Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 18.12.1986, Blaðsíða 34
BOKMINNTIR Vel heppnud vidhöfn Ari Trausli Guömundsson: ÍSLANDSELDAR. ELDVIRKNl Á ÍSLANDI í 10.000 ÁR. Kort: Gunnar Haukur Ingimundarson. Skýringarmyndir: Eggert Péturs- son. Vaka — Helgafell 1986. 168 bls., kr. 4.860. Þessi bók er alþýðlegt fræðirit í viðhafnarútgáfu. Og það er meira en meðalviöhöfn sem birtist í myndskreytingu bókarinnar og allri útgerð (og verðinu eftir því). En það er viðhöfn sem lukkast, einkum vegna þess að hér er eng- inn verulega veikur hlekkur, held- ur er hver verkþáttur öðrum sam- boðinn. Og einkum sá sem mest reynir á: texti höfundarins; hann rís undir þessum veglegu umbúð- um. í nokkuð löngutn inngangskafla gerir Ari Trausti grein fyrir nokkr- um jarðfræðiatriðum, ekki síst þeim sem tengjast annars vegar landreki og hins vegar eldstöðva- kerfum. Þau eru síðan rauði þráð- urinn í umfjöllun Ara um einstak- ar eldstöðvar, og gefur það henni nokkurt nýjabragð fyrir þá lesend- ur sem lengi hafa gutlað við að iesa alþýðleg skrif um jarðfræði. Þá koma sextán kaflar, flestir innan við tíu síður, sem hver urn sig fjallar um eitt eldstöðvakerfi eða fáein slík kerfi á sama svæði. Hinn fyrsti er um Kröflu, einmitt þá eldstöð sem hvað drýgst hefur upplýst jarðvísindamenn um eðli eldstöðvakerfa. Loks eru hugtaka- skýringar og yfirlit um eldgos á 20, öld. í hverjuin kafla er, auk megin- máls, meira og minna af skrám og yfirlitum og stuttum viðbótartext- um, sem auðkennt er með lituðum grunni. Þá er mikið af kortum og skýringarmyndum, hvort tveggja einkar fallega unnið og hæfilega einfalt. Og loks ljósmyndaefnið, ríkulegt og mikil bókarprýði; mesti óþarfi af höfundi að afsaka í formála misjöfn myndgæði. Þótt bókin sé góð og gagnvönd- uð, þá er hún ekki hnökralaus. Gallarnir eru smáatriði sem þó eru fremur tiltökumál þegar svona mikið er í bókina lagt. Útlitsgalla kann ég ekki að nefna nema smá-prentlýti á þrem- ur blaðsíðum (7, 11 og 23), en það þarf ekki að vera í öllu upplaginu. Við kortagerðina hefur þess ekki verið nógsamlega gætt að nafngreina á kortum þá staði sem talað er um í nálægum texta. A kortið af Fremri-Námakerfinu (bls. 47) vantar t.d. Fremri-Námur sjálf- ar; á kortið af Bárðarbungukerf- inu (bls. 70) er bagalegt að vanti Hamarinn; og smærri dæmi mætti lengi telja. Efnisskipan held ég sé rökrétt, nema hvað smáklausa um aldurs- greiningu gosmenja á bls. 23 ætti heima með skyldu efni á bls. 11. Hugtakanotkun krefst mikillar hnitmiðunar í svona riti, ekki síð- ur fyrir það að það er ætlað al- menningi. Hér ber við að hugtök (t.d. „möttulstrókur", „frumstæð" bergkvika) séu notuð og ekki út- skýrð fyrr en síðar. Ónákvæmni er það líka (bls. 10), þegar búið er að gera strangan greinarmun á plötu- skilum og plötumótum, að skýra plötuskil sem „flekamót". Kísil- sýra „kísiloxíð" og á einum stað (bls. 167) bara „kísill", og er það óheppileg tilbreytni. Málfar er yfirleitt gott; þó kemur fyrir: „Ekki er vitað hvort eld- sprungan hafi verið virk öll í einu" og eitthvað sem „tilheyrir mó- bergsmynduninni af síðari hluta ísaldar". Prentvillur finnast, þótt alls ekki sé mikið um þær. Óg í myndatexta á bls. 78 er einhvers konar nafnarugl (átt við Vatnaöld- ur þar sem nefnd er Bárðar- bunga?). Þá er á einum stað gölluð heimildavísun, vísað í Þorleif Ein- arsson (bls. 66) þar sem hann finnst ekki í ritaskránni (bls. 68; þar er hins vegar bókin Skaftár- eldar 1783—1784, en ófróður les- andi getur ekki séð að einmitt í henni er grein Þorleifs sem við er átt). Þetta eru smámunir, óveruleg lýti á öldungis prýðilegri bók. Bók sem ég veit ekki betur en sé braut- ryðjendaverk í al-íslenskri bóka- gerð; allt sem ég hef séð af sam- bærilegri gerð er erlent samprent. Það er ögn af sjálfstæðismáli fyrir íslendinga að geta gert svona hluti sjálfir og einir. HSK Lítur mildur um öxl Halldór E. Sigurdsson: BILIN Á AD BRÚA milli manna og mál- efna. Andrés Kristjánsson bjó til prentunar. Örn og Örlygur 1986. 