að engum biandist hugur um það að kostnaður við skógarbúskap hlýtur að verða allnokkur. Það þarf að brjóta land, bera á plöntur, girða svæði, koma upp samgönguleiðum, vélvæða starfsemina o.fl. o.fl. Við megum alls ekki gleyma því að skógrækt í löndum nálægt okkur er rekin sem stóriðja og skógurinn er hluti af vistkerfinu. Tilkostnaður er og verður því um langa framtíð minni þar en hér á landi. Því held ég að hugmynd- ir manna um það að nytjaskógrækt í reitum allt niður í 25 ha geti aldrei orðið arðvænleg í hörðu, fjárhagslegu tilliti. í stefnumörkun og ályktunum um skógrækt setja menn markið misjafnlega hátt eins og þið heyrið og stundum liggur mér við að segja full djarfmannlega. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987 59
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.