Tímarit FHH - 01.09.1984, Qupperneq 9

Tímarit FHH - 01.09.1984, Qupperneq 9
iö, sérstaklega ef um er að ræða börn eða unglinga má t. d. gera sam- kvæmt þroskakenningum Piaget eða Erickson. Hvað varðar áhuga á námi, er margs að gæta. Hafi miklar breyt- ingar orðið á lífi viðkomandi, já- kvæðar eða neikvæðar, er mikilvægt að meta tilfinningalega aðlögun hans. Hér má sem dæmi benda á kenningar Kiibler-Ross, kreppu- kenningar, o. fl. Áður hefur verið rætt um heilbrigðisviðhorf og áhrif þess á lifnaðarhætti manna. Við mat á því má hafa til hliðsjónar heilbrigðisviðhorfamódel það, sem þróað var af nokkrum félagsfræð- ingum á sjötta áratugnum. Vissulega er margt, sem áhrif hefur á námsáhuga, svo sem áhuga- hvöt eða „motivation", sársauki og ýmislegt fleira. Ég læt þetta hins vegar nægja á þessum vettvangi. Áður en kennsluundirbúningur hefst er nauðsynlegt að meta þarfir skjólstæðings fyrir fræðslu. Ýmsar aðferðir eru til þess, t. d. hliðsjón af stöðluðum markmiðum sem gerð hafa verið fyrir viðeigandi fræðslu- efni. Greining frœðsluþarfa. Með tilliti til ofangreindra atriða eru fræðslu- þarfir síðan greindar í forgangsröð. Markmiðasetning. Því næst eru ákveðin markmið með væntanlegri fræðslu. Oft eru þau á sviði vits- muna, viðhorfa og leikni (samkv. Bloom, Krathwoll, Simpson o. fl.) og grundvallast á ákveðinni hug- myndaheild. Fræðsluáætlun. Fræðsluáætlun er undirbúningur að sjálfri kennslunni. Hún segir til um hvernig námsefni skuli komið á framfæri svo og hvaða aðferðum og gögnum skuli beitt. Mat á árangri. Að fræðslu lokinni fer fram mat á árangri, samkvæmt settum markmiðum. í grein þessari hefur í grófum dráttum verið fjallað um fræðslu til skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins. Hjúkrunarfræðingar taka nú í aukn- um mæli þátt í þessari fræðslustarf- semi og líta á það sem eina af leið- unum til enn bættrar hjúkrunar. HEIMILDIR: Bevis, E. O. Curricuium Building in Nursing. Sec. ed., St. Louis, 1978, The C. V. Mosby Company. Joyce, B., Weil, M., Models of Teaching, sec. ed., New Jersey, 1980, Prentice-Hall, Inc. Murray, R. B., Zentner, J. P. Nursing Con- cepts for Health Promotion, sec. ed., New Jersey, 1979, Prentice-Hall, Inc. Practical Manual for Patient-Teaching, St. Louis, 1978, The C. V. Mosby Company. Redman, B. K., The Process of Patient Teaching in Nursing, St. Louis, 1976. The C. V. Mosby Company. Riehl, J. P., Roy, C. Conceptual Models for Nursing Practice, Sec. ed., New York, 1980, Appleton-Century-Crofts. í hárkollum Yfir 80 tegundir af hárkollum fyrir kvenfólk og mjög gott úrval af toppum og hárkollum fyrir karlmenn. Fyrsta flokks vara á góðu verði. UMBOÐSMENN: Jón Hjartarson, hárskeri, sími 2675, Akranesi. Rakarastofa Sigvalda, Kaupangi, Akureyri. Sími 21898. jj* UPPLYSINGASIMI 17144 Dóróthea Magnúsdóttir Torfi Geirmundsson Tímarit Fhh 7

x

Tímarit FHH

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit FHH
https://timarit.is/publication/2014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.