277 bls. 1.690 kr. Halldór E. Sigurðsson, sem sat í rikisstjórn lengst af síðasta áratug- ar, lýkur með þessari bók tveggja binda sjálfsævisögu sinni, og birt- ist hér sameiginleg nafnaskrá þeirra beggja. Ferill Halldórs er auðvitað merkilegur og þess vegna fengur að minningum hans. Annars er sterka hliðin á þessu bindi, rétt eins og þvi fyrra, hve ljúfur og vin- gjarnlegur blær hvílir yfir allri frá- sögn Halldórs; velviljinn er hinn rauði þráður minninganna, og að bókarlokum á lesandinn hægt með að trúa því að sama hvöt hafi miklu ráðið um störf höfundar að opinberum málum. Hins vegar er bókin ekki alls kostar grípandi lestur; til þess er skipt of títt um umræðuefni og of margir kaflarnir skýrslukenndir að blæ, þótt það eigi alls ekki við um þá alla. Halldóri er mikið í mun að geta, og helst að góðu, sem flestra sam- ferðamanna sinna á lífsleiðinni. Hér eru jafnvel heilu og hálfu kafl- arnir ekki annað en syrpur af stuttum mannlýsingum og fjöl- margs fólks getið þar fyrir utan. Flestir fá hrós, eða a.m.k. jákvæða umsögn og velviljaða (nema Gunnar Guðbjartsson; og í sam- bandi við Arnarflug eru menn gagnrýndir en hlífst við að nafn- greina þá). Ekki eru mannlýsing- arnar alltaf mjög skýrar, eða hvaða hugmynd fær lesandinn um mann sem „var mikill viljamaður og hlífði sér hvergi", en má þó helst finna það til foráttu að hann „mætti stundum vera harðgerð- ari“ (bls. 179)? Bókinni má skipta nokkurn veg- inn til þriðjunga, þannig að í hin- um fyrsta segir frá sveitarstjórnar- málum í Borgarnesi og þingsetu Halldórs; síðan frá ráðherratíð hans; og í lokaþriðjungi eru mann- lýsingar, minningar frá síðustu ár- um og fylgiskjöl, grein og ræða um Halldór. Það er líklega helst í ráðherrahlutanum sem Halldór veitir verðmætar upplýsingar, t.d. um myndun vinstri stjórnarinnar 1971 og um það af hverju „varð að fara verðbólguleiðina í hjálpar- starfinu" eftir Vestmannaeyjagos- ið. Fróðlegar eru líka svipmyndir eins og þegar sú tillaga „var felld í ríkisstjórninni ... að grásleppu- veiðin skyldi teljast til sjávarút- vegs en ekki landbúnaðar" (bls. 160); það hefði nefnilega skert út- flutningsuppbætur á mjólk og kjöt! Annars er bókin varla svo fróð- leg sem efni standa til. Drepið er á mörg mál án þess að setja lesand- ann verulega inn í þau. T.d. deil- una um kjörbréf framsóknar- og alþýðuflokksmanna 1956 (bls. 71—72), þar sem sagt er frá um- ræðum á þingi án þess að koma nærri sjálfu deiluefninu; og „að lokum voru svo öll kjörbréf sam- þykkt" án þess að við fréttum hverjir studdu þau eða hvers vegna. Eða ummæli Gylfa Þ. Gísla- sonar um Hermann Jónsson í til- teknum sjónvarpsþætti, sem gerð eru að umræðuefni (bls. 89) án þess að fram komi hvaö Gylfi var að segja um Hermann. Sums staðar virðist ekki hafa verið hirt um að leita nákvæmra heimilda til stuðnings minni Hall- dórs, t.d. þegar sagt er (bls. 83) að „Alþýðusambandið hafnaði til- mælum Hermanns með einum 300 atkvæðum gegn nokkrum tugum". Talsvert er af villum í bókinni, óbreyttum prentvillum, skökkum orðmyndum, jafnvel misritun sem verður að efnisvillu, eins og að tala um „hálfs annars árs“ (í stað- inn fyrir hálfs þridja) stjórnartíma- bil vinstri stjórnarinnar fyrstu. Eitt dæmi