Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 9

Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 9
Um skógviðar bróður Mynd 4. Víðátta birkilendisins við upphaf búsetu, eins og óteljandi heimiidir benda til. -Teikning: Sherry Curl. í Flóru íslands er ein teg- und birkis nefnd skógviðar- bróðir. Honum er lýst svo, að hann sé í útliti nánast eins og mitt á milli ilmbjark- ar og fjalldrapa. Eitt ein- kenni hans hefir verið talið rauði haustliturinn. Þor- steinn Tómasson skrifar um þennan birkiblending í greininni „Af ástum fjall- drapa og bjarkar - áhrif þeirra á útlit og breytileika íslenska birkisins" í Skóg- ræktarritinu 1994. Héreru nokkrar glefsur úr þessari grein Þorsteins: * Finnst á útmörkum út- breiðslusvæðis birkis, þar sem beit er mikil. * Ekki ófrjór. * Erfðaflæði getur aukið að- lögun tegunda við erfið skilyrði. * Erfðaflæði frá fjalldrapa í birki er virkt afl í þróun fs- lenska birkisins. * Fjalldrapinn hefirsótt inn í þá nýju vist, þar sem birki- lendi hefir eýðst. * „Skógviðarbróðir virðist umfram allt upprunninn með því, að birkið frjóvgar fjalldrapann." * „Líklegast er þó, að mikill breytileiki í runnkenndu birkiskóglendi eigi upp- runa sinn í víxlfrjóvgun skógviðarbróður við birki- og því til marks um, að erfðaflæði milli þessara tegunda sé mikilvirkt afl í þróun og útlitsgerð ís- lenska birkisins". * Ekki er hægt að staðfesta tilvist skógviðarbróður, nema telja litninga í kjarn- anum (sem sagt ekki af út- litinu einu). Hér er að sinni sleppt grfðar- löngum höfundanöfnum, sem eiga að fylgja hinni nýju nafngift. Aðeins getið þess, að rússnesk kona, Orlova að nafni, lýsti hinu nýja latínuheiti 1978. Víðátta birkilendisins Hér er orðið „birkilendi" notað yfir allt land, sem þakið er birkitrjám, án tillits til hugsan- legra tegunda og stærðar eða lögunar einstakra trjáa. Við upphaf búsetu. Mikið og lengi hefir verið fjallað um þetta, en varfærin niðurstaða er, að birkilendið hafi verið 25-30 þús- und km2. Sumir fræðimenn hafa talið, að það gæti hafa verið allt að 40 þúsund km2. Kortið á 4. mynd sýnir, hver víðáttan gæti hafa verið. Helstu gögn, sem benda á útbreiðslu birkis á fyrri tíð eru: 1. Ritaðar heimildir, fornsögur, annálar, máldagar (=skrár um eignir kirkjujarða). 2. Örnefni, sem óteljandi mörg vitna um skóg, þar sem enginn er nú. 3. Kolagrafir, sem vitna um við- arkolagerð á fyrri tímum. Þæreru ótölulegar víða í lágsveitum allt út á annes, en hafa einnig fundist f 4-500 m h.y. s. (t.d. á Kili og inn af Bárðardal). Sjá grein Grétars Guðbergssonar í Skógræktarrit- inu 1992. 4 Frjógreining: Frjókorn plantna varðveitast í þúsundir ára f mýrum. Með hjálp ösku- lagatímatals má tímasetja, hvenær birki hvarf í námunda við mýrar, eftir því hve djúpt er á efstu birkifrjókornin. Sjá grein Þorleifs Einarssonar í bókinni „Gróður, jarðvegurog saga" 1994. Það er ljóst, að birkið var með- al þeirra landsins gæða, sem þjóðinni voru dýrmæt til þess að geta lifað í landinu (mynd 4, kort- ið). Þeirri skoðun var lengi haldið fram af mörgum að eyðing birkis og jarðvegs væri að kenna nátt- úruöflum: Óblíðu veðurfari og eldgosum. Sæmundur Eyjólfs- son benti líklega fyrstur á 1891, að sveiflur f veðurfari og eldvirkni væru svipaðar fyrir landnám sem eftir, svo að fleira kæmi til, sem sé búsetan, sem væri meginor- sakavaldurinn að eyðingu birki- lendisins. Og Þorvaldur Thoroddsen sýndi fyrstur manna 1883 fram á samhengi jarð- vegseyðingar og eyðingar birki- lendisins. Loks skal minnt á hina miklu grein Sigurðar Þórarins- SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002 7

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.