Skógræktarritið - 15.05.2002, Qupperneq 77

Skógræktarritið - 15.05.2002, Qupperneq 77
Af framansögðu er ljóst, að talsvert þarf til, svo að ný fugla- tegund nái hér fótfestu sem fast- ur borgari í íslensku fuglaríki, Mörgum fuglum hefur gengið vel að koma ungum á legg, en það virðist ekki vera nóg. Við skulum nú skoða, hvað fugl þarf til að bera, til ná þessum áfanga. Hin erfiða farleið til landsins er örugglega einn helsti takmark- andi þátturinn fyrir landnámi fugla og ýmissa annarra dýra hér á landi. Átta hundruð kílómetra flugleið yfir úfið Atlantshafið, er stysta leiðin frá Skotlandi. Þessi langa og tvfsýna farleið veldur því, að litlir stofnar farfugla úr hópi landfugla eiga erfitt upp- dráttar. Það eru vafalaust tals- verð afföll f hafi af smávöxnum vað- og spörfuglum, en stofnar fugla eins og sandlóu, lóuþræls, þúfutittlings, maríuerlu, skógar- þrastar og steindepils sem verpa hér eru stórir og sterkir og ættu þeir að þola slíkt. Allflestir þeirra fugla, sem námu land á síðustu öld og eru jafnframt farfuglar, eru fuglar sem geta sest á sjó. Nýjasti landneminn, sem ekki er skógarfugl, er brandönd, en með- al þeirra fugla sem námu land á síðustu öld og eru farfuglar eru helsingi, skúfönd, hettumáfur og sílamáfur. Þeir spörfuglar sem námu land, hafa allir gerst stað- fuglar, svartþröstur, glókollur, stari og gráspör. Bjargdúfan er og staðfugl. Hún nam land á 20. öld og er varpkjörlendi hennar í klettum. Eini landfuglinn, sem telst til landnema síðustu aldar og fellur ekki undir þessa skil- greiningu, er branduglan. Hún er að mestu farfugl. Vætusöm veðrátta og fábreytt skordýralíf hefur verið nefnt sem annar takmarkandi þáttur fyrir vexti og viðgangi fjölbreyttari spörfuglafánu. Okkur finnast þetta ekki sannfærandi rök, þar sem nýjum fuglum, sem hér hafa reynt varp, hefur alla jafna gengið vel að koma ungum á legg. Auknar hrakningar sumra skógar- fugla hingað til lands, má tengja við aukna útbreiðslu þeirra í Evr- ópu og fjölgun í sumum stofnum, t.d hjá barrfinku og krossnefi í tengslum við aukna rækt barr- trjáa í Skotlandi, á Jótlandi eða í Vestur-Noregi2 o.fl.17 Að minnsta kosti tveir fuglar hafa að öllum líkindum fest sig í sessi eftir stórar göngur að haust- lagi. Þetta eru stari og glókollur. Starinn hóf að verpa á Innnesjum vorið 1960, eftir mikla göngu haustið 1959. Síðan hefur ekki orðið lát á, en staravarp, sem hófst í klettum á Hornafirði um 1940, leið undir lok16. Talið er, að glókollurinn hafi farið að verpa hér eftir göngu haustið 19956. Eftir þvf sem skógar vaxa og dafna á íslandi og með aukinni ræktun trjáa í görðum, aukast lfk- urnar á landnámi nýrra fuglateg- unda úr hópi skógarfugla. Einnig er sýnilegt, að innlendir fuglar sem kjósa trjágróður sem kjör- lendi sitt, eru að auka útbreiðslu sfna. Landnámið gengur þó mjög misvel og ræður sennilega erfið farleið til og frá íslandi mestu þar um og sést það meðal annars á því, að hinar fjórar nýju tegundir spörfugla í fánu lands- ins hafa allar gerst staðfuglar hérlendis. Hinn mikli fjöldi hrakningsfugla sem berst til landsins vor og haust eykur þó verulega líkurnar á að nýrra varp- fugla sé að vænta, ef kjörlendi er til staðar. Krossnefskerling að tína fiðrildalirfur af birki. Krossnefurinn er sérhæfður að lífi í greniskógum og gæti numið hér land með aukinni ræktun grenitrjáa. Ljósm. JÓH 2001. SKÓGRÆKTARRITIÐ 2002 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Skógræktarritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.