Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 12
 Donner^tag, 14. Juni 11)84 f. ^ Nr nP KMli/SUJLH^lX „Luxembourg Jewellery Manufacturers ; offiziell eröffneL Modernste euroj dýrðir við flaut og dýrum síðar var k BiiwT»cír.ter v«m Vcrc.gen. Jra.n verksmiðjan gjaldþrota og Fett- ilÍlí mann-málið orðið að miklu ÍlÍi hneykslismáli í Luxemborg. ERLENDUR FJARGLAFRAMAÐUR HYGGST SETJAST HÉR AÐ MAÐURINN SEM VlKINGASVEIT LÖGREGLUNNAR HANDTÓK FYRIR TÆPU ÁRI AÐ BEIÐNI INTERPOL BÝR NÚ VIÐ LAUFÁSVEGINN. TALIÐ ER AÐ GJALDÞROT HANS OG FJÁRSVIK NEMI ALLT AÐ 1,5 MILLJÖRÐUM KRÓNA. LÍKLEGT AÐ HANN HAFI SKOTIÐ PENINGUM UNDAN GJALDÞROTINU. LEITAR NÚ AÐ FASTEIGN Á REYKJAVÍKURSVÆÐ- INU. HEFUR HAFT FÉ ÚT ÚR FJÖLDA ÍSLENDINGA í LUXEMBORG. Jean Pierre Fettmann, adalper- sónan í mesta fjársvikamáli í Lux- emborg síðastlidinn áratug, var handtekinn hér á landi í janúar á þessu ári med fulltingi víkinga- sveitar lögreglunnar. Grunur lék á ad hann voeri vopnadur og hættu- legur. Hann var framseldur og sat í gœsluvardhaldi í Schrassig-fang- elsinu í 10 mánuöi, þar til hann var látinn laus gegn 3 milljón franka tryggingu þann 15. nóv- ember sídastliöinn. Hann býr nú ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni vid Laufásveginn í Reykjavík. HP hefur fregnaö af Fettmann á fast- eignasölum, þar sem hann hefur gert tilboö í dýr einbýlishús. Hann hyggst setjast hér ad. Eiginkonan fyrrverandi opnaöi þann 18. nóv- ember verslun í Reykjavík og höndlar þar með ítalskan skófatn- aö. GRÍÐARLEGT GJALDÞROT Mál Jean Pierre Fettmann hefur verið mikið til umræðu í Luxem- borg á þessu ári. Því tengist gjald- þrot fullkomnustu skartgripaverk- smiðju í Evrópu, skartgripaversl- unar við Grand' Rue í miðborg Luxemborgar; ferðaskrifstofunnar Queen Travel í Pétange og fjárfest- ingafyrirtækis. Ríkisrekinn banki og Societé Nationale de Credit a l'Investissement, einhverskonar framkvæmdastofnun þeirra í Lux- emborg, hafa komist í vond mál. Þá hefur gríðarlegur fjöldi fólks tapað stórum upphæðum sem það lagði í fjárfestingafyrirtæki Fett- manns, þar á meðal þó nokkrir úr íslendinganýlendunni í Luxem- borg. Ríkisstjórnin hefur komist í vond mál vegna fyrirgreiðslu sem Fettmann fékk hjá hinu opinbera og einstaka þingmenn hafa dregist inn í hneykslismál samfara rann- sókn málsins. Langt gæsluvarð- hald Fettmanns sýnir alvarleika þessa máls. Það mun aldrei verða rannsakað að fullu en unnið er að því að taka til alvarleg ákæruatriði úr allri súpunni. Frami Jean Pierre Fettmanns hefur verið skjótur í viðskiptalífi Luxemborgar. Hann opnaði skart- gripaverslun JPF Diamonds við Grand’ Rue, aðalverslunargötuna í Luxemborg, fyrir fjórum árum, þá 26 ára gamall. Síðan snerust hjólin hratt. Matsölustaðurinn Scandia Um Bock. Ferðaskrifstofa. Fjár- festingafyrirtæki. í júní 1984 var síðan fullkomnasta skartgripa- verksmiðja Evrópu, Luxembourg Jewellery Manufacturers Sárl, opnuð í Pétange, iðnaðarútborg við Luxemborg. Miklar vonir voru bundnar við þessa verksmiðju og fengu Fettmann og Lo Ka Chung, skartgripasali frá Hong Kong og viðskiptafélagi Fettmanns, stór lán frá ríkinu og ríkisreknum bönkum til þess að koma henni á laggirnar. Tveimur árum síðar var