Skógræktarritið - 15.05.2002, Síða 50

Skógræktarritið - 15.05.2002, Síða 50
Rofabarð, sem eyja í sandhafi, sýnir horfna grósku landsins. Þessi eyðimörk er á Kasthvammsheiði ofan við Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu. Mynd: Þröstur Eysteinsson. Inngangur Alþekkt eru orð Ara fróða um gróðursæld íslands við landnám. Sumir hafa þó talið þau hæpin í meira lagi og f besta falli ýkjur. En ef vitnisburðirnir eru skoðaðir ber allt að sama brunni. Vísindamenn og náttúrufræðing- ar hafa sýnt fram á að í þessum efnum hefur Ari haft það er sannara reynist.21,38 Þetta hafa frjókornarannsóknir f mýrum sýnt fram á,44-45 öskulagarannsóknir,39 kolagrafir á sandbornum auðnum landsins,13 fornminjar við hálendisbrúnina,31 skráðar frásagnir ásamt fornbréfum og máldögum,40 landlýsingar,8 örnefni og bæjarnöfn24'42 og jafnvel orðsifjafræði49'41 að ógleymdum skógarleifunum sjálfum. Þegar allt þetta er skoðað þá verður manni ljóst að lýsing Ara fróða er sönn og rétt. Rúmlega ellefu alda byggð hefur að mestu eytt skógum landsins. Margir hafa reynt að reikna út stærð skóglendis við landnám og er almennt talið að það hafi verið um 25 - 40% af flatarmáli landsins. Fyrstu tilraunir til slíkra útreikninga gerði Hákon Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri. Niðurstöðurnar birti hann f tímamótagrein íÁrsriti Skógræktarfélagsins fyrir réttum 60 árum undir heitinu: „Ábúð og örtröð".19 Hákon komst að þeirri niðurstöðu að búseta mannsins og rányrkja væri frumorsök eyðingar jarðvegs og gróðurs. Margir urðu til að mótmæla þessu á sínum tfma, enda verður hver maður sannleikanum sárreiðastur. Síðan hafa margir skoðað þessi mál og komist að sömu niðurstöðu og Hákon. Forsaga Þegar norrænir víkingar tóku að flytja til íslands tóku þeir með sér bústofn sinn og þekkingu sem þeir höfðu þróað með sér um aldir á meginlandi Evrópu. Þeir þekktu ekki hina viðkvæmu náttúru landsins.35Fljótlega olli landnámið því að landkostum tók að hraka. Það er ekkert einsdæmi að búseta manna leiði til lakari landkosta. Gróður hefur verið ofnýttur f öllum heimsálfum.26 Á sfðari öldum leiddi landnám Evrópubúa til landeyðingar í N-Ameríku og Ástralfu.1,2,35 Á Nýja-Sjálandi var jarðvegseyðing í kjölfar landnáms manna og grasbfta sláandi lík þvf sem við þekkjum á fslandi.28 Einnig má nefna lyngheiðar eins og þær sem eru á fótlandi og vfðar í Evrópu. Þærerutaldar hafa orðið til vegna vondra búskaparhátta og ofbeitar í margar aldir.5-22 Líkur hafa verið Ieiddar að því að þverrandi náttúruauðlindir hafi verið .meðverkandi þáttur í hruni fornra menningarríkja. Má í þessu sambandi nefna hið forna Rómar- veldi og fornrfki við árnar Efrat og Tígris. Enn f dag sjást merki rányrkjunnar á þessum slóðum.35 3-4 öldum fyrir Kristsburð er talið að Mesopotamía hafi framfleytt um 24-25 milljónum manna en nú brauðfæðir það landsvæði um 4 milljónir.26 Þegar landgæðum og menningu tók að hnigna á þessum slóðum neyddust menn til að breyta búskaparháttum sínum. Landhnignunin leiddi til þess að landbúnaðurinn fékk nýtt hlutverk. Hann gat ekki lengur framfleytt mörgum, en í staðinn neyddust menn til að snúa sér að geitum og sauðfé. Afurðir þeirra eru ekki miklar, en duga vel fyrir fátækar þjóðir til að skrimta. Þótt þessar skepnur þrífist best á góðum beitilöndum, þá komast þær af á lélegum beitilöndum og geta nýtt sér gróður sem aðrar skepnur fúlsa við. í dag er því víðast þannig farið að þar sem hægt er að stunda arðbæran framleiðslulandbúnað, þá er það gert. Á jaðarsvæðum, þar sem landkostir eru rýrir, verða menn að láta sér geitur eða sauðfé duga. Því miður er það svo að land á ákaflega litla möguleika á að ná fyrri grósku þegar það er nauðbeitt af þessum skepnum (mynd I). Það þarf ekki að koma neinum á óvart að íslendingar fóru fljótlega að fjölga sauðfé sínu, enda kemst það af með lítið. Afleiðingarnar eru öllum ljósar sem vilja sjá þær. Landið þoldi ekki beitina. Hún kom í veg fyrir eðlilega endurnýjun skóga og spillti landinu víðast hvar. Ingvi 48 SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Skógræktarritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.