Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Blaðsíða 141
Fulltrúar á aðalfundinum í
Reykholti fóru í kynnisferð
í Skorradal. Hér tekur
Agúst Arnason skógar-
vörður á móti þeim á Stálpa-
stöðum. Mynd: Sig. Blöndal
27-08-88.
á ári. Þetta yrðu væntanlegir félagar. Þeim yrðu
gefnar plöntur til að gróðursetja og þeinr leið-
beint. Markús Runólfsson, Skf. Rangæinga,
sagði frá þeirri fjáröflunarleið að gefa út jólakort.
Rangæingar hefðu haft góðar tekjur á s. 1. ári af
slíkri sölu. Að umræðum loknum voru lagðar
fram þær tillögur er fundinum höfðu borist. Að
lokum voru reikningar Skógræktarfélags íslands
bornir upp og samþykktir samhljóða.
Laugardaginn 27. ágúst hófst dagskráin á
erindi Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra.
Hann sýndi einnig myndir frá uppgræðslu lands
með áburði og grasfræi og það hvernig loðvíðir
og gulvíðir verða ríkjandi og birkið sækir á. Þjóð-
arátaks er þörf við landgræðslu. Kortleggja þarf
það land, sem tiltækt er til þess að gefa almenn-
ingi eða samtökum tækifæri til þess að taka land í
fóstur. Verið er að vinna að tilraunum með teg-
undir til landgræðslu og samnýtingu þeirra.
Andrés Arnalds beitarþolssérfræðingur talaði
um endurheimt birkiskóga. Frá upphafi var
markmið landgræðslunnar að stöðva sandfok og
síðar að sá grasfræi. Nú er endurheimt birkiskóg-
anna það sem stendur hjarta þjóðarinnar næst.
Tvö hundruð kíló af hreinsuðu birkifræi er nú til
eftir söfnunarátakið í fyrra. Halda þarf fræ-
söfnuninni áfram. Verið er að gera tilraunir með
áburðarnotkun. Landgræðsluátak er skipulagt
meðal skólafólks.
í umræðum kom m. a. fram:
Ánægja með átakið í söfnun birkifræs 1987 og
var samþykkt að halda því áfram. Skógræktarfé-
lög og sveitarfélög þurfa í sameiningu að finna
land til ræktunar og spurst var fyrir um það
hvernig úttekt á þeim svæðum færi fram. Kennslu
og fræðslu er þörf þar sem verið er að fram-
kvæma. Semja þarf rammalög um búfjárhald og
landnytjar. Ræktun skjólbelta er liður í hugar-
farsbreytingu. Eftir umræður svöruðu frummæl-
endur fyrirspurnum.
Að lokum gerði Guðmundur Þorsteinsson
grein fyrir tilhögun skoðunarferðar eftir hádegið
um Borgarfjörð og þá sérstaklega í Stálpastaði en
þar var móttaka fyrir fundarmenn og gesti í boði
Skógræktarfélags Borgarfjarðar og Skógræktar
ríkisins.
Um kvöldið var kvöldverður í boði Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu.
Kvöldvaka var í umsjá heimamanna, þar sem
margt var til skemmtunar. Við það tækifæri var
eftirtöldum veitt viðurkenning fyrir vel unnin
störf: Snorra Sigurðssyni, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags Islands, Aðal-
steini Símonarsyni, Ragnari Olgeirssyni og Þór-
unni Eiríksdóttur í Skógræktarfélagi Borgar-
fjarðar.
Fyrir hádegi á sunnudag hófst fundur með
ávarpi landbúnaðarráðherra, Jóns Helgasonar,
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989
139