verk- smiðjan orðin gjaldþrota og önnur fyrirtæki Fettmanns fylgdu í kjöl- farið, að matsölustaðnum Scandia Um Bock undanskildum. Starfs- menn hans tóku yfir reksturinn. FJARSVIK OG OKURLÁNASTARFSEMI Þegar þessi gjaldþrotamál fóru í rannsókn kom mikil ólögleg fjár- málastarfsemi í Ijós að baki hinum opinberu fyrirtækjum. Fettmann hafði starfrækt gríðarlega um- fangsmikla okurlánastarfsemi í skjóli fjárfestingafyrirtækisins og notað í hana fé þess fólks sem fékk honum fjármuni sína til ávöxtun- ar. Ekkert bókhald fannst um þessi okurlán, en fljótlega varð ljóst að Fettmann hafði verið umsvifamik- ill í lánastarfseminni og heimtað háa vexti. 9% mánaðarvextir og 120% ársvextir voru algengustu kjörin. Eins og gefur að skilja voru þeir sem voru í lánaviðskiptum við Fettmann ekki af vandaðra taginu. Engin lögleg viðskipti geta staðið undir svo háum vöxtum. í desember á síðasta ári gaf lög- reglan í Luxemborg út handtöku- skipun á hendur Fettmann, en þá var hann flúinn Luxemborg. Talið var að hann hefði farið til Hong Kong, S-Arneríku, eöaísrael. Inter- pol var kallað til aðstoðar. Hann var síðan handtekinn í Reykjavík þann 7. janúar með miklum við- búnaði. í skeytum Interpol kom fram að grunur léki á að Fettmann væri vopnaður og því hættulegur. Því var víkingasveit lögreglunnar kölluð út. Ekki kom til vopnavið- skipta því Fettmann veitti engan mótþróa við handtökuna. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald hér, en ekki kom til þess að saka- dómur kvæði upp framsalsúr- skurð þar sem Fettmann sam- þykkti að gefa sig fram á flugvell- inum í Luxemborg. Hann flaug ut- an þann 11. janúar. SVARTIR PENINGAR OG PÓLITÍSK ÁHRIF Ekki eru öll kurl komin til grafar í Fettmann-málinu og enn allt óljóst um umfang þess. Gjaldþrot fyrirtækja hans var stórt. Talið er að það geti numið allt að 500 millj- ónum franka (luxemborgarfrank- inn hefur svo til sama verðgildi og íslenska krónan). Auk þessa er tal- ið að Fettmann skuldi viðskipta- mönnum fjárfestingafyrirtækisins allt að einum milljarði franka. Þeir skiptu hundruðum, ef ekki þús- undum, og í kjölfar gjaldþrots Fett- manns hafa margir viðskipta- manna hans fylgt á eftir. Þar sem bókhald yfir lánastarfsemi Fett- manns er glatað, eða hefur aldrei verið til, hefur rannsóknaraðilum gengið erfiðlega að kortleggja heildarumfang hennar. Lögreglan hefur óskað eftir því að fyrrver- andi viðskiptamenn Fettmanns gefi sig fram en mikill fjöldi þeirra hefur verið tregur til. Fettmann mun hafa tekið mikið af svörtum peningum til ávöxtunar, peninga sem hafa orðið til við ólöglega starfsemi og fé sem fólk hefur vilj- að hylja fyrir skattayfirvöldum. Sökum þessa, og alls umfangs málsins, mun það aldrei verða að fullu rannsakað. En af nógu er að taka og saksóknari í Luxemborg vinnur nú að opinberri ákæru á hendur Fettmann. Ávöxtun Fettmanns á svörtum peningum hefur sett margan í bobba. Einn þingmannasósíalista, Lydie Err, varð uppvís að því í vor að hafa lagt inn 2 milljónir franka til ávöxtunar hjá Fettmann, fé sem ekki fannst á skattaskýrslum hennar. Fettmann upplýsti um þetta við yfirheyrslur er hann var spurður um afdrif 5,6 karata rúbín-steins sem hann hafði tekið í