um hæpið orðaval er sérlega skemmtilegt. Halldór kall- ar mótframbjóðendur sína, þ.e. frambjóðendur annarra flokka í kjördæmi hans, ekki mót- heldur meðframbjóðendur. Kannski er þetta eitt af því sem Halldór og Andrés hefðu að betur athuguðu máli leiðrétt, en eins og það stend- ur er það í einkar viðkunnanlegu samræmi við hið hlýlega og já- kvæða viðhorf sögumanns til manna og málefna. HSK FÓlk í húsi Frída Á. Sigurdardóttir: Eins og hafið. Skáldsaga (148 bls). Vaka-Helgafell 1986 Verð kr.: 1585. Eins og hafið er saga sem gerist í þorpi úti á landi. Persónurnar búa flestar í einu og sama húsinu sem er gamalt stórhýsi í miðjum bænum, fyrrverandi glæsivilla, sem nú er fyrir skipulaginu og á að fara að rífa. Flest fólkið hefur búið þarna lengi og verða því umtals- verðar breytingar á högum þess við það að þurfa að fara úr húsinu. í raun veldur tilkynningin um upp- sögn húsnæðisins hvörfum í sög- unni. Fram að því hefur allt gengið meira og minna sinn vanagang en við uppsagnarbréfið brestur á upplausn sem á endanum leysir upp þetta afmarkaða samfélag. Sagan er hópsaga, engin ein persóna er aðalpersóna þó sumar komi meira við sögu en aðrar og sjónarhorn sögumanns hvarflar mjög títt frá einni persónu til ann- arrar. Þessi aðferð er mjög vand- meðfarin og höfundi þessa verks tekst hún eðlilega og áreynslu- laust. Sagan sýnir í hnotskurn fjöl- breytt mannleg samskipti sem kristallast í þessum litla hópi sem býr í húsinu. Mest áberandi er ást- in og eru sýndar á henni mjög ólíkar hliðar, en þó fyrst og fremst hvers hún er megnug, hvernig hún getur knúið manneskjur til breytni sem virðist vera langt fyrir utan alla skynsemi. En það eru víst gömul sannindi og ný að ástin fer ekki að lögum. Það er nokkuð oft sem sjónar- horn sögunnar er bundið við börnin í húsinu og tekst höfundi í gegnum upplifun þeirra sem eru að uppgötva heiminn að sýna hvernig heimur hinna fullorðnu er órökréttur og flókinn. Höfundi tekst einkar vel að bregða upp eftirminnilegum per- sónum, fólki sem er hvortveggja í senn venjulegt og sérstætt, einfalt í lífi sínu en margbrotið í tilfinning- um. Líkingin í nafni bókarinnar á einmitt við líf þessa fólks. A yfir- borði er oft ládautt eða smáar gár- ur, en margt býr í djúpinu og fyrr en varir er allt orðið ólgandi og hvítfyssandi svo enginn veit hvað næst gerist. Eins og fyrri verk Fríðu er þessi saga mjög vel skrifuð. Yfir stílnum er sérstætt seiðmagn sem nálgast að vera ljóðrænt, en er einnig ferskt og lifandi. Ekki ætla ég að hætta mér í að fara að túlka þetta verk að ráði en ef maður vill má sjá fjölþætt tákn- mál í sögunni, sem spannar kyn- slóðirnar þrjár í húsinu og vísar til þess öryggisleysis sem skapast þegar rýma þarf húsið, og þeirra kosta sem fólk hefur þá um að velja. En lesendum læt ég eftir að túlka þetta frekar. G.Ást. Hvergi blettur né hrukka Líf mitt og gleði. Minningar Þuríðar Pálsdóttur söngkonu, skráð af Jónínu Michaelsdóttur, útg.: Forlagið. Þuríður Pálsdóttir söngkona hefur lengi verið í fremstu röð tón- listarfólks hér á landi og nú hefur Forlagið gefið út minningar henn- ar skráðar af Jónínu Michaelsdótt- ur. í bókinni rekur Þuríður söng- feril sinn og líf, segir frá ættum sín- um og uppeldi, mönnum og mál- efnum sem hún hefur umgengist og fjallað um á lífsferli sínum. Einnig fylgir bókarauki um breyt- ingaskeið kvenna, en það mál hef- ur Þuríður látið til sín taka og fjall- að um með fyrirlestrahaldi. Bók- arauki þessi er merkileg og þörf viðbót, því eins og Þuríður segir sjálf hefur undarlega lítið verið tekið á þessu máli. Saga Þuríðar er ágætlega skrif- uð, uppsetning