Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 137

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1987, Page 137
stjórnar og greindi frá helstu málum, sem af- greidd höfðu verið frá síðasta aðalfundi og öðrum þeim viðfangsefnum sem unnið væri að innan nefnda og stjórnar. í lok máls síns beindi hún því til skógræktarfélaganna að þau yrðu að beita sér fyrir því að efla skógræktina heima í héruðum. Framkvæmdastjóri félagsins flutti því næst yfirlit um störf s. 1. árs. A vegum félaganna hefðu verið gróðursettar 245 þús. plöntur og umhirða plantna hefði stóraukist á árinu. Sú nýbreytni varð á fræðslustarfinu, að á sumrinu 1985 réðst Brynjólfur Jónsson skógfræðistúdent til starfa hjá Skógræktarfélaginu. Fór hann á milli félaganna á Vestfjörðum og Vesturlandi og leiðbeindi þeim um ýmis fagleg efni auk þess sem hann veitti þeim margvíslega félagslega aðstoð. Þetta væri spor í rétta átt, en vinna yrði að því að fá ráðinn erindreka í heilsársstarf fyrir félagið. Sigurður Blöndal skógræktarstjóri ávarpaði því næst fundinn. Hann kvað skógræktina hafa með- byr, sem nauðsynlegt væri að nota sér. Kæmi sá meðbyr m. a. í kjölfar þeirrar kreppu, sem hefð- bundinn landbúnaður væri nú í. Þorvaldur S. Þorvaldsson gjaldkeri félagsins lagði fram reikninga þess og Skógræktarsjóðs Húnavatnssýslu, en þeim var dreift fjölrituðum til fundarmanna. Reikningarnir voru bornir upp og samþykktir samhljóða. Að þessu ioknu var kosið í nefndir og lagðar fram þær tillögur sem fundinum höfðu borist. Eftir matarhlé fyrsta fundardag hófst fundur að nýju með því að fulltrúar skógræktarfélaganna gáfu skýrslur um starfsemi félaganna. Allmiklar umræður spunnust út af skýrslum félaganna og fram komnum tillögum og málum, s. s. um tillögu um frekari friðun á Reykjanesskaga og tillögu um ráðningu erindreka fyrir félagið. Fundur hófst að nýju á laugardagsmorgun með erindi Vilhjálms Lúðvíkssonar. Hann kvað mark- mið í skógrækt oft vera nokkuð óljós og nefndi nokkur dæmi þar um. Skógræktin ætti að beina kröftum sínum á færri landsvæði en verið hefur og vinna eftir langtímaáætlunum, a. m. k. þegar um nytjaskógrækt er að ræða. Hið sama gilti raunar um önnur ræktunarmarkmið, s. s. skógrækt til landgræðslu og útivistar. Miklar og fjörugar umræður spunnust út af erindi Vilhjálms. Létu menn í ljós ánægju sfna yfir tímabæru erindi og ræddu kosti og galla á hugmyndum þeim er fram komu í erindinu. Eftir hádegisverðarhlé var farin skoðunarferð að Kröflu, skoðað virkjunarsvæðið og stöðvar- hús. Þaðan var haldið í Höfða, skoðuð trjáræktin þar og þegnar þar veitingar í boði Skútustaða- hrepps. Um kvöldið sátu fulltrúar og gestir veislu í boði sýslunefndar S.-Þingeyjarsýslu. Að borðhaldi loknu var haldin kvöldvaka í umsjá heimamanna og var þar margt til skemmtunar. Á kvöldvök- unni var Wilhelm Elsrud, fv. framkvæmdastjóri Norska skógræktarfélagsins, sæmdur gullmerki Skógræktarfélags íslands, en hann hafði áður á fundinum verið kjörinn heiðursfélagi. Þá var þeim Hólmfríði Pétursdóttur, Reynihlíð, og Ing- ólfi Sigurgeirssyni, Stafni, veitt verðlaun fyrir vel unnin störf í skógrækt. Við sama tækifæri var Wilhelm Elsrud framkvœmdastjóri Skógræktarfélags Noregs varfulltrúi þess á aðalfundinum. Hér sést hann (í miðið) á tali við ísleif Sumarliðason (t.v.) og Pál Guttormsson (t.h.). Mynd: S.Bl. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1987 135
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.