Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 21
Hallgrímur Thorsteinsson útvarpsmaður í HP-viðtali Hann hafði til að bera þessa einlægu jákvæðni gagnvart lífinu. Jafnvægi. Sanngirni. Æðruleysi. Elskulegheit. Tilbeiðslu á öllum hlutum, sem honum fannst allir vera jafn merkilegir. Já, ætli ég sé ekki eins konar aristókrati, svona góður gæi. Samt er ég lóner að mörgu leyti. Svo get ég verið kurteislega ýtinn og frek- ur í samstarfi. Eg er fæddur í meyjarmerkinu og get verið óþolandi nákvæmur í sumum hlutum en eins get ég verið afskaplega draumlyndur. Ég var ágætur í fótbolta sem strákur en átti svo til að setjast á kantinn og fara að skoða blóm. Eða fjallahringinn." — Utan við þig, semsé? „Já. Mamma, Elísabet Maack, sem er komin af sjómönnum, dæsti alltaf: Þú ert nú meiri prófessorinn. Ég er svona akademískt ut- an við mig. Get hæglega misst af stoppistöð í strætó ef ég er mjög niðursokkinn. Og stundum gleymi ég mér í skemmtilegum samræðum. Besti vinurinn sem ég eignaðist í Ameríku var alinn upp á miklu menningarheimili í Los Angel- es. Hann var í guðfræði og hafði mjög gaman af því að velta fyrir sér stóru spurningunum á dálítið svipaðan hátt og Islendingar eru vanir að gera. En honum þótti Bandaríkjamenn slappir til slíkra hluta og því sagði hann oft við mig: Well Halli, let’s have a big talk!“ KOLLEGARNIR KITLA — HLUSTENDURNIR HLÝJA Við Hallgrímur hendum gaman að þvi að enn hafi ég ekkert spurt hann út i hjónabandið og. „áhugamálin" samkvæmt prótókolli viðtalsins, enda sé það til lítils: fólk segi yfirleitt frá hjóna- bandi sínu í upplognum klisjum og líkast til eigi fáir sér þessi svokölluðu áhugamál, það sé orðið hálf pervers að safna frímerkjum og spila golf, og enginn segist hafa gaman af kráarsetum og konum. Svo segir Hallgrímur á sinn yfirvegaða og kæruleysislega hátt með tilheyrandi hummi inni á milli: „í stórum dráttum hef ég bara áhuga á að koma einhverju í verk, láta mér líða vel, láta gott af mér leiða, klikka ekki í uppeldinu, týna ekki tungunni, verða hamingjusamt gamal- menni. En mest fæ ég út úr því að ná til þess fólks sem ég vil ræða við á öldum ljósvakans. Fólk hringir stöðugt í mig í beinni útsendingu. Einn hringdi um daginn og sagðist ekkert skilja í sér, hann væri ekki vanur að gera svoleiðis nokkuð. Hann hefði bara mátt til að láta mig vita að honum fyndist lagavalið mitt æðislegt. Vænst þykir mér þó um viðbrögð kolleganna. Bau fullnægja starfslegum metnaði. Stundum er sagt að blaðamenn skrifi fyrir blaðamenn og fréttamenn hafi kollegana stöðugt i huga í sinni matreiðslu. Ég held að það sé nokkuð til í því. Viðbrögð kolleganna kitla mann, en viðbrögð hlustenda hlýja manni. Það má segja að ég velji efni þáttanna fyrir hinn almenna hlustanda en umbúðirnar kannski í og með fyrir kollegana. Það er alltaf gaman að kynna fólki ný viðhorf og fyrirbæri. Þá líður mér dálítið eins og i hlutverki föðurins sem segir við barnið sitt: Sjáðu, finnst þér þetta ekki flott? Eða: Finnst þér ekki skrýtið að heimurinn skuli vera svona?