er látlaus, stuttir kaflar, skipuleg uppröðun og þægileg aflestrar. Mannamyndir margar dregnar skýrum og falleg- um dráttum, sönglífi á íslandi gegnum árin gerð greinargóð skil. En bók þessari er ekki eingöngu ætlað að vera saga listakonu held- ur einnig saga konu. Minninga- saga Þuríðar Pálsdóttur er því sem næst algjörlega átakalaus. Þuríður stendur utan og ofan við allt dæg- urþras og vafstur, eins og súper- kona sem er ekki af þessum heimi. Þetta finnst mér galli á sögu jafn stórbrotinnar konu og Þuríður er. Þuríður segist hafa valið fjölskyld- una þegar hún stóð andspænis því að velja milli söngsins og fjölskyld- unnar (bls. 260). Var þetta val kon- unnar og listakonunnar jafn átakalaust og virðist við lestur bókarinnar? Því á ég bágt með að trúa. Nú er ég ekki að fara fram á að fá að skoða prívatlíf Þuríðar Pálsdóttur, en ég sakna manneskj- unnar í bókinni vegna þess að ég trúi ekki á súpermanneskjuna, hvorki í líki Þuríðar Pálsdóttur né nokkurs annars. Þetta súperviðhorf gengur eins og rauður þráður gegnum bókina og flest allir sem nefndir eru til sögu, hvort sem eru ættingjar, vin- ir eða samstarfsfólk virðast vammlausir með öllu, gjörsneydd- ir mannlegum veikleikum eða skapgerðargöllum. Því eru mann- lýsingar í bókinni engan veginn raunsannar. Klausan um sam- skipti Jóns Leifs og konu hans stingur því illilega í stúf, jaðrar við rætni og hæfir engan veginn þeirri mynd sem dregin er upp af Þuríði Pálsdóttur. -I.Á. Frá Keflavík og Kasakstan Árni og Lena Bergmann Blátt og rautt — Bernska og unglingsár í tveimur heimum (260 bls.) Mál og menning 1986 Nú á dögum eru fjarlægðir ekk- ert til þess að setja fyrir sig. Við fá- um samdægurs myndir í sjónvarp- inu af jarðskjálftum í Mexíkó, óeirðum í Kalkútta, hungursneyð í Sómalíu o.s.frv. Á nokkrum klukkutímum er hægt að ferðast til flestra staða. Hinsvegar þarf maður ekki að fara neitt sérlega langt til þess að uppgötva að siðir og menning, hugmyndir og dag- legt líf byggja á allt öðrum forsend- um en hér hjá okkur. Enn þann dag í dag getur manni virst að maður sé kominn á allt aðra plánetu þó vegalengdir séu ekki sérlega langar. Þó svo að mann- eskjur séu meira og minna svipað- ar hvar sem er þá eru aðstæður og lífsskilyrði mjög með ýmsu móti. Keflavík, Reykholt, Laugarvatn eru nöfn sem hljóma kunnuglega í eyrum íslendings, en hvað með Rasjan, Alma Ata, Smolensk. Ætli það hljómi ekki álíka framandi í eyrum okkar og fyrri upptalningin í eyrum meðaljóns í Rússlandi. Og þegar við lesum í sömu bók frá- sögn af uppvexti og þroska tveggja ungmenna sem ólu aldur sinn á þessum stöðum á árunum frá því um miðjan fjórða áratuginn og fram á þann sjötta þá verður manni ljóst hversu óhemjulega ólík veröldin getur verið. í þessu sambandi skiptir miklu máli að á þessu tímabili geisar heimsstyrj- öld og er mjög sláandi hvernig hún kemur mismunandi niður á ungmennum á íslandi og austur í Rússlandi. Reyndar er þar engu saman að jafna og reyndar er alls ekki verið að tala um sama fyrir- bærið þegar rætt er um stríðið hér á landi eða í þeim löndum þar sem átökin áttu sér stað. Bókin er þannig byggð upp að það skiptast á kaflar úr minning- um þeirra Árna og Lenu án þess að um neina sérstaka tengingu sé að ræða. Frásögn Árna er nokkru lengri, þar sem hann rekur bernsku sína í Keflavík, skólavist í Reykholti og á Laugarvatni, póli- tískt stúss og loks mikla og fræga ferð á heimsmót æskunnar í Búka- rest. Einnig eru þar umfangsmikl- ar lýsingar á ýmsum samferða- mönnum og kunningjum sem honum eru minnisstæðir og haft 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.