umboðssölu. Fettmann sagði að hann hefði látið Err fá steininn er hún krafði hann um tryggingu fyr- ir 2 milljónunum sem hún hafði lagt inn hjá Fettmann. Rúbín- steinninn er metinn á 1 milljón franka, en Err á að hafa sætt sig við þá tryggingu þar sem veldi Fettmanns var á þeim tíma að hrynja. Err neitaði að hafa stein- inn undir höndum og hann hefur enn ekki komið í leitirnar. Tvær milljónirnar skýrði Err á þann hátt að þær væru lán frá föður hennar sem hún hefði viljað ávaxta með hagnaði. Err slapp með skrekkinn og situr enn á þingi. En lánið frá föðurnum er glatað. RÍKIDÆ.MI OG PEN- INGAR I PLASTPOKA Fyrir skömmu var hér á landi annað af fórnarlömbum Fett- manns. Það var maður frá Luxem- borg sem giftur er íslenskri konu. Hann hafði lagt allt sitt fé til ávöxt- unar hjá Fettmann til þess að safna sér fyrir námi í hljóðfæraleik í Bandaríkjunum. Samkvæmt lög- um Luxemborgar er Fettmann persónulega ábyrgur fyrir öllum skuldbindingum fjárfestingafé- lagsins, og gildir einu þó það hafi verið lýst gjaldþrota. Þessi maður hugðist reyna að fá eitthvað af fjár- munum sínum til baka frá Fett- mann, en fékk ekki. Þær sögur ganga í Luxemborg að Fettmann hafi stungið umtalsverðum fjár- munum undan áður en kom til gjaldþrots fyrirtækja hans. Þeir sem illa hafa orðið úti í viðskiptum við hann ásælast eitthvað af þessu fé, og er það sjálfsagt hluti af skýr- ingunni fyrir því að hann er nú hér á landi. Fettmann lifði hátt á velgengni- tíma sínum. Hann og fyrrverandi eiginkona hans, voru áberandi í ís- lendinganýlendunni í Luxemborg, bjuggu í höll og áttu Rolls Royce. íslendingar sem þekktu til þeirra á þeim tíma sögðu í samtali við HP að veldið á Fettmann hefði verið meira en á moldríku fólki. Þau hjónin hefðu lifað eins og í ævintýri. Eins og í lygasögu frá Hollywood. Einn Islendinganna sagðist hafa verið að aka með þeim á Rollsinum um nótt er Fett- mann stöðvaði bílinn á afviknum stað, snaraði sér út og átti tal af manni sem skaut upp í nóttinni. Þegar Fettmann kom til baka henti hann plastpoka, úttroðnum af peningum til konu sinnar og bað hana að telja þá. Fettmann óð í peningum á stuttum ferli sínum. LEITAR AÐ EINBYLIS- HÚSI í REYKJAVÍK Jean Pierre Fettmann var leyst- ur úr haldi þann 15. nóvember gegn 3 milljón franka tryggingu. HP tókst ekki að fá upplýst hver hefði reitt fram þetta fé, en samtök gyðinga í Luxemborg munu hafa haft milligöngu þar um. Stuttu síð- ar kom hann hingað til lands og býr nú hjá fyrrverandi eiginkonu sinni og barni þeirra. Síðan hann kom hingað til lands hefur hann leitað fyrir sér á fasteignamark- aðnum og meðal annars gert til- boð í veglegt einbýlishús á Arnar- nesinu. Fettmann hefur þó ekki notað sitt eigið nafn, heldur leppa. Útlendingaeftirlitiö veit af dvöl Fettmanns hér á landi og fylgist með honum. Eins og áður sagði leikur grunur á að honum hafi tek- ist að skjóta umtalsverðum fjár- munum undan gjaldþroti fyrir- tækja sinna. Því er ekki ólíklegt að hann hyggist koma undir sig fót- unum á ný. Það eru slæmar fréttir, svo framarlega sem hann hefur ekki söðlað rækilega um í við- skiptaháttum sínum. -eftir Gunnar Smára Egilsson- 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.