Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 27

Skógræktarritið - 15.05.2002, Side 27
Reyniviður (Sorbus aucuparia L.) Mynd 22. Reynitré í Vatnsfirði sunnan vatnsins. Mynd: S.Bl. 18-07-85. Nafnið ilmreynir er greinilega nýtt. í ofangreindum heimildum kemur það fyrst fyrir í texta 1. út- gáfu bókar Hákonar Bjarnasonar, þar sem þessi málsgrein er í lok kaflans um reyni: „Á síðari árum hefir þessi tegund á stundum verið nefnd ilmreynirtil aðgrein- ingar frá öðrum reynitegundum. Þetta er óþarfi, enda allt að því rangnefni. Þótt blómin ilmi vel, er mesti óþefur af berki reynivið- arins..." Hér er úr vöndu að ráða. Nið- urstaðan hefir samt orðið sú, að höfðu samráði við Helga Hall- grfmsson, að halda sér við nafn- giftina í Flóru íslands, sem okkur finnst mjög rökrétt: Reynir yfir ættkvíslina. Reyniviður yfir tegundina. Ætterni og heimkynni Hann heyrirtil rósaættarinnar (Rosacae). í ættkvíslinni Sorbus eru 37 tegundir. Þessi tegund vex í Evrópu, Litlu-Asíu, Kákasus og Vestur-Síberíu. Almenn atriði Nafngift tegundarinnar á íslensku Þetta er dálítið á reiki. í helstu uppsláttarbókum eru nafngiftir sem hér segir: • í Flóru íslands eftir Stefán Stefánsson, öllum þremur útgáf- unum (1901, 1924, 1948), heitir ættkvíslin reynir, tegundin reyni- viður. • í fslenskum jurtum (1945) eft- ir Áskel Löve eins og í Flóru ís- lands. • Hákon Bjarnason nefnirteg- undina reyni í öllum þremur út- gáfum á bókinni Ræktaðu garð- inn þinn, 1979,1981,1989. • Ásgeir Svanbergsson nefnir ættkvíslina reyni og tegundina ilmreyni í báðum útgáfum af bók- inniTréog runnar, 1982,1989. • f íslenskri ferðaflóru (1983) eftirÁgúst H. Bjarnason erteg- undin nefnd reynir. • Samræmingarnefnd um ís- lensk nöfn á trjám og runnum, sem starfaði á síðari hluta ní- unda áratugarins, gefur upp 3 möguleg nöfn á listanum, sem Óli Valur Hansson (1989) birtir í Ársriti Skógræktarfélags íslands: reynir, reyniviður, ilmreynir. • í Plöntuhandbókinni (1986) eftir Hörð Kristinsson er reynivið- ur yfirskrift textans, en í nafna- skrá eru reynir, reyniviður og ilm- reynir. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002 25

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.