Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 55

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Side 55
ROGER LINES Vangaveltur um ýmis vandamál í skógrækt á íslandi UMHÖFUNDINN Roger Lines starfaði í áratugi við Northern Research Station (Nyrðri rannsóknastöðina) í skógrækt rétt utan við Edinborg í Skotlandi. Hann er meðal reyndustu og virtustu sérfræðinga heimsins í ræktun trjátegunda, sem fluttar eru milli heimsálfa eða landa. Hann hóf á fjórða áratug rannsóknir á því, hvaða trjátegundir og kvæmi hentuðu best í ræktun á Bretlandseyjum. Niðurstöður af þessu ævistarfi hans birti hann í litlu riti, sem nefnist „Choice of Seed Origin for the Main Forest Species in Britain“ („Val á kvæmum helstu skógartrjáa á Bret- landseyjum“) og kom út árið 1987. Roger Lines hefir á langri starfsævi ferðast víða um lönd og kynnt sér þar skóga og skógrækt. Sérstaklega er þekking hans á trjá- tegundum á vesturströnd Norður-Ameríku yfirgrips- mikil, svo að þar á hann fáa sína líka. Hann kom til Islands sumarið 1967 og kynnti sér skógræktina víða um land. Skrifaði um ferðina ákaflega vandaða skýrslu. Hann heimsótti Færeyjar árið 1986 og skrifaði grein um skógrækt þar í tímaritið Scottish For- estry 1987. Roger hefir nú látið af störfum fyrir aldurs sakir. Með hjálp breska sendiherrans á Islandi, Mr. Mark F. Chap- man, var honum gert kleift að heimsækja Island öðru sinni sumarið 1988. Fór hann og kona hans víða um land í fylgd Aðalsteins Sigurgeirssonar og komu þau í flest helstu skógræktarsvæði landsins. Eg var með þeim í Hallormsstaðaskógi og var einstaklega lærdómsríkt að ganga með honum um sömu teigana og við gengum um fyrir 21 ári. Hann hafði í vasanum minnisbókina sína frá þeim tíma og bar saman við það, sem nú blasti við aug- um. Minni hans reyndist auk þess ótrúlega gott. Roger hefur skrifað skýrslu um þessa ferð og lýsir þar hverju einasta svæði, sem hann heimsótti nú. Skýrslunni lýkur með yfirlitskafla, sem hann nefnir þvínafni,semhérernotaðsemfyrirsögn. Égtaldisjálf- sagt að gefa lesendum Ársritsins kost á því að sjá álit þessa heimsþekkta skógvísindamanns á því, sem við höfum verið að gera á undanförnum áratugum og álykt- anir hans af því. Gaf Roger mér ljúfmannlega leyfi til þess að vinsa úr þessum kafla þau atriði, sem hefðu almennt gildi fyrir lesendur ritsins. Færi ég honum bestu þakkir fyrir það. Sigurður Blöndal STRANDKVÆMl AFSTAFAFURU FRÁ ALASKA í JÓLATRÉSRÆKT í mörgum stafafuruteigum af Skagway-kvæmi, sem við skoðuðum í ferðinni, voru of margir ein- staklingar með of veikar hliðargreinar fyrir jólatré. Ég legg til. að reynt verði stafafurufræ frá Prince of Wales-eyju, Baranof-eyju (t.d. Sitka) eða jafnvel Annette-eyju. Nauðsynlegt væri að gróðursetja jólatrén á sæmilega skýldum stöðum í fremur frjósaman jarðveg. Rétt er að hafa gisnar raðir af birki sem hliðarskjól. Við slíkar aðstæður myndu tveggja ára gamlar bakka- plöntur með góðu rótarkerfi taka fljótar við sér eftir gróðursetningu en stafafuruplönturnar fyrr á árum, sem aldar voru upp í beði. Þetta vekur spurningu um það, hvort Skógrækt ríkisins eigi að hafa jólatrésræktun sem meginmarkmið, eða hvort ætti að láta einstaklinga annast þessa ræktun. Hins vegar verð ég að láta þess getið, að Hákon Bjarnason taldi í samtali okkar í lok heimsóknarinnar, að af Skagway-kvæminu gætu vaxið jólatré með vel lagaðri krónu, ef gróðursett væri nógu gisið. Hann taldi ennfremur, að stafa- fura frá Annette-eyju væri of suðlægt kvæmi. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989 53
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.