Skógræktarritið - 15.05.2002, Page 88
Þar sem Vífilsstaðahlíðin og víðáttan mynda baksvið fyrir landslagsgarðinn (B.J.).
um. Þannig áttu trjágróður,
runnar, rósir og litrík blóm að
renna með tímanum eðlilega
saman, þar sem eitt tæki við af
öðru og myndaðist eðlilegur
landglagsgarður28.
Gróðursetning á túninu fyrir
sunnan Vífilsstaði hófst um og
upp úr 1955 og var þá plantað
eftir skipulagi Jóns eftir því sem
best er vitað og var byrjað vest-
ast, næst þar sem gamli Vífils-
staðabærinn stóð29. Margir komu
að þessu verki, m.a. mörg börn
starfsmanna hælisins, bæði við
gróðursetningar, umhirðu og
verkstjórn, m.a. tveir þeirra sem
góðfúslega veittu upplýsingar
fyrir þessa samantekt, Borgþór
Björnsson og Lárus Helgason.
Plönturnar telja þeir að hafi
komið bæði frá Gróðrarstöðinni
Alaska, m.a. sírenur, og frá rækt-
un Hermanns Jónassonar f Foss-
voginum.
Ekki þarf að koma á óvart að
þrátt fyrir frjósamt túnið, þá var
suðaustanáttin plöntunum erfið
og þær uxu nánast ekkert fyrstu
þrjú árin. Það var ekki fyrr en
LATUM
LANDIO
í FRIÐI
Hendum ekkí sígarettustubbum
eða flöskubrotum á víðavangi.
/xTS/7