Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Blaðsíða 140
Jóhannsson, Hjördís Pétursdóttir og Gísli B.
Kristjánsson.
— Mörk: Ólafía Jakobsdóttir.
— Neskaupstaðar: Auður Bjarnadóttir og
Aðalsteinn Halldórsson.
— N.-Þingeyinga: Þórunn Pálsdóttir.
— Ólafsvíkur: Ester Gunnarsdóttir.
— Rangæinga: Markús Runólfsson, Sigurvina
Samúelsdóttir og Pálmi Eyjólfsson.
— Reykjavíkur: Ásgeir Svanbergsson, Bára
Guðjónsdóttir, Bjarni K. Bjarnason, Björn
Ófeigsson, Einar E. Sæmundsen, Jóhann
Pálsson, Kjartan Sveinsson, Lárus Blöndal
Guðmundsson, Ólafur Sigurðsson, Reynir
Vilhjálmsson, Vilhjálmur Sigtryggsson, Þor-
valdur S. Þorvaldsson.
— Siglufjarðar: Guðmundur Jónasson.
— Skagfirðinga: Áifur Ketilsson, Margrét Stef-
ánsdóttir, Óskar Magnússon og Sigurður Sig-
fússon.
— Skagastrandar: Jón Jónsson.
—. Skáta: Halldór Halldórsson.
— Skilmannahrepps: Oddur Sigurðsson.
— Stykkishólms: Sigurður Ágústsson.
— S.-Þing.: Friðgeir Jónsson, Hólmfríður Pét-
ursdóttir og Þórey Aðalsteinsdóttir.
Formaður félagsins setti fundinn og bauð full-
trúa og gesti velkomna. Hún flutti kveðju frá
forsætisráðherra, sem hafði ætlað að mæta en
komst ekki vegna anna. Að tillögu formanns
voru fundarstjórar kjörnir þeir Bjarni Guðráðs-
son og Tómas Ingi Olrich, ritarar Halldóra Jóns-
dóttir, Ólafur Sigurðsson, Jóhann Pálsson, Þór-
unn Pálsdóttir og Einar E. Sæmundsen.
Formaður Skógræktarfélags Borgarfjarðar,
Ragnar Olgeirsson, flutti ávarp og bauð gesti
velkomna. Gat hann sérstaklega um afmælisár
félagsins og stofnendur þess. Var einn úr fyrstu
stjórn þess viðstaddur, Kjartan Sveinsson.
Því næst flutti Hulda Valtýsdóttir skýrslu
stjórnar. Bauð hún nýjan framkvæmdastjóra,
Brynjólf Jónsson, velkominn til starfa og þakkaði
jafnframt fyrirrennara hans, Snorra Sigurðssyni,
fyrir vel unnin störf.
Formaður sagði frá afgreiðslu og meðferð
stjórnar á tillögum, sem samþykktar voru á síð-
asta aðalfundi.
Formaður gat aðildar félagsins að farandsýn-
ingunni „Hið græna gull Norðurlanda“, einnig
birkifræsöfnunar sem félögin stóðu að og tókst
með ágætum.
Hún gat þess einnig að Þórdís Magnúsdóttir
hefði arfleitt Skógræktarfélag Islands að jörðinni
Saurum í Fremri-Torfustaðahreppi í Húnavatns-
sýslu.
Formaður ræddi um átakið í skógrækt 1990 og
aðild félagsins að því.
Framkvæmdastjóri félagsins flutti því næst
skýrslu sína. Á vegum félaganna voru gróður-
settar um 500 þúsund plöntur 1987. Um þriðj-
ungur þeirra var birki og aðrar laufplöntur.
Félögin notuðu um 2,6 milljónir króna til plöntu-
kaupa. Hann gat einnig um ný lönd sem tekin
hafa verið I notkun. Helgi Gíslason vann við
erindrekstur s.l. sumar. Umhirða er víða að
komast í óefni og þarf mikið átak í þeim efnum.
Sigurður Blöndal skógræktarstjóri ávarpaði
því næst fundinn. Hann sagði frá 90 ára afmæli
Norska skógræktarfélagsins nýverið. Hann sagði
einnig frá útgáfustarfsemi Norska skógræktarfé-
lagsins og nefndi sérstaklega vinnumöppur fyrir
barnaskóla, 4.-6. bekk, Lære med skogen og
bókina Skogen eftir Jon Lykke. Skógræktarstjóri
ræddi um þann áhuga sem væri á skógrækt í land-
inu og það hvernig hann yrði best nýttur í þágu
skógræktar almennt.
Baldur Helgason, gjaldkeri félagsins, lagði
fram reikninga þess og skýrði þá. Var þeim dreift
fjölrituðum til fundarmanna. Hann lagði til að
gjald fyrir hvern félaga yrði óbreytt kr. 50.00.
Að þessu loknu var kosið í nefndir.
Eftir matarhlé fyrsta fundardag gerði for-
maður kjörbréfanefndar grein fyrir störfum og
komu fram kjörbréf 68 fulltrúa. Síðan voru
skýrslur félaganna lagðar fram og gerðu fulltrúar
grein fyrir störfum félaganna. I þessu sambandi
var samþykkt tillaga um kjör fjölmiðlafulltrúa
félagsins og var kjörinn Hallgrímur Indriðason,
Akureyri.
Ólafía Jakobsdóttir, Skf. Mörk, taldi að yngja
þyrfti upp í félögunum. Þau í Mörk hefðu tekið
upp á því að skrá börn í félagið gegn 50 kr. gjaldi
138
ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989