Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 105

Ársrit Skógræktarfélags Íslands - 15.12.1989, Page 105
(klónarnir) séu ekki færri en 50 að tölu. Sömu at- riði og áður eru nefnd gildi einnig fyrir stafafuru, nema er varðar tölu klóna. Nægilegt sé að taka 20 klóna af henni. 2. Söfnun úrvalstrjáa. Söfnun sitkagrenis. í marsmánuði 1976 hófst söfnun á ágræðslukvistum af sitkagreni og stjórn- aði Itenni Haukur Ragnarsson, þáverandi for- stöðumaður Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá. Honum til aðstoðar við söfnunina voru þeir Guð- mundur Örn Árnason, sérfræðingur á Mógilsá, Böðvar Guðmundsson, þá aðstoðarmaður skógarvarðarins á Suðurlandi og skógarverðirnir í Borgarfirði og á Austurlandi. Söfnuðu þeir Haukur, Böðvar og Guðmundur Örn kvistum í Haukadal, á Álfaskeiði, Tumastöðum og í Múla- koti. har skiptust leiðir og fór Haukur til söfnunar á Stálpastöðum og Háafelli í Skorradal og fékk Ágúst Árnason skógarvörð sér til aðstoð- ar. Þeir Böðvar og Guðmundur Örn héldu lengra austur í sveitir og söfnuðu grenikvistum á Kirkju- bæjarklaustri, Svínafelli, Skaftafelli, Kvískerjum og Reynivöllum í Suðursveit. Þar sneru þeir félagar við og á bakaleið var safnað kvistum í Deildarárreit, Gjögrum og Skógum og luku þeir söfnuninni í Hveragerði. Sigurður Blöndal, þá- verandi skógarvörður á Hallormsstað sá um söfnun þar. Öllu ágræðsluefninu var síðan safnað saman á Mógilsá og þaðan sent rakleiðis til gróðrarstöðv- arinnar í Etne í Noregi til ágræðslu. Samtals voru teknir kvistir af 52 úrvalstrjám. Því miður eru fáar upplýsingar til um móðurtrén, s.s. mælingar, lýsingar á staðháttum eða saman- burður á móðurtrjám og nálægum trjám við þau. Hinsvegar sýnir meðfylgjandi tafla fjölda þeirra kióna, sem safnað var, söfnunarstað og uppruna. Hvað varðar uppruna klóna þá er aðeins vitað með vissu um helming þeirra. Sé hinsvegar gengið út frá gróðursetningarári þeirra, þá er sennilegt að um 40 þeirra eigi uppruna að rekja til Prince William Sound-svæðisins í Alaska (Cor- dova, Pigot Bay og Point Pakenham). 7 eða 8 koma frá Kenaiskaga, en 3-4 frá SA-Alaska, Baranof Island og e.t.v. Juneau. Söfnun stafafuru. Söfnun kvista af stafafuru var gerð 1977 og var hún mun einfaldari í sniðum en söfnun sitkagrenisins og var henni tvískipt. Á Hallormsstað sá Sigurður Blöndal um val á móð- urtrjám. Þarvoru teknirkvistiraf lOtrjám. Fimm voru teknir úr elsta stafafurureitnum, sem plantað var 1940, kvæmi Smithers í British Col- umbia og 5 úr reit frá 1956, kvæmi Wedellsborg í Danmörku. Ekki er vitað um uppruna kvæmisins Wedellsborg, en útlit trjánna bendir til að þau séu komin frá Oueen Charlotte Islands. Sumir telja þó að Wedellsborgkvæmið eigi uppruna að rekja til strandar Washingtonfylkis. Fimmtíu stafafurukvistir voru teknir í Skorra- Sitkagrenið. Lítið er af könglum þetta árið. Mynd: Pórarinn Benedikz, sept. 1988. ÁRSRIT SKÓGRÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS 1989 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Ársrit Skógræktarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Skógræktarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1995

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.