“ beitir íviötölunum felist einfaldlega íþvíað vera ,,þú sjálfur", að fella spyrilsgrímuna. „Þetta er útpælt að því leyti að ég keyri á til- finningunni, reyni að tala við fólk eins og ég sé ekki í útvarpinu. Segi t.d.: Ertu að meina það? Ertu að segja satt? Eg bregst við í stað þess að vera með hina köldu grímu spyrilsins. Ég nálgast fólk oft eftir krókaleiðum, nota mína eigin reynslu. Stilli þá upp einhverri hliðstæðu úr minni reynslu og keyri samsíða upp að viðmæl- andanum. Þannig kemst ég miklu nær honum en með yfirheyrsluforminu. Ég reyni að vera hlýlegur." — Stundum spyröu mjög leiðandi spurninga sem- reynast ekki á rökum reistar. Stafar það af þekkingarleysi eða er þetta bragð til að viðmœl- andinn mótmœli kröftuglega og leysi stðan frá skjóðunni? Hallgrímur viðurkennir eftir dálitla umhugs- un að stundum stafi þetta af þekkingarleysi. Seg- ir síðan: „En mér er sagt að ég hafi svo sann- færandi rödd að ég geti talið fólki trú um nánast hvað sem er. Það er auðvitað stórhættulegur eiginleiki sem ég held reyndar að fáum íslensk- um stjórnmálamönnum sé gefinn. Sem betur fer.“ — Pér virðist vera svona frekar í nöp við ís- lenska stjórnmálamenn. Þá er sjálfsagt ekki við því að búast að þú sért flokksbundinn einhvers staðar? „Nei, pólitík höfðar ekki til mín nema sem viðfangsefni." — Kýstu? „Ég kaus siðast, af rælni. Ég fór á kjörstað með dóttur mína til að sýna henni nákvæmlega hvernig kosningar færu fram og þá fannst mér að ég yrði að krossa við." — Hvað kaustu? Hallgrímur grettir sig. „íslensk pólitík er svo gölluð. Það er til dæmis skandall að ekki skuli vera hægt að setja upp mötuneyti í skólum, þennan blessaða, samfellda skóladag. Mér er sama þótt ég þurfi að borga eitthvað hærri skatta, ef það gæti orðið til þess að börnin mín fengju að borða í skólanum." OÞOLANDI NÁKVÆMUR OG DRAUMLYNDUR — Ekki byggirðu sjálfsmynd þína á pólitík, á hverju þá? Ertu aristókrati? „Já, ég held að þessi velmeinandi aristókrat- íski bakgrunnur eigi kannski allsterk ítök í mér Langafi minn, Th. Thorsteinsson, var einn þeirra kaupmanna og útgerðarmanna sem byggðu upp Reykjavík. Ég er kominn af vest- firsku slekti, bæði í móður- og föðurætt. Að mér standasjómenn, formenn, gróssérar, pólitíkusar og listamenn. Ég var til dæmis að glugga aftur í bókina um frænda minn Mugg um daginn og finn að ég stend nálægt honum að mörgu leyti. stein, Einari Sigurðssyni, sem allir komu heim úr fjölmiðlanámi um þetta leyti, og fleiri köpp- um að gera fréttirnar bæði áheyrilegri og harð- ari. Síðustu mánuðina á útvarpinu vann hann jafnframt í undirbúningsnefnd að stofnun Rásar 2: „Eftir þetta fannst mér ég ekki geta gert meira á útvarpinu í bili, hafði fengið mig fullsaddan á harða fréttastaðlinum og fór yfir á Helgarpóst- inn þar sem frelsið og dýptin í umfjölluninni var meira. Þar naut ég mín framan af en svo, á tíma- bili, fylltist ég óbeit á því að skrifa, að þurfa kannski að eyða löngum tíma í hluti sem mér þóttu ekkert sérlega merkilegir. Þá fann ég líka hvað vinnsluferlin á Ijósvakafjölmiðlunum og á blaði eru gjörólík. I blaðamennskunni eyðirðu kannski fleiri dögum í að matreiða efni sem þú afgreiðir á örskömmum tima í útvarpinu." Síðan vann Hallgrímur að auglýsingagerð fyr- ir útvarp og þó aðallega sjónvarp, en það þótti honum þrautleiðinlegur og yfirborðslegur bransi miðað við fréttamennskuna; samt hafi þetta verið góður sjálfsskóli til að ná valdi á myndmiðlinum og nú rekur hann reyndar Myndbandagerð Reykjavíkur ásamt konu sinni og fleirum. Þá tók við síðdegisþátturinn / loftinu á Rás 1 síðastliðið sumar og þá erum við aftur komin að Bylgjunni. KEYRI Á TILFINNINGUNNI — Þú sagðir áðan að ,,leynivopnið“ sem þú

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.