Tímarit FHH - 01.09.1990, Page 7

Tímarit FHH - 01.09.1990, Page 7
sem teknar voru upp ættu við í hjúkrun. Benda má á þá rannsóknarhefð sem var þróuð í hjúkrun á sjöunda og áttunda ára- tugnum. Hugtakið hlutlægni varð að trú- arsetningu og megináhersla var lögð á að halda ákveðinni fjarlægð og gjarnan vissri upphafningu í samskiptum við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar áttu að læra að klæða sig faglega, eða í dökka dragt og slaufu í stíl við bindi karlanna. í grein eftir Kalish hjónin, sem margir kannast vafalaust við fyrir rannsóknir á ímynd hjúkrunar, er mælt með því að hjúkrunarfræðingar klæði sig og komi fram þannig að ekki fari á milli mála að þar fari hæfur starfsmaður sem hefur fullt sjálfsforræði, hugsar rökrétt, áhrifamikill, ábyrgur og atkvæðamikill (Kalish og Kalish, 1985). Viðmið karla- stéttanna voru tekin upp gagnrýnilaust og hefðir hjúkrunar fengu að fjúka. Ég ætla að láta liggja milli hluta að geta mér til um hvaða áhrif þessi þróun kann að hafa haft hérlendis, en hvet ykkur, ágætu lesendur, til að íhuga það sjálfir. En breytingarnar gerast hratt nú á dög- um. Undir lok áttunda áratugarins komu fram ný viðhorf innan kvennahreyfingar- innar. Þá fóru ýmsir að velta því fýrir sér hvað konur hefðu eiginlega verið að gera allan þennan tíma í gegnum aldirnar. Líf kvenna og framlag þeirra til mannkynsins var allt í einu áhugavert. Nú er talað um kvennamenningu sem er ósýnileg í hinu opinbera lífi, en jafnframt sterk og mikil- væg. Hún byggir á reynslu kvenna og mótast af þeim gildum sem konur hafa haft að leiðarljósi í lífi sínu eins og um- hyggju fýrir velferð og þroska samborg- aranna, samábyrgð, samvinnu og góð- vild. Þessi menning er í mikilli útrýming- arhættu vegna þekkingar- og áhugaleysis okkar á henni. Karlamenningin, þ.e. hin ríkjandi opinbera menning, hefur hins- vegar verið gagnrýnd harkalega fýrir að leggja megináherslu á að ná völdum yfir náttúrunni og álitið að hún muni fýrr eða síðar leiða til heimsendis. Þessi hugmyndafræðilega breyting inn- an kvennahreyfingarinnar leiddi til þess að í stað þess að tala um jafnréttisbar- áttu, þ.e. rétt kvenna til að sitja við sama borð og karlmenn, var nú talað um kven- frelsisbaráttu, í því felst réttur kvenna til að lifa sínu lífi á eigin forsendum og að framlag kvenna njóti virðingar og hafi áhrif til jafns við framlag karla. Augljóslega kveður hér við nýjan tón, tón sem þegar hefur haft áhrif innan hjúkrunar og mun að mínu mati hafa mjög mikil áhrif á næstu árum. A vissan hátt má segja að þessi hugmyndafræði- lega breyting hafi veitt okkur frelsi til að þróa hjúkrun á okkar eigin forsendum í stað þess að keppa að því að líkjast ein- hverjum öðrum greinum sem mest (Par- sons, 1986). Við getum litið á það sem vel er gert í hjúkrun, þann árangur sem hjúkrunarkonur og síðar hjúkrunarfræð- ingar hafa náð við að stuðla að vellíðan og heilbrigði. Með því að byggja á þeim grunni og rannsóknarhefðum sem við teljum árangursríkar getum við síðan stuðlað að framþróun innan greinarinn- ar. Ég vona að orð mín verði ekki mis- skilin þannig að ég sé að segja að allt gamalt sé gott og að við eigum að snúa til fyrri tíma. Ég er ekki að hvetja til þess að hyggjuvit og innsæi verði sá grunnur sem hjúkrun byggir einvörðungu á. Það sem ég er hinsvegar að hvetja til er að við lítum gagnrýnum augum á þá ríkj- andi stefnu innan hjúkrunar, sem hefur einkennst af oftrú á vísindi og sér- fræðinga. Hér á eftir fara nokkrar hugleiðingar um það hvemig ýmsar hugmyndir sem eru á kreiki innan kvennahreyfmgarinn- ar, og þá sérstaklega í kvennarannsókn- um, geta nýst okkur við sköpun rann- sóknarhefðar innan hjúkrunar. Greint verður frá mismunandi stefnum innan þessa fræðasviðs hvað snertir viðfangs- efni og aðferðir og sagt frá tilraunum fræðikvenna til að leiðrétta og bæta þá þekkingu sem þróuð hefur verið, innan takmarka hefðbundinnar þekkingarþró- unar. Jafnframt er greint frá þeirri gagn- rýnu umræðu sem fram hefur farið að undanförnu um vísindalega þekkingu og nýjum leiðum til þekkingarþróunar sem fram hafa komið í kjölfarið. Kvennarannsóknir skilgreindar Það hefur löngum vafist fýrir fræði- mönnum að skilgreina hvað átt er við með hugtakinu kvennarannsóknir. Hér getur bæði verið átt við rannsóknir á kon- um, frá þeirra sjónarhorni og eins getur verið átt við rannsóknir sem unnar eru af konum. Ég get ímyndað mér að í hugum margra sé það mótsagnarkennt að tala um kvennarannsóknir. Eru ekki vísindin hlutlaus? Skiptir einhverju máli hvort vís- indamaðurinn er kona eða karlmaður? Þarf endilega að rannsaka konur sem sér- stakt fýrirbæri? Eins og ég mun koma að síðar er hægt að finna aragrúa dæma sem sýna að karlmenn, sem þróað hafa vís- indalega þekkingu hafi ekki verið hlutlausir. Sýnt hefur verið fram á hlut- drægni þeirra við val á rannsóknarvið- fangsefnum og á túlkun á niðurstöðum. Jafnframt hafa viðfangsefni vísindanna endurspeglað sérstök áhugasvið karla, á meðan áhugasvið kvenna hafa verið ósýnileg. Því hefur verið haldið fram að til að leiðrétta þær grófu rangfærslur sem fínna má í þekkingarforða okkar um konur, ásamt því að öðlast þekkingu um málefni sem snerta líf kvenna sérstak- lega, sé nauðsynlegt að stunda kvenna- rannsóknir þ.e. rannsóknir sem þróaðar 5 7. árg. 1. tbl. 1990

x

Tímarit FHH

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit FHH
https://timarit.is/publication